Dagskrá:
Almenn erindi
1. E2210043 - Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022
Fyrir fundinum liggja gögn vinnslutillögu að endurskoðun Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar 2025-2037.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 446. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að uppfærðri vinnslutillögu verði vísað í kynningu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010. Tillagan verði kynnt á opnum íbúafundi og dagsetning fundar auglýst síðar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa vinnslutillögu í kynningu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010. Tillagan verður kynnt á opnum íbúafundi þann 25.febrúar næstkomandi og verður fundurinn og tímasetning hans auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins.
2. E2601037 - Austurhlíð L152567 - beiðni um breytta landnotkun
Fyrir fundinum liggur erindi þar sem óskað er eftir að landnotkun jarðarinnar Austurhlíðar (L152567) verði breytt úr athafnarsvæði í verslunar- og þjónustustarfsemi, með heimild fyrir ferðaþjónustu og orlofshús.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 446. fundi sínum og laðgi til við sveitarstjórn að beiðni um breytta landnotkun Austurhlíðar (L152567) verði vísað í endurskoðun aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að beiðni um breytta landnotkun Austurhlíðar (L152567) verði vísað í endurskoðun aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar.
3. E2411007 - Leifsstaðir II L152714 - breyting á aðal- og deiliskipulagi, hótel orlofshús
Fyrir fundinum liggur umsögn Skipulagsstofnunar vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi Leifsstaða II fyrir auglýsingu skv. 3.mgr. 30. gr skipulagslaga 123/2010.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 446. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að uppfæra tillögu að breytingu á aðalskipulagi í samræmi við athugun Skipulagsstofnunar. Að því loknu verði tillagan auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela skipulagshönnuði að uppfæra tillögu að breytingu á aðalskipulagi í samræmi við athugun Skipulagsstofnunar. Að því loknu verður tillagan auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
4. E2601009 - Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis
Tekin er fyrir að nýju beiðni um heimild til að hefja vinnu við deiliskipulag íbúðarsvæðis á Syðri-Varðgjá.
Sveitarstjórn frestaði á 669.fundi sínum afgreiðslu erindisins þar til niðurstaða Veðurstofunnar liggur fyrir varðandi hvort svæðið skilgreinist sem þéttbýli út frá lögum um ofanflóðamat. Niðurstaða Veðurstofunnar liggur nú fyrir og kemur skýrt fram í fundargerð ofanflóðanefndar Eyjafjarðarsveitar að ekki sé um að ræða skilgreint þéttbýli.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa skipulagslýsingunni í kynningarferli samkvæmt 40.gr skipulagslaga 123/2010.
5. E2602004 - Skógræktarfélag Eyfirðinga samningur 2026-2027
Tekin eru fyrir drög að samning við Skógræktarfélag Eyfirðinga árin 2026-2027
Máli frestað til næsta fundar. Sveitarstjóra er falið að lagfæra orðalag samnings í samræmi við umræður á fundinum.
6. E2601016 - Mötuneyti - útboð 2026
Velferðar- og menningarnefnd tók til umræðu útboð á mötuneyti Eyjafjarðarsveitar. Í bókun nefndarinnar koma eftirfarandi áherslur fram:
Að í útboðsgögnum sé gerður nægilegur sveigjanleiki til að bregðast við mismunandi sérþörfum samhliða fæðuóþoli svo sem nemendum sem eru á sérfæði óháð læknisfræðilegum ástæðum.
Að áfram sé haldið með innkaup sem næst heimabyggð og að eftirlit með því sé aukið til að mynda með því að verktaki skili skýrslu í lok hvorrar annar til sveitarstjórnar. Í skýrslunni komi fra uppruni matvæla og sundurliðað meðal næringargildi matseðla.
Að halda áherslum á íslenska matarmenningu og hefðir svo sem með framsetningu hefðbundins íslensks heimilismatar.
Ungmennaráð hefur einnig rætt málið og leggur áherslu á fjölbreytni næringar og að tryggt sé að alltaf sé aðgengi að góðu próteini og fitu jafnvel þegar kolventnisríkur aðalréttur er í boði, þá sé alltaf aðgengi að fjölbreyttu úrvali í salatbar og að aukið sé gagnsæji á uppruna matvæla með því að birta það á heimasíðu grunnskólans samhliða matseðlinum hverju sinni.
Áherslur skólanefndar snúa að manneldismarkmiðum, aðgengi að fersku grænmeti og notkun íslenskra matvæla og hugað sérstaklega að mat fyrir yngstu nemendur leikskóla þegar matseðill dagsins fellur illa að þeirra þörfum. Þá leggur skólanefnd áherslu á að ekki verði árekstur á milli skólamáltíða og máltíða fyrir almenning sem sækir mötuneitið.
Sveitarstjórn þakkar nefndunum yfirferðina og fyrir góðar ábendingar varðandi næstu skref.
Sveitarstjóra falið að hafa hliðsjón að ábendingunum við áframhaldandi undirbúning útboðsgagna og leggja uppfærð gögn fyrir sveitarstjórn við fyrsta tækifæri.
7. E2511018 - Starfsemi Kristnesspítala
Tekið til umræðu minnisblað frá fundi sveitarstjórnar með forsvarsfólki SAK.
Sveitarstjórn þakkar samantektina og felur sveitarstjóra að vinna áfram með málið á þeim forsendum sem þar koma fram.
8. E2504005 - Bókasafn Eyjafjarðarsveitar
Velferðar- og menningarnefnd fékk til fundar við sig forsvarsfólk Amtbókasafnsins, Hrafnagilsskóla og Bókasafns Eyjafjarðarsveitar. Á fundi nefndarinnar komu fram ýmsar ábendingar sem nefndin telur að geti nýst í áframhaldandi stefnumótun varðandi starfsemi bókasafnsins, val á húsgögnum, búnaði og nýtingu rýmisins.
Minnisblað með ítarlegri samantekt frá fundi nefndarinnar liggur fyrir sveitarstjórn.
Sveitarstjórn þakkar nefndinni fyrir innleggið í umræðuna og vísar minnisblaðinu til framkvæmdaráðs svo hafa megi það til hliðsjónar í næstu skrefum framkvæmdar.
9. E2503025 - Íbúðir fyrir eldri íbúa
Sveitarstjórn tekur til umræðu hugmyndir KEA að samkomulagi um uppbyggingu og leigu íbúða fyrir 60 í Eyjafjarðarsveit.
Sveitarstjórn telur að sýn KEA á verkefnið eins og fram kemur í erindi félagsins samræmist ekki áherslum sveitarstjórnar. Samþykkir sveitarstjórn því samhjóða að slíta samtalinu.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að um sé að ræða 12 íbúða fjölbýli ætlað fyrir 55-60 ára og eldri.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að taka saman minnisblað um skilmála eða kvaðir sem hægt er að þinglýsa á lóðina með áherslur sveitarstjórnar að leiðarljósi.
10. E2602021 - Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, S-312026
SSNE hefur sent umsagnir samtakanna til sveitarstjórna til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerðir til kynningar
11. E2602020 - Hættumatsnefnd Eyjafjarðarsveitar - fundargerð 7. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 7. fundar Hættumatsnefndar Eyjafjarðarsveitar.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30