Í upphafi fundar leitaði oddviti afbrigða til að taka á dagskrá mál E2508014 erindi frá Írisi Ósk og Sólrúnu Arneyju - Hrafney-meðgöngu- og fjölskyldusetur. Var það samþykkt samhljóða og verður málið 4. liður dagskrár.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. E2510005 - Grísará 1 (F2158643) - Umsókn um breytingu á staðfangi
Fyrir fundinum liggur beiðni frá landeigendum Grísarár I, þar sem óskað er eftir að breyta staðfangi fasteignarinnar í Sólarhæð.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að staðfang fasteignarinnar Grísarár I verði breytt í Sólarhæð í samræmi við reglugerð nr. 577/2017 um skráningu staðfanga.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að nýtt staðfang Grísarár I verði breytt í Sólarhæð í samræmi við reglugerð nr. 577/2017 um skráningu staðfanga.
2. E2411007 - Leifsstaðir II L152714 - breyting á aðal- og deiliskipulagi, hótel orlofshús
Á fundi skipulagsnefndar 20.05.2025 var fjallað um breytingu á aðal- og deiliskipulagi á Leifsstöðum, ásamt tilkynningu til Skipulagsstofnunar vegna matsskyldu framkvæmda sbr. 1. viðauka laga nr. 111/2021. Nú liggja fyrir uppfærð gögn og niðurstaða Skipulagsstofnunnar varðandi umhverfismat. Skipulagsstofnun birti ákvörðun sína um matsskyldu þann 25. september 2025, er það niðurstaða stofnunarinnar að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana, og sé því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Sveitarstjórn felur skipulags- og byggingarfulltrúa að kynna vinnslutillögu að aðal- og deiliskipulagi fyrir opnu húsi og að tillögurnar verði auglýstar skv. 31. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
3. E2510006 - Anna María Richardsdóttir - Gamla þinghúsið
Fyrir liggur erindi frá Önnu Richardsdóttur, þar sem hún leggur fram hugmynd um að nýta gamla þinghúsið sem menningarmiðstöð með vinnustofum og gistiaðstöðu fyrir listafólk.
Lagt fram til kynningar og erindinu vísað til sveitarstjórnar.
Sveitastjórn þakkar innsent erindi og sýndan áhuga á nýtingu Þinghússins. Ákvörðun um framtíð hússins verður ekki tekin fyrr en ástand þess hefur verið metið.
4. E2508014 - Íris Ósk og Sólrún Arney - Hrafney-meðgöngu- og fjölskyldusetur
Fyrir liggur erindi frá Írisi Ósk Egilsdóttur og Sólrúnu Arneyju Siggeirsdóttur, þar sem þær leggja fram hugmynd um að nýta Þinghúsið sem meðgöngu- og fjölskyldusetur.
Sveitastjórn þakkar innsent erindi og sýndan áhuga á nýtingu Þinghússins. Ákvörðun um framtíð hússins verður ekki tekin fyrr en ástand þess hefur verið metið.
5. E2502020 - Torfur - L152816 - Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir malartöku
Erindi dags. 13.10.25 þar sem landeigendur Torfna sækja um stækkun á malartökusvæði. Um ræðir 35.000 m3 á 2,5 ha.
Benjamín Örn Davíðsson vék af fundi við þennan lið. Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði vísað í vinnslu endurskoðunar aðalskipulags.
Sveitarstjórn samþykkir að vísa erindinu í vinnslu endurskoðunar aðalskipulags.
6. E2510011 - Menningarfélagið Hof ses. - Fyrirhuguð sameining við Menningarfélag Akureyrar ses.
Lagt er fram í sveitarstjórn kynningarbréf til stofnaðila Menningarfélagsins Hof ses. varðandi það að sameina félagið Menningarfélagi Akureyrar ses. Hjálagt er einnig skipulagsskrá Menningarfélagsins Hofs ses. og fundargerð stjórnar Menningarfélagins Hofs dags. 16.9.2025
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur kynnt sér bréf til stofnaðila Menningarfélagsins Hofs ses. varðandi fyrirhugaða sameiningu félagsins við Menningarfélag Akureyrar ses. ásamt fylgigögnum. Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða sameiningu.
7. E2510015 - Akureyrarbær - Barnaverndarsamningur desember 2025
Samningur ellefu sveitarfélaga um barnaverndarþjónustu á Norðurlandi eystra tekinn til fyrri umræðu.
Samningur um barnaverndarþjónustu tekinn til fyrri umræðu. Samningnum er vísað til síðari umræðu í sveitarstjórn.
8. E2509026 - Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2026 og 2027-2029
Áframhaldandi umræður um fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2026 og 2027 til 2029.
Áframhaldandi vinna við fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2026 og 2027 til 2029.
Fundargerðir til kynningar
9. E2510010 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 986
Fundargerð 986. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
10. E2510013 - Molta - 116. stjórnarfundur
Fundargerð 116. fundar stjórnar Moltu lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
11. 2510003F - Framkvæmdaráð - 163
Fundargerð 163. fundar framkvæmdaráðs lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:15