Dagskrá:
Almenn erindi
1. E2411037 - Melgerðismelar - L219983 Deiliskipulag - Flugslóð
Fyrir fundinum liggur uppfærð tillaga að deiliskipulagi fyrir flugskýli á Melgerðismelum. Málið var áður tekið fyrir á 662. fundi og í kjölfarið var skipulagslýsing kynnt á tímabilinu 13. ágúst-10. september 2025. Athugasemdir sem bárust við kynninguna hafa verið hafðar til hliðsjónar við mótun tillögunnar. Nú liggja fyrir uppfærð gögn þar sem m.a. er fjallað nánar um veitumál á skipulagssvæðinu.
Skipulagsnefnd hefur tekið uppfærð gögn til umræðu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að uppfæra vinnslutillöguna þannig að gert verði ráð fyrir hreinsistöð nyrst á skipulagssvæðinu. Skipulagsfulltrúa falið að kynna svo uppfærða vinnslutillögu skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsfulltrúa falið að hafa samband við aðliggjandi landeiganda og kynna vinnslutillöguna.
2. E2509037 - Jódísarstaðir L202642 - DSK breyting og merkjalýsing vegna lóða 7 og 8
Lögð fram merkjalýsing unnin af Guðmundi H. Gunnarssyni dags. 29.11.2025 þar sem verið er að breyta afmörkun lóðanna Jódísartúns 7 og 8 í samræmi við óverulega deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var af sveitarfélaginu 20.11.2025.
Skipulagsnefnd hefur tekið málið til afgreiðslu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að merkjalýsingin eigi sér stað á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Sveitarstjórn tekur þó undir ábendingu skipulagsnefndar um að skjalið sjálft sé formgallað í ljósi þess að búið sé að rita nýtt landnúmer inn á það án þess að fjarlægja hið ranga og fá nýjar undirskriftir.
Hermann Ingi Gunnarsson víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.
3. E2602005 - Borgarhóll III (L2320776) - ósk um byggingarreit
Fyrir fundinum liggur erindi þar sem óskað er eftir að skilgreindur verði byggingarreitur í landi Borgarhóls III (L2320776) vegna fyrirhugaðrar byggingar sumarhúss/íbúðarhúss.
Skipulagsnefnd hefur tekið erindið fyrir og hafnað því fyrir sitt leiti þar sem það samræmist ekki gildandi aðalskipulagi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar og hafnar erindinu þar sem það samræmist ekki gildandi aðalskipulagi. Samkvæmt skilmálum aðalskipulags er ekki heimilt að veita meira en þrjár byggingarlóðir á hverri bújörð án deiliskipulags. Ef jörð er skipt upp fylgja ekki nýjar heimildir nema jarðarhlutar séu að lágmarki 30ha. Gildandi aðalskipulag gerir ekki ráð fyrir að stofnuð séu ný íbúða- eða frístundasvæði.
4. E2602006 - Afmörkun á lóðinni Sólveigarstaðir (L152597) - Merkjalýsing
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing unnin af Hákoni Jenssyni, dags. 21.08.2025, þar sem afmörkun lóðarinnar Sólveigarstaðir (L152597) er hnitsett
Skipulagsnefnd hefur tekið erindið til afgreiðslu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða merkjalýsingu á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
Linda Margrét Sigurðardóttir víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.
5. E2602008 - Ölduhverfi - ósk um breytingu á deiliskipulagi
Erindi frá Ölduhverfi ehf um breytingu á deiliskipulagi sem tekur til raðhúsa við Bogöldu 8-18. Breytingin felur í sér að tveimur raðhúsalengjum með þremur íbúðum hvor (R1) verði breytt í fjórar íbúðir hvor (R3), samtals fjölgun um tvær íbúðir.
Linda Margrét Sigurðardóttir víkur af fundi undir þessum fundarlið.
Skipulagsnefnd hefur tekið erindið til afgreiðslu.
Sveitarstjórn samþykkir erindið samhljóða sem óverulega deiliskipulagsbreytingu skv. 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem erindið varðar ekki hagsmuni annarra en málshefjanda og sveitarfélagsins skal fallið frá grenndarkynningu, sbr. 3.mgr. 44.gr. sömu skipulagslaga.
Sveitarstjórn tekur fram að breytingin eigi ekki að leiða til aukningar á heildarfjölda íbúða á skipulagssvæðinu og það þurfi að taka tillit til þess annars staðar í skipulaginu.
6. E2602003 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Espihóll efnistaka
Tekin fyrir framkvæmdaleyfisumsókn dags. 29.01.2026 þar sem Svana Ósk Rúnarsdóttir sækir um framkvæmdaleyfi fyrir 25.000 m3 efnistöku úr malarkambi á jörðinni Espihóli.
Skipulagsnefnd hefur tekið erindið til afgreiðslu.
Sveitarstjórn vísar erindinu í yfirstandandi endurskoðun aðalskipulags og felur skipulagshönnuði að taka tillit til þess við áframhaldandi vinnu.
7. E2602014 - Vegagerðin - leiðbeiningar um gerð samgöngumats
Vegagerðin kynnir nýútgefnar leiðbeiningar um gerð samgöngumats en tilgangur þess er m.a. að kortleggja áform sveitarfélaga með tilliti til áhrifa þeirra á umferð og samgönguinnviði.
Lagt fram til kynningar.
8. E2602013 - Óshólmanefnd - fundargerð 4.02.2026
Fundargerð Óshólmanefndar dags. 4. febrúar 2026 lögð fram til kynningar.
Skipulagsnefnd hefur tekið ábendingarnar til umræðu og mun vinna áfram með þær á næstu stigum afgreiðslu.
Sveitarstjórn þakkar ábendingar Óshólmanefndar.
9. E2602017 - Ytri-Hóll 3c - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Sigfús Hreiðarsson sækir um stöðuleyfi fyrir tjaldhýsi á jörðinni Ytri-Hól 3C (L226462) sbr afstöðumynd. Um er að ræða tjald sem reist yrði milli tveggja gáma sem þegar eru á staðnum sem yrði notað undir hundaþjálfun og fylgja myndir af sambærilegum tjaldhýsum erindinu.
Skipulagsnefnd hefur tekið erindið til afgreiðslu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita stöðuleyfi fyrir tjaldhýsi á Ytri-Hól 3c. Stöðuleyfið gildir í eitt ár og er erindinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
10. E2512022 - Fyrirspurn vegna gerð vegslóða í landi Tjarna L152812
Fyrir fundinum liggur umsókn um framkvæmdaleyfi til gerðar vegslóða í landi Tjarna (L152812), dagsett 16.02.2026. Fyrirhugaður vegslóði er um 2,9 km langur inn með Eyjafjarðará að austanverðu, frá Glerá og til móts við Hafrá. Jafnframt er sótt um efnistöku á 3.000 rúmmetrum af efni úr námu E27 sem ætlunin er að nýta til gerðar vegslóðans.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um erindið.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita framkvæmdaleyfi fyrir gerð vegslóða í landi Tjarna og efnistöku á 3.000 rúmmetrum af efni úr námu E27 í samræmi við umsókn og framlagðar teikningar. Lögð er áhersla á góðan frágang við gerð vegslóðans og á efnistökusvæðinu. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.
11. E2602028 - Kroppur land L179875 - umsókn um sandtöku úr Eyjafjarðará
Landeigendur Kropps lands L179875 sækja um heimild til að taka 300 rúmmetra af sandi úr Eyjafjarðará skv. meðfylgjandi afstöðumynd. Sandurinn yrði notaður til viðhalds reiðvegar.
Skipulagsnefnd hefur tekið erindið til afgreiðslu og lagði til við sveitarstjórn að ekki yrði gerð athugasemd við sandtökuna enda væri um að ræða minniháttar sandtöku landeiganda til eigin nota.
Í kjölfar fundar skipulagsnefndar hefur sveitarstjórn borist ábending um óvissu eignarhalds á viðkomandi landi.
Meðan óvissa er um eignarhaldið mun sveitarstjórn ekki heimila fyrir sitt leiti efnistöku á umræddu svæði og er erindinu því hafnað.
12. E2601001 - Sigtún - Umsókn um byggingarheimild
Byggingarfulltrúa hefur borist byggingarleyfisumsókn frá Aðalbjörgu Þórólfsdóttur þar sem hún sækir um byggingu vélaskemmu á jörðinni Sigtúni L152764 sbr. meðfylgjandi aðaluppdrætti. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu og óskar byggingarfulltrúi umsagnar nefndarinnar um áformin.
Skipulagsnefnd hefur tekið erindið til afgreiðslu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða byggingu vélaskemmu á jörðinni Sigtúni þar sem framkvæmdin er í samræmi við landnotkun og byggðamynstur. Þá samþykkir sveitarstjórn samhljóða að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem byggingaráformin varða ekki aðra en landeigendur og sveitarfélagið. Lögð er áhersla á að fyrir liggi staðfesting allra eigenda jarðarinnar um að þeir samþykki byggingaráformin áður en framkvæmdaleyfi er gefið út.
Sveitarstjórn bendir á að í umsókn um byggingarleyfi vélaskemmunnar er misritun þar sem fram kemur að tegund byggingar sé íbúðar og gistihús. Áréttar sveitarstjórn að samþykki sveitarstjórnar nær eingöngu til vélaskemmu.
13. E2512005 - Samstarf vegna verkefnis um lýðræðisþátttöku innflytjenda í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga
Samstarf vegna verkefnis um lýðræðisþátttöku innflytjenda í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga
Lagt fram til kynningar.
14. E2601016 - Mötuneyti - útboð 2026
Fyrir fundinum liggja drög að útboðslýsingu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að útboðsgögnum vegna Mötuneytis. Sveitarstjóra falið að setja útboðsferlið í gang.
15. E2602026 - Sala á viðbyggingum við leikskólann
Lagður er fram til kynningar kaupsamningur vegna viðbygginga við leikskólann. Gengið hefur verið frá samningnum og verða eignirnar fjarlægðar sumarið 2026.
Lagt fram til kynningar.
16. E2512002 - Samningur um velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu
Tekinn er til annarrar umræðu samningur Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps, Hörgársveitar og Svalbarðsstrandarhrepps um velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu.
Sveitarstjórn lýkur síðari umræðu um samning við Akureyrarbæ um Velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu.
Samningurinn er samþykktur samhljóða og sveitarstjóra falið að skrifa undir hann fyrir hönd sveitarfélagsins.
Ljóst er að samningurinn leiðir til umtalsverðs kostnaðarauka í málaflokkunum en umfang þjónustunnar er einnig töluvert meira en í fyrri samningi og aðilar sammála um að með nýjum samningi hefur að fullu verið tekið tillit til þeirra breytinga á þjónustu sem á milli þeirra hefur orðið.
Vegna kostnaðaraukans samþykkir sveitarstjórn samhljóða viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 upp á 25,6 m.kr.- og verður því mætt með lækkun á handbæru fé.
31. E2601032 - SSNE - Loftlagsstefna Norðurlands eystra
Á 79. stjórnarfundi SSNE, sem haldinn var 8. janúar s.l., voru meðfylgjandi drög að loftslagsstefnu Norðurlands eystra lögð fram, en starfshópur SSNE um sameiginlega loftslagsstefnu landshlutans hefur nú lokið störfum. Stjórn samþykkti að drögin yrðu send til umfjöllunar í sveitarstjórnum innan SSNE og óskaði eftir því að athugasemdir eða ábendingar varðandi drögin berist í síðasta lagi þann 4.mars næstkomandi.
Sveitarstjórn bendir á að mikilvægt sé að bæta við undirkafla um "Skóg- og skjólbeltarækt í dreifbýli" í umfjöllun um Landnotkun.
32. E2512008 - Skólahreysti - Ósk um styrk fyrir endurnýjun á keppnisbúnaði o.fl.
Hreystismiðjan ehf. óskar eftir 250.000kr. styrk til hönnunar og uppbyggingar á nýjum keppnisbúnaði/keppnisvelli fyrir Skólahreysti og til að hanna og smíða nýjan tölvu/dómarabúnað til að gera leikinn sýnilegri fyrir áhorfendur.
Skólanefnd hefur tekið málið fyrir og vísað því áfram til sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn hafnar erindinu.
33. E2601029 - Beiðni G. Höddu um aðstoð við áframhaldandi samstarf við handverksfólk í Svíþjóð
Karin Lundholm, sem er sögð vera "drottningu næfursins", hefur áhuga á að koma til Íslands og vera með sýningu og námskeið. Guðrún Bjarnadóttir (Hadda) hefur verið í tengslum við Karin sem og annað handverksfólk sem sótt hefur Handverkshátíðina á Hrafnagili í gegnum árin og spyr, fyrir hönd Handraðans, hvort sveitarfélagið hafi áhuga á að bjóða Karin að vera með sýningu í sveitinni en það sé næsta skref fyrir hana til að sækja um styrki þess efnis.
Velferðar- og menningarnefnd tók erindið fyrir á 20.fundi sínum og samþykkti að bjóða Karin Lundholm aðstöðu til að halda sýningu og námskeið í sveitarfélaginu með fyrirvara um að eftir eigi að útfæra verkefnið að fullu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu Velferðar- og menningarnefndar um að bjóða Karin Lundholm að halda sýningu og námskeið í húsakynnum sveitarfélagsins og leggur til aðstöðu án endurgjalds vegna þess. Lögð er áhersla á að aðgangur gesta að sýningu og/eða fyrirlestri verði frír.
Fundargerðir til kynningar
17. E2602018 - SSNE - Fundargerð 80. stjórnarfundar
Lögð fram til kynningar 80. fundur stjórnar SSNE.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
18. E2602015 - Norðurorka - Fundargerð 317. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 317.fundar stjórnar Norðurorku.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
19. E2602016 - Norðurorka - Fundargerð 318. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 318.fundar stjórnar Norðurorku.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
20. E2602029 - Norðurorka - Fundargerð 319. fundar
Fundargerð 319. fundar stjórnar Norðurorku lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
21. E2601039 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 992
Lögð fram til kynningar fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
22. E2602031 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 993
Fundargerð 993. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
23. 2602002F - Atvinnu- og umhverfisnefnd - 20
Fundargerð 20. fundar atvinnu- og umhverfisnefndar lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
24. 2602011F - Atvinnu- og umhverfisnefnd - 21
Fundargerð 21. fundar atvinnu- og umhverfisnefndar lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
25. 2602003F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 446
Fundargerð 446. fundar skipulagsnefndar lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
26. 2602012F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 447
Fundargerð 447. fundar skipulagsnefndar lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
27. 2601010F - Framkvæmdaráð - 167
Fundargerð 167. fundar framkvæmdaráðs lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
28. 2602005F - Ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar - 13
Fundargerð 13. fundar ungmennaráðs lögð fram til kynningar.
Sveitarstjórn þakkar frumkvæði og ábendingar Ungmennaráðs og felur framkvæmdaráði að horfa til niðurstöðu könnunar og ábendinga Ungmennaráðs við áframhaldandi vinnu við skólalóðina. Sveitarstjórn þakkar frumkvæði og ábendingar Ungmennaráðs og felur framkvæmdaráði að horfa til niðurstöðu könnunar og ábendinga Ungmennaráðs við áframhaldandi vinnu við skólalóðina.
29. 2602004F - Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar - 283
Fundargerð 283. fundar skólanefndar lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
30. 2601009F - Velferðar- og menningarnefnd - 20
Fundargerð 20. fundar velferðar- og menningarnefndar lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00