Sveitarstjórn

668. fundur 15. janúar 2026 kl. 08:00 - 09:50 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Linda Margrét Sigurðardóttir
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Anna Guðmundsdóttir var fjarverandi en fundinn sat Hákon Bjarki Harðarson
  • Ásta Arnbjörg Pétursdóttir var fjarverandi en fundinn sat Guðmundur S. Óskarsson
  • Sigurður Ingi Friðleifsson
  • Sigríður Bjarnadóttir
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
 
Dagskrá:
 
Almenn erindi
1. E2511033 - Torfufell land T3 L190307 - Umsókn um breytingu á staðfangi
Fyrir fundinum liggur erindi dagsett 22. nóvember 2025 þar sem eigendur Torfufells Lands T3 (L190307) óska eftir breytingu á staðfangi. Nýtt staðfang yrði Nátthagi.
Skipulagsnefnd afgreiddi málið á 444. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að staðfang fasteignarinnar Torfufells Lands T3 verði breytt í Nátthagi í samræmi við reglugerð nr. 577/2017 um skráningu staðfanga.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að staðfang fasteignarinnar Torfufells Lands T3 verði breytt í Nátthagi í samræmi við reglugerð nr. 577/2017 um skráningu staðfanga.
 
2. E2512006 - Áttan L152853 afmörkun lóðar - Merkjalýsing
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing unnin af Hákoni Jenssyni dags. 16.10.2025 þar sem verið er að hnitsetja afmörkun lóðarinnar Áttunnar (L152853). Erindið var tekið fyrir á 444. fundi skipulagsnefndar sem lagði til við sveitarsrjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
 
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og samþykkir hana á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
 
3. E2512017 - Héraðsskjalasafnið á Akureyri - Ársskýrsla 2024
Ársskýrsla Héraðsskjalasafnsins á Akureyri fyrir árið 2024 lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
4. E2512007 - Finnastaðir og Árbær L152594 skipting jarða - Merkjalýsing
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing unnin af Hákoni Jenssyni sem varðar Finnastaði og Árbæ L152594. Í merkjalýsingunni er jörðunum skipt upp í tvær aðskildar jarðir með nýjum merkjum þvert í gegnum núverandi land.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 444. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og samþykkir hana á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024
 
5. E2601021 - Merkigil - Umsókn um byggingarreit
Fyrir fundinum liggur erindi frá Kristínu S. Hermannsdóttur og Sæmundi Sigtryggssyni þar sem þau sækja um byggingarreit fyrir um það bil 180-240 fermetra íbúðarhúsi á einni hæði í landi Merkigils land númer L152724.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 444. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að umsækjanda verði heimilt að byggja íbúðarhús á umbeðnum reit enda samræmist það aðalskipulagi með tilliti til fjölda íbúðarhúsa á viðkomandi jörð og er skynsamlega staðsett með tilliti til landbúnaðar á svæðinu.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að umsækjanda verði heimilt að byggja íbúðarhús á umbeðnum reit enda samræmist það aðalskipulagi með tilliti til fjölda íbúðarhúsa á viðkomandi jörð og er skynsamlega staðsett með tilliti til landbúnaðar á svæðinu.
 
6. E2501006 - Brúarland (ÍB 15) - breytingar á skilgreiningu í ASK og greinargerð DSK
Fyrir fundinum liggja viðbrögð Skipulagsstofnunar, dags. 10. desember 2025, við tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna Brúarlands (ÍB-15).
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 444. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að hafa umsjón með áframhaldandi vinnslu málsins þegar rammahluti aðalskipulags hefur öðlast gild í samræmi við fyrri ákvörðun sveitarstjórnar.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að skipulagsfulltrúa verði falið að hafa umsjón með áframhaldandi vinnslu málsins þegar rammahluti aðalskipulags hefur öðlast gild í samræmi við fyrri ákvörðun sveitarstjórnar.
 
7. E2512019 - Húsnæðisáætlun Eyjafjarðarsveitar 2026
Fyrir fundinum liggur núverandi húsnæðisáætlun 2025 og er óskað eftir ábendingum sveitarstjórnar um hvort eitthvað sérstakt þurfi að hafa til hliðsjónar eða taka tillit til við endurskoðun húsnæðisáætlunar fyrir árið 2026.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 444. fundi sínum þar sem áhersla var á að húsnæðisáætunin væri stefnumótandi skjal sem mögulgr er að byggja framtíðarákvarðanir í skipulagsmálum á.
 
Sveitarstjórn tekur undir sjónarmið skipulagsnefndar um að húsnæðisáætlun skuli vera stefnumótandi skjal sem sé tengt gildandi aðalskipulagi hverju sinni. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að vinna drögin áfram með þessi sjónarmið og umræður á fundinum að leiðarljósi og að uppfæra upplýsingar um innviði í samráði við viðkomandi forstöðumenn. Málinu vísað til áframhaldandi vinnu hjá skipulagsnefnd.
 
8. E2512024 - Háaborg 2 (L174046) - beiðni um stækkun skógræktarsvæðis
Fyrir fundinum liggur erindi fra eiganda Háuborgar 2 sem sækir um framkvæmdaleyfi til stækkunar skógræktarsvæðis á jörðinni. Um er að ræða rúmlega 11 hektara stækkun sbr. meðfylgjandi loftmynd og yrði svæðið girt á kostnað landeiganda.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 444. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að ekki sé gerð athugasemd við umsóknina. Stækkun svæðis verði færð inn á aðalskipulag í þeirri vinnu. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda um staðsetningu girðingar.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á jörðinni og að hún verði færð inn á aðalskipulag í þeirri vinnu sem stendur yfir við endurskoðun aðalskipulags. Sveitarstjórn felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda um staðsetningu girðingar og að komið verði inn á það í útgáfu framkvæmdaleyfisins.
 
9. E2601008 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna fyrsta áfanga í uppbyggingu gatna í Bakkaflöt.
Fyrir fundinum liggur umsókn Eyjafjarðarsveitar, dags. 06.01.2026, um framkvæmdaleyfi vegna 1. áfanga gatnagerðar á nýju athafnarsvæði á Bakkaflöt.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 444. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir framkvæmdinni í samræmi við umsókn og framlagðar teikningar. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.
 
Sveitarstjórn samþykkir erindið samhljóða og felur skipulagsfulltrúa að fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi í samræmi við umsókn og framlagðar teikningar.
 
10. E2405037 - Hjóla- og göngustígur Eyjafjarðarbraut eystri frá Miðbraut að þjóðvegi 1
Sveitarstjórn fer yfir stöðu undibúningsvinnu í hönnun stígsins.
 
Lagt fram til kynningar. Sveitarstjórn óskar eftir því að haldinn verði kynningarfundur með landeigendum.
 
11. E2203018 - Göngu- og hjólastígur með þjóðvegi 1
Sveitarstjórn ræðir undirbúning útboðs á stígnum.
 
Sveitarstjórn hefur gert ráð fyrir fjármunum til framkvæmda við hjóla- og göngustíg frá mörkum Akureyrarbæjar að Skógarböðum á árinu og óskar útboðsgagna frá Verkís svo unnt sé að klára undirbúning útboðsferils. Beðið er staðfestingar á fjármögnun stígsins af hálfu Vegagerðarinnar. Ekki verður lagt af stað í útboð fyrr en jákvæð afgreiðsla Vegagerðarinnar liggur fyrir.
 
12. E2601018 - Sorphirða - útboð 2026
Sveitarstjórn ræðir útboð á sorphirðu.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að hefja undirbúning á vinnu við útboð á sorphirðu í sveitarfélaginu og vísar vinnunni til Atvinnu- og umhverfisnefndar. Sveitarstjóra falið að vera nefndinni innan handar í vinnunni.
 
13. E2601016 - Mötuneyti - útboð 2026
Sveitarstjórn ræðir áherslur varðandi útboð mötuneytis Eyjafjarðarsveitar.
 
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að uppfæra útboðsgögn varðandi mötuneyti í samráði við skólastjórnendur. Drögin skulu að því loknu lögð fyrir Skólanefnd og Velferðar- og menningarnefnd áður en til lokaafgreiðslu kemur hjá sveitarstjórn.
 
14. E2601019 - Malbikun - verðkönnun 2026
Sveitarstjórn skoðar undirbúning á verðkönnun vegna áframhaldandi malbikunar á vegum sveitarfélagsins.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að undirbúa verðkönnun á malbikunarframkvæmdum í lokaáfanga Hrafnagilshverfis.
Um er að ræða götuna Hólmatröð og bílastæði leikskólans auk lokafrágangs á ýmsum stöðum innan hverfisins og öðrum minni tilfallandi verkum.
 
15. E2601020 - Rotþrær og fráveita tæming - verðkönnun 2026
Sveitarstjórn skoðar undirbúning á verðkönnun vegna tæmingu rotþróa og fráveitu.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að hefja undirbúning á vinnu við verðkönnun á tæmingu rotþróa og fráveitu í sveitarfélaginu og vísar vinnunni til Atvinnu- og umhverfisnefndar. Sveitarstjóra falið að vera nefndinni innan handar í vinnunni.
 
16. E2512018 - Úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála - Tilkynning um kæru í máli nr. UUA2512006
Lagt fram til kynningar.
 
17. E2511018 - Starfsemi Kristnesspítala
Sveitarstjórn ræðir stöðu Kristnesspítala og framtíð starfseminnar þar.
 
Þau ánægjulegu tíðindi bárust frá SAK þann 11.desember að fyrri ákvörðun varðandi Kristnesspítala hefur verið dregin til baka og ákveðið hefur verið að reyna til hlítar að auka mönnun svo halda megi opnum rýmum til 7 daga endurhæfingar.
SAK sendir hinsvegar ákall til samfélagsins, þar sem það auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum, hjúkrunarfræðinemum og sjúkraliðum í dagvinnu og vaktavinnu, auk þess sem að auglýst er eftir starfsfólki í tímavinnu. Verði niðurstaða þessa ákalls sú að ekki náist ásættanleg mönnun er óhjákvæmilegt að rýna þurfi að nýju í starfsemina og forgangsraða.
Ljóst er því að starfsemin er brothætt og mönnun í dag að þolmörkum komin.
 
Sveitarstjórn óskar eftir fundi með fulltrúum SAK um hver framtíðarsýn stofnunarinnar sé varðandi starfssemi Kristnesspítala og þær fasteignir sem tilheyra henni á svæðinu. Sveitarstjóra falið að vera í sambandi við forstjóra SAK.
 
25. E2509010 - Hótel við skógarböðin - DSK breyting vegna hreinsistöðvar
Fyrir fundinum liggur uppfærð breyting á deiliskipulagi Skógarbaða og hótels þar sem brugðist hefur verið við athugasemdum sveitarfélagsins. Málið var tekið fyrir á 444. fundi skipulagsnefndar.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að erindið verði samþykkt sem óveruleg deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar erindinu í grenndarkynningu skv. 44. gr. laganna.
 
Fundargerðir til kynningar
18. E2512025 - HNE - Fundargerð 245
Lögð fram til kynningar fundargerð 245. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
19. E2512012 - Fundargerð 1. fundar farsældarráðs Norðurlands eystra
Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
20. E2512015 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 990
Lögð fram til kynningar fundargerð 990. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
21. E2512023 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 991
Lögð fram til kynningar fundargerð 991. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
22. E2512016 - Fundargerð almannavarnanefndar 4.12.2025 og rekstraráætlun 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð almannavarnanefndar dagsett 4. desember 2025 og rekstraráætlun ALNEY fyrir árið 2026.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
23. 2601003F - Ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar - 12
Fundargerð 12. fundar Ungmennaráðs Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að aðstoða Ungmennaráð við að gera könnun varðandi leiktæki á skólalóð og fagnar vinnunni.
Annað í fundargerðinni gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
24. 2601001F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 444
Fundargerð 444. fundar Skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:50
 
Getum við bætt efni síðunnar?