Dagskrá:
Almenn erindi
1. E2210043 - Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022
Fyrir fundinum liggja gögn vinnslutillögu að endurskoðun Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar 2025-2037.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 446. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að uppfærðri vinnslutillögu verði vísað í kynningu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010. Tillagan verði kynnt á opnum íbúafundi og dagsetning fundar auglýst síðar.
Sveitarstjórn fór yfir vinnslutillögu að endurskoðun Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar 2025-2037. Sveitarstjóra er falið að koma athugasemdum við skipulagið til skipulagshönnuða og uppfærð gögn verða lögð fyrir næsta sveitarstjórnarfund.
2. E2601037 - Austurhlíð L152567 - beiðni um breytta landnotkun
Fyrir fundinum liggur erindi þar sem óskað er eftir að landnotkun jarðarinnar Austurhlíðar (L152567) verði breytt úr athafnarsvæði í verslunar- og þjónustustarfsemi, með heimild fyrir ferðaþjónustu og orlofshús.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 446. fundi sínum og laðgi til við sveitarstjórn að beiðni um breytta landnotkun Austurhlíðar (L152567) verði vísað í endurskoðun aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar.
Frestað til næsta fundar.
3. E2411007 - Leifsstaðir II L152714 - breyting á aðal- og deiliskipulagi, hótel orlofshús
Fyrir fundinum liggur umsögn Skipulagsstofnunar vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Leifsstaða II fyrir auglýsingu skv. 3.mgr. 30. gr skipulagslaga 123/2010.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 446. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að uppfæra tillögu að breytingu á aðalskipulagi í samræmi við athugun Skipulagsstofnunar. Að því loknu verði tillagan auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Frestað til næsta fundar.
4. E2601009 - Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis
Tekin er fyrir að nýju beiðni um heimild til að hefja vinnu við deiliskipulag íbúðarsvæðis á Syðri-Varðgjá.
Sveitarstjórn frestaði á 669.fundi sínum afgreiðslu erindisins þar til niðurstaða Veðurstofunnar liggur fyrir varðandi hvort svæðið skilgreinist sem þéttbýli út frá lögum um ofanflóðamat. Niðurstaða Veðurstofunnar liggur nú fyrir og kemur skýrt fram í fundargerð ofanflóðanefndar Eyjafjarðarsveitar að ekki sé um að ræða skilgreint þéttbýli.
Frestað til næsta fundar.
5. E2602004 - Skógræktarfélag Eyfirðinga samningur 2026-2027
Tekin eru fyrir drög að samning við Skógræktarfélag Eyfirðinga árin 2026-2027
Frestað til næsta fundar.
6. E2503025 - Íbúðir fyrir eldri íbúa
Sveitarstjórn tekur til umræðu hugmyndir KEA að samkomulagi um uppbyggingu og leigu íbúða fyrir 60 í Eyjafjarðarsveit.
Frestað til næsta fundar.
7. E2601016 - Mötuneyti - útboð 2026
Velferðar- og menningarnefnd, skólanefnd og ungmennaráð hafa rætt áherslur sínar varðandi útboð mötuneytis og liggja þær fyrir sveitarstjórn.
Frestað til næsta fundar.
8. E2511018 - Starfsemi Kristnesspítala
Tekið til umræðu minnisblað frá fundi sveitarstjórnar með forsvarsfólki SAK.
Frestað til næsta fundar.
9. E2504005 - Bókasafn Eyjafjarðarsveitar
Velferðar- og menningarnefnd fékk til fundar við sig forsvarsfólk Amtbókasafnsins, Hrafnagilsskóla og Bókasafns Eyjafjarðarsveitar. Á fundi nefndarinnar komu fram ýmsar ábendingar sem nefndin telur að geti nýst í áframhaldandi stefnumótun varðandi starfsemi bókasafnsins, val á húsgögnum, búnaði og nýtingu rýmisins.
Minnisblað með ítarlegri samantekt frá fundi nefndarinnar liggur fyrir sveitarstjórn.
Frestað til næsta fundar.
Fundargerðir til kynningar
10. 2602003F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 446
Lögð fram til kynningar 446. fundur Skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar.
Frestað til næsta fundar.
11. 2601010F - Framkvæmdaráð - 167
Lögð fram til kynningar fundargerð 167. fundar framkvæmdaráðs Eyjafjarðarsveitar.
Frestað til næsta fundar.
12. E2601039 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 992
Lögð fram til kynningar fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Frestað til næsta fundar.
13. E2602013 - Óshólmanefnd - fundargerð 4.02.2026
Lögð fram til kynningar fyndargerð Óshólmanefndar frá 4.febrúar 2026.
Frestað til næsta fundar.
14. E2602015 - Norðurorka - Fundargerð 317. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 317.fundar stjórnar Norðurorku.
Frestað til næsta fundar.
15. E2602016 - Norðurorka - Fundargerð 318. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 318.fundar stjórnar Norðurorku.
Í fyrsta fundarlið er fjallað um Samþykktir Norðurorku hf. sem hefur látið vinna drög að endurskoðuðum samþykktum félagsins þar sem tekið er tillit til lagabreytinga sem orðið hafa frá gildistöku núgildandi samþykkta. Einnig eru gerðar tillögur að breytingum samþykktanna til að samræma þær eigandastefnu Akureyrarbæjar.
Frestað til næsta fundar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00