Dagskrá:
Almenn erindi
1. E2601009 - Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis
Tekin er fyrir beiðni um heimild til að hefja vinnu við deiliskipulag íbúðarsvæðis á Syðri-Varðgjá.
Skipulagsnefnd fjallaði um erindið á 445. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að samþykkja að skipulagslýsingu verði vísað í kynningarferli samkvæmt 40.gr skipulagslaga 123/2010.
Sveitarstjóri upplýsti fundarmenn um að formaður ofanflóðanefndar hafi haft samband eftir fund skipulagsnefndar. Kom þar fram að Veðurstofan sé að leggja mat á hvort svæðið sem umrætt deiliskipulag nær til verði mögulega metið sem þéttbýlisskipulag ásamt nærliggjandi svæðum vegna aukinni þéttingu byggðar þar. Verði raunin sú þá getur það haft töluverð áhrif á forsendur uppbyggingar á svæðinu.
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu erindisins þar til niðurstaða Veðurstofunnar liggur fyrir og leggur áherslu á að það verði sem fyrst.
2. E2310005 - Athafnasvæði á Bakkaflöt - nýtt deiliskipulag og breyting á Aðalskipulagi
Aðal- og deiliskipulagstillaga fyrir athafnasvæði á Bakkaflöt var auglýst skv. 31. og 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var athugasemdafrestur til 17. janúar sl. 10 umsagnir bárust á auglýsingatímabilinu og eru þær nú til umfjöllunar sveitarstjórnar.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 445. fundi sínum og lagði fram tillögur að afgreiðslu.
Samtals bárust átta athugasemdir á auglýsingartíma deiliskipulags Bakkaflatar:
1. Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun telur að svæðið sem framkvæmdin nær til sé hvorki á náttúruverndarsvæðum né á svæðum sem njóta sérstakrar verndar. Stofnunin áformar því að veita ekki umsögn varðandi verkefnið.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
2. Minjastofnun Íslands
Minjastofnun Íslands hefur ekki athugasemdir við breytingu á aðalskipulagi eða nýtt deiliskipulag.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
3. Rarik
Staðsetning spennistöðvar hentar ágætlega ef um léttan iðnað eða raforkunotkun er að ræða. Ef að stórnotandi kemur inn á svæðið þarf að endurskoða staðsetningu spennistöðvar.
Rarik óskar eftir að haft verði samband tímanlega varðandi framkvæmdir.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
4. Náttúrufræðistofnun
Um er að ræða umfangsmikil áform sem fela í sér margvíslega starfsemi á svæði sem í dag er ekki ósnortið en er hins vegar við bakka Eyjafjarðarár og því viðkvæmt svæði í ýmsum skilningi.
Töluvert álag er nú þegar á Eyjafjarðará og lífríki hennar vegna nýlegra vegaframkvæmda, efnistöku úr áreyrum, nábýli við bílaumferð og ýmsa starfsemi. Huga þarf vandlega að ákvörðunartöku sem eykur hættu á frekara álagi. Tryggja þarf að ástand vatnshlots Eyjafjarðarár rýrni ekki. Mengunarvarnir þurfa því að vera öflugar og forðast ætti með öllu að flytja mjög mengandi efni inn á svæðið. Þá ætti ekki að raska frekar bökkum Eyjafjarðarár og t.d. þarf að skipuleggja efnistökusvæði með tilliti til þess. Efnistaka úr virkum árfarvegum er alltaf óæskileg vegna neikvæðra áhrifa á lífríki. Jákvætt er að fyrirhugað er endurmat á áhrifum efnistöku á farvegsbreytingum og lífríki svæðanna á 5 ára fresti. Þó svæðið sé þegar raskað og lítið eftir af náttúrulegu votlendi getur svæðið engu að síður verið búsvæði fyrir fugla og annað lífríki. Æskilegt væri að gera úttekt á fuglalífi svo hægt væri að leggja mat á umhverfisáhrif tillögunnar. Aukin starfsemi á svæðinu getur raskað búsvæðum fugla en einnig valdið margvíslegri truflun á aðliggjandi svæðum s.s. á búsvæðum fugla við árbakkann. Leggja þarf mat á hver áhrif á lífríki Eyjafjarðarár geta orðið, sér í lagi laxfiska. Tryggja þarf að með haugsetningu og annarri starfsemi aukist ekki hætta á að framandi ágengari plöntutegundir dreifist frekar um svæðið og er jákvætt að lóðarhöfum verði skylt að fjarlægja alaskalúpínu og skógarkerfil.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Í skipulagsskilmálum kemur fram að óheimilt sé að nota byggingarefni sem geta haft í för með sér útskolun skaðlegra efna í vatn, s.s. þungmálma. Einnig eru ákvæði um hreinsun ofanvatns með það í huga að hlífa vistkerfi Eyjafjarðarár eins og kostur er.
Sveitarstjórn hyggst skipuleggja vinnslu efnistökusvæðis sérstaklega og með tilliti til þess að raska bakkagróðri ekki að óþörfu.
Eins og kemur fram í umhverfismatsskýrslu tillögunnar telur sveitarstjórn að vegna smæðar skipulagssvæðis í hlutfalli við óbyggð svæði í kring verði áhrif skipulagsins á líf á landi óveruleg.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
5. Norðurorka
Yfirfall á hitaveitu frá borholu HN-10 á vinnslusvæði Norðurorku í Botni liggur sunnan við skipulagssvæðið. Lögnin endar í skurði með stefnu N-S eftir skipulagssvæðinu. Ekki rennur vatn að jafnaði í gegnum lögnina en það gerist þó á nokkurra ára fresti. Finna þarf leið til að þetta vatn skili sér í Eyjafjarðará.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Sveitarstjórn telur að athugasemdin hafi ekki áhrif á skipulagið en tillit verður tekið til ábendingarinnar í hönnun svæðisins.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
6. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
7. Vegagerðin
Vegagerðin vísar í umsögn frá tillögu á vinnslustigi.
Gæta þarf að jarðvegsmanir valdi ekki snjósöfnun á vegi[LF1.1]. Göngustígar eru sýndir til austurs út af skipulagssvæðinu í átt að Eyjafjarðarbraut vestri. Ekki er gert ráð fyrir stígum í framhaldi af þeim. Skoða þarf hvernig stígum verður háttað á milli skipulagssvæðis og Hrafnagilshverfis.
Staðsetning nýrra vegamóta við þjóðveg eru samþykkt samkvæmt framlögðu deiliskipulagi. Hanna þarf vegamót í samráði við Vegagerðina.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn sem ekki hefur áhrif á skipulagið. Beint er til hönnuða gatnagerðar að taka tillit til ábendingu Vegagerðarinnar varðandi jarðvegsmanir.
Sveitarstjórn bendir á að göngustígarnir liggja út af svæðinu til norð vesturs en ekki austurs. Hjóla- og göngustígar meðfram Eyjafjarðarbraut vestri ná út fyrir skipulagssvæðið en sveitarstjórn beinir því til skipulagsnefndar að gera ráð fyrir þeim í vinnu við endurskoðun aðalskipulags sem nú er í gangi og nefndin bendir sjálf á.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
8. Akureyrarbær
Akureyrarbær gerir ekki athugasemdir.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
Níu athugasemdir bárust á auglýsingatímabili við aðalskipulag Bakkaflatar:
1. Minjastofnun
Minjastofnun Íslands hefur ekki athugasemdir við breytingu á aðalskipulagi eða nýtt deiliskipulag.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
2. Rarik
Rarik gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
3. Norðurorka
Yfirfall á hitaveitu frá borholu HN-10 á vinnslusvæði Norðurorku á Botni liggur væntanlega að hluta til innan skipulagssvæðisins eða á suðurmörkum þess. Lögnin endar í skurði. Ekki rennur vatn að jafnaði í gegnum lögnina er það gerist á nokkurra ára fresti. Sjá þarf til þess að þetta vatn skili sér í Eyjafjarðará. Engin vatnslögn er nálægt skipulagssvæðinu og þarf að leggja lögn frá Hrafnagilshverfinu að skipulagssvæðinu.
Norðurorka áréttar að ef færa þarf veitulagnir fellur sá kostnaður á þann er óskar breytinganna.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Sveitarstjórn telur að athugasemdin hafi ekki áhrif á skipulagið en tillit verður tekið til ábendingarinnar í hönnun svæðisins.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
4. Svalbarðsstrandarhreppur
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps gerir ekki athugasemd við framlagða skipulagstillögu.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
5. Náttúruverndarstofnun
Bent er á vistgerðir sem njóta sérstakrar verndar gæti verið að finna á skipulagssvæðinu en töluverð óvissa er í viðmiðunarmælikvarða vistgerðakortlagningar. Fuglalíf þessara vistgerða er ríkulegt af mó- og vaðfuglum. Stofnunin bendir á að ef óvissa er um áhrif á umhverfið, eða mat á áhrifum kallar á frekari rannsóknir á síðari stigum skal gerð grein fyrir því í aðalskipulagstillögunni. Mófuglar eiga undir högg að sækja vegna búsvæðaeyðinga. Stofnunin bendir á góða samantekt forstöðumanns Rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi um hvernig skal taka tillit til mófugla á varptíma og bera sig að við framkvæmdir. Stofnunin telur mikilvægt að þetta komi fram í tillögunni og sömuleiðis hvaða leiðir verði farnar til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum á ofangreindar vistgerðir og búsvæði fuglanna. Bent er á vegna nálægðar við Eyjafjarðará sé mikilvægt að settir séu skýrir skilmálar til verndar hennar í samræmi við lög um stjórn vatnamála nr. 36/2011 og hindra frekari rýrnun vatnsgæða. Stofnunin bendir á að leitast skuli við að viðhalda náttúrulegum bakkagróðri við ár og stöðuvötn og haga mannvirkjum og framkvæmdum þannig að sem minnst röskun verði á bökkum og næsta umhverfi vatnsins.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Í tillögu vegna aðalskipulagsbreytingar kemur fram að umhverfisáhrif framkvæmdarinnar séu talin hófleg að því gefnu að ítrustu varúðar sé gætt við framkvæmdir og rekstur.
Í deiliskipulagstillögu kemur fram að bakkagróður mun haldast lítt raskaður á 50 m breiðum kafla meðfram ánni.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
6. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands Eystra
Fjallað er um afgirta lóð fyrir gámasvæði. Sú starfsemi er að mati HNE móttökustöð fyrir úrgang sbr. skilgreiningu í lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
Móttökustöðvar eru háðar starfsleyfi Heilbrigðisnefndar skv. lögum nr. 7/1998 og reglugerð nr. 550/2018.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
7. Náttúrufræðistofnun
Um er að ræða umfangsmikil áform sem fela í sér margvíslega starfsemi á svæði sem í dag er ekki ósnortið en er hins vegar við bakka Eyjafjarðarár og því viðkvæmt svæði í ýmsum skilningi. Töluvert álag er nú þegar á Eyjafjarðará og lífríki hennar vegna nýlegra vegaframkvæmda, efnistöku úr áreyrum, nábýli við bílaumferð og ýmsa starfsemi. Huga þarf vandlega að ákvörðunartöku sem eykur hættu á frekara álagi. Tryggja þarf að ástand vatnshlots Eyjafjarðarár rýrni ekki. Mengunarvarnir þurfa því að vera öflugar og forðast ætti með öllu að flytja mjög mengandi efni inn á svæðið. Þá ætti ekki að raska frekar bökkum Eyjafjarðarár og t.d. þarf að skipuleggja efnistökusvæði með tilliti til þess. Efnistaka úr virkum árfarvegum er alltaf óæskileg vegna neikvæðra áhrifa á lífríki. Jákvætt er að fyrirhugað er endurmat á áhrifum efnistöku á farvegsbreytingum og lífríki svæðanna á 5 ára fresti. Þó svæðið sé þegar raskað og lítið eftir af náttúrulegu votlendi getur svæðið engu að síður verið búsvæði fyrir fugla og annað lífríki. Æskilegt væri að gera úttekt á fuglalífi svo hægt væri að leggja mat á umhverfisáhrif tillögunnar. Aukin starfsemi á svæðinu getur raskað búsvæðum fugla en einnig valdið margvíslegri truflun á aðliggjandi svæðum s.s. á búsvæðum fugla við árbakkann. Leggja þarf mat á hver áhrif á lífríki Eyjafjarðarár geta orðið, sér í lagi laxfiska. Tryggja þarf að með haugsetningu og annarri starfsemi aukist ekki hætta á að framandi ágengari plöntutegundir dreifist frekar um svæðið og er jákvætt að lóðarhöfum verði skylt að fjarlægja alaskalúpínu og skógarkerfil.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Í tillögu vegna aðalskipulagsbreytingar kemur fram að umhverfisáhrif framkvæmdarinnar séu talin hófleg að því gefnu að ítrustu varúðar sé gætt við framkvæmdir og rekstur. Einnig er lagt til að haft verði samráð við Fiskistofu til að meta möguleg áhrif framkvæmda.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
8. Vegagerðin
Meta þarf hvort efnistaka á nyrðri hluta E14B muni hafa í för með sér hættu á rofi á Eyjafjaðarbraut vestri.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Sveitarstjórn bendir á að samkvæmt gildandi aðalskipulagi er E14b ekki til á umræddu svæði. Hinsvegar er almennt tekið tillit til aðstæðna, til dæmis varðandi rofhættu vega, við útgáfu framkvæmdaleyfis.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
9. Akureyrarbær
Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar gerir ekki athugasemdir við breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030.
Svar: Sveitarstjórn þakkar innsenda umsögn.
Afgreiðsla hefur ekki áhrif á skipulagið.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða ofangreinda afgreiðslu umsagna. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða aðal- og deiliskipulagstillögur skv. 32. gr. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að fullnusta gildistöku skipulagsins.
3. E2601024 - Eyjafjarðarbraut eystri - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundna haugsetningu og vinnslu efnis
N10b ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundinni haugsetningu á grjóti og efnisvinnslu á tanga vestan Eyjafjarðarbrautar eystri. Sótt er um leyfi til 3 mánaða fyrir geymslu og vinnslu fyrir allt að 1000 m3 af efni sem nota á að mestu við framkvæmd á byggingu hótels við Skógarböð og aðrar framkvæmdir í landi Ytri-Varðgjár. Að efnisvinnslu lokinni verður tanganum skilað í því ástandi sem hann var áður en framkvæmdir hófust.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 445. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt að fenginni jákvæðri umsögn Vegagerðarinnar og að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfið þegar umsögnin liggur fyrir. Efnistaka á svæðinu er óheimil.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita framkvæmdaleyfi til og með 15.apríl fyrir geymslu og vinnslu fyrir allt að 1.000 m3 af efni sem nota á að mestu við framkvæmd á byggingu hótels við Skógarböð og aðrar framkvæmdir í landi Ytri-Varðgjár. Leyfið er háð jákvæðri umsögn Vegagerðarinnar og er skipulagsfulltrúa falið að gefa út leyfið þegar umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir. Jafnframt kallar sveitarstjórn eftir umsögn Óshólmanefndar vegna framkvæmda á þessu svæði innan Óshólmanna.
Rík áhersla er lögð á að tanganum verði skilað að tímabilinu loknu í því ástandi sem hann var áður en framkvæmdir hófust.
4. E2601026 - Hrafnagil (L152646) - umsókn um sandtöku úr Eyjafjarðará
Jón Elvar Hjörleifsson sækir um framkvæmdaleyfi til að taka 49.999 rúmmetra af sandi úr Eyjafjarðará neðan við aðalveginn í landi Hrafnagils skv. meðfylgjandi gögnum.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 445. fundi sínum.
Berglind Kristinsdóttir víkur af fundi undir þessum fundarlið.
Sveitarstjórn hafnar erindinu en bendir á að í vinnslu er aðalskipulagsbreyting sem tekur mið af því að efnistaka verði heimiluð á svæðinu fyrir allt að 50.000 m3 á skipulagstímabilinu.
5. E2309010 - Flokkun landbúnaðarlands - endurskoðun aðalskipulags 2023
Búnaðarsamband Eyjafjarðar er að vinna enduskoðun forsenda fyrir Eyjafjarðarsveit vegna flokkunnar landbúnaðarlands sem fram koma í skýrslu Eflu og Lands og skógar.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 445. fundi sínum, ræddi um flokkun landbúnaðarlands og vísaði málinu í áframhaldandi vinnu aðalskipulags.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
6. E2601036 - Endurskoðun aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar - Munkaþverá malarnám
Fyrir fundinum liggur beiðni um að gert verði ráð fyrir 50.000 rúmmetrum af efnistöku á endurskoðuðu efnistökusvæði Munkaþverár. Gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir 75.000 m3.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 445. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að umsókninni verði vísað í endurskoðun aðalskipulags.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa umsókninni til endurskoðunar aðalskipulagsins.
7. E2512002 - Samningur um velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu
Fyrir fundinum liggja drög af nýjum samningi um velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu við Akureyrarbæ.
Sveitarstjórn tók málið síðast fyrir á 667. fundi sínum þar sem drögunum var vísað til Velferðar- og menningarnefndar og Skólanefndar. Þá fól sveitarstjórn sveitarstjóra að rýna í kostnaðarliði samningsdraganna þar sem hlutfallsleg aukning frá núgildandi samningi er umtalsverð. Yfirferð nefnda er ekki lokið en kostnaður hefur verið rýndur sem og innihald samningsins.
Sveitarstjórn tekur samninginn til fyrri umræðu. Sveitarstjórn bendir á að laga þurfi orðalag í 4. og 8. gr. áður en samningurinn er tekinn til seinni umræðu.
8. E2601035 - Skógræktarfélag Eyfirðinga - Ársskýrsla 2025
Fyrir fundinum liggur ásskýrsla vegna starfsemi Skógræktarfélags Eyfirðinga í Eyjafjarðarsveit árið 2025. Fram kemur í skýrslunni að nokkuð umfang hafi verið hjá félaginu í Eyjafjarðarsveit á árinu þar sem grisjað var í Vaðlareit og á Hálsi. Þá fór fram stígagerð á Hálsi, 3.800 plöntur voru settar niður að Hálsi og að Melgerðismelum, skógarganga var haldin i Garðsreit og troðnar voru gönguskíðabrautir meðfram útivístastíg þó færi hafi sjaldan gefist til þess. Skógræktarfélagið var einnig ráðgefandi og setti niður plöntur fyrir sveitarfélagið í Hrafnagilshverfi.
Samningur við Skógræktarfélagið er að renna út og óskar félagið því eftir framlengingu á samningnum.
Sveitarstjórn þakkar fyrir góða samantekt og góða samvinnu. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að uppfæra samninginn við Skógræktarfélag Eyfirðinga og leggja fyrir sveitarstjórn.
9. E2510023 - Ráðstefna SÍS með ungmennaráðum landsins - kynning og spurningalisti
Föstudaginn 4. desember sl. fór fram ráðstefna Sambands íslenskra sveitarfélaga með ungmennaráðum landsins. Eyjafjarðarsveit sendi sitt ungmennaráð á ráðstefnuna ásamt forstöðumanni íþróttamiðstöðvar sem jafnframt er starfsmaður ungmennaráðs.
Fyrir fundinum liggur minnisblað forstöðumanns íþróttamiðstöðvar frá ráðstefnunni.
Sveitarstjórn þakkar fyrir minnisblaðið og gleðst yfir því hversu virkt Ungmennaráð sveitarfélagsins er eins og minnisblaðið gefur til kynna og fundargerðir ráðsins. Lagt fram til kynningar.
10. E2601034 - Alþingi - Til umsagnar 322. mál frá nefndar- og greiningarsviði
Fyrir fundinum liggja drög að Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030 en opið er fyrir umsagnir í umsagnagátt Alþingis til og með 9. febrúar næstkomandi.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að koma til skila umsögn um frumvarpið í samræmi við umræður á fundinum og áherslur sveitarstjórnar.
11. E2511018 - Starfsemi Kristnesspítala
Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri SAK og Erla Björnsdóttir framkvæmdastjóri mannauðssviðs SAK mættu til fundarins og ræddu málefni Kristnesspítala.
Sveitarstjórn þakkar þeim Hildigunni og Erlu fyrir komuna. Meðal þess sem var rætt voru helstu áskoranir í rekstri spítalans, staða mönnunar og framtíðarsýn SAK fyrir Kristnesspítala. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að taka saman minnisblað samkvæmt umræðum á fundinum.
Fundargerðir til kynningar
12. E2601025 - SSNE - Fundargerð 79. stjórnarfundar
Fundargerð 79. fundar stjórnar SSNE lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
13. E2512010 - Tún vottunarstofa - Aðalfundur 2025
Fundargerð aðalfundar Tún vottunarstofu fyrir 2025 lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
14. E2601027 - Hættumatsnefnd Eyjafjarðarsveitar - fundargerð 6. fundar
Fundargerð 6. fundar hættumatsnefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Sveitarstjórn ítrekar mikilvægi þess að niðurstöður skýrslunnar liggi fyrir sem fyrst og að Veðurstofan kynni þá niðurstöður sínar fyrir íbúum.
15. E2512012 - Fundargerðir farsældarráðs Norðurlands eystra
Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
16. E2601015 - Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar - fundargerð 18.
Fyrir fundinum liggur fundargerð 18. fundar Svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar 2022-2026 dags. 17.12.25 auk kostnaðaráætlunar 2026.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
17. 2601007F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 445
Lögð fram til kynningar 445. fundargerð Skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15