Dagskrá:
Almenn erindi
1. E2210043 - Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022
Vinnslutillaga endurskoðaðs Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar var kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 19.02 til 05.03 2026. Opinn íbúafundur var haldinn 25. febrúar síðastliðinn. 12 umsagnir bárust við kynninguna og eru þær til umfjöllunar nefndarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum og ábendingum skipulagsnefndar við gerð Aðalskipulagstillögu. Aðalskipulagstillagan verði síðan tekin aftur fyrir nefndina.
Sveitarstjórn felur skipulagshönnuði að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum og ábendingum skipulagsnefndar við gerð Aðalskipulagstillögu. Aðalskipulagstillagan verði síðan tekin aftur fyrir að lokinni yfirferð skipulagsnefndar.
2. E2509010 - Hótel við skógarböðin - DSK breyting vegna hreinsistöðvar
Grenndarkynningu óverulegrar deiliskipulagsbreytingar Skógarbaða og hótels vegna staðsetningar hreinsistöðvar lauk 27. febrúar sl. og bárust 5 umsagnir við breytinguna.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að afgreiðslu málsins verði frestað þar sem ábendingar bárust á grenndarkynningartíma og þörf er á uppfærðum gögnum áður en endanleg afstaða er tekin. Skipulagsfulltrúa er falið að kalla eftir uppfærðum gögnum frá skipulagshönnuði með hliðsjón af framkomnum umsögnum. Málið verður tekið fyrir að nýju þegar gögn hafa borist og grenndarkynnt að nýju skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins þar til skipulagsnefnd hefur lokið yfirferð sinni.
3. E2602045 - Hólshús - beiðni um breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis
Lóðarhafi Vörðuhóls (L203110) óskar eftir heimild til að breyta deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Hólshúsa sbr. meðfylgjandi erindi frá Landslagi dags. 27.02.26. Breytingin snýst um byggingarmagn lóðarinnar Vörðuhóls. Gildandi deiliskipulag fylgir fundargögnum til glöggvunar.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt sem óveruleg deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem erindið varðar ekki hagsmuni annarra en málshefjanda og sveitarfélagsins skal fallið frá grenndarkynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. sömu skipulagslaga. Skipulagsfulltrúa er falið að kalla eftir breytingarblaði deiliskipulagsbreytingarinnar og fullnusta deiliskipulagsbreytinguna þegar öll gögn liggja fyrir.
Sveitarstjórn samþykkir erindið sem óverulega deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem erindið varðar ekki hagsmuni annarra en málshefjanda og sveitarfélagsins skal fallið frá grenndarkynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. sömu skipulagslaga. Skipulagsfulltrúa er falið að kalla eftir breytingarblaði deiliskipulagsbreytingarinnar og fullnusta deiliskipulagsbreytinguna þegar öll gögn liggja fyrir.
4. E2602030 - Vökuland III - Umsókn um byggingarheimild
Byggingarfulltrúa hefur borist umsókn um byggingarleyfi frá Ævari Guðmundssyni fyrir hönd eigenda Vökulands III (L226520) þar sem sótt er um að byggja um 30 fermetra viðbyggingu við suðurhlið íbúðarhússins sbr. meðfylgjandi umsókn og aðaluppdrætti. Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið og óskar byggingarfulltrúi því umsagnar nefndarinnar um áformin.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að vísa erindinu í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.
Sveitarstjórn vísar erindinu í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.
5. E2512019 - Húsnæðisáætlun Eyjafjarðarsveitar 2026
Fyrir fundinum liggja uppfærð drög að húsnæðisáætlun fyrir árið 2026, unnin í framhaldi af umfjöllun skipulagsnefndar á fundi 09.03.2026 og sveitarstjórnar 15.01.2026.
Sveitarstjórn hefur farið yfir framlagða áætlun og samþykkir hana samhljóða. Húsnæðisáætlunin verður birt á heimasíðu sveitarfélagsins í samræmi við lög. Sveitarstjórn felur skipulagsnefnd að hafa húsnæðisáætlunina til hliðsjónar við gerð aðalskipulags.
Húsnæðisáætlun gefur til kynna að nægilegt magn byggingarheimilda innan deiliskipulaga sé til að anna eftirspurn næstu 10 ára miðað við háspá íbúaþróunar og þannig sé ekki tilefni til að opna á fleiri deiliskipulög á því tímabili.
6. E2602033 - UMSE - Gull stuðningsaðild að UMFÍ Landsmóti 50 sumarið 2026
Beiðni frá mótsstjórn Landsmóts UMFÍ 50 um að Eyjafjarðarsveit gerist svokallaðir GULL samstarfsaðila að mótinu í ár.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar fagnar því að Landsmót UMFÍ 50 verði haldið í Eyjafjarðarsveit dagana 26.-28. júní 2026. Slíkir viðburðir eru mikilvægir fyrir samfélagið, efla hreyfingu og félagsstarf eldri aldurshópa og stuðla að jákvæðri kynningu á svæðinu.
Sveitarstjórn þakkar Ungmennasambandi Eyjafjarðar og Ungmennasambandi Íslands fyrir frumkvæðið og undirbúning mótsins og lýsir yfir stuðningi við framkvæmd þess. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að verða gull samstarfsaðili að mótinu og veita framlag að upphæð kr. 500.000 vegna verkefnisins sem fellur vel að markmiðum sveitarfélagsins um Heilsueflandi samfélag.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að ganga frá nánari útfærslu á samkomulaginu við mótshaldara.
7. E2602034 - Félag kraftamanna - Víkingurinn 2026
Beiðni um styrk vegna Víkingsins keppni sterkustu manna landsins.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar þakkar erindi frá Félag kraftamanna vegna viðburðarins VÍKINGURINN 2026 og þann áhuga sem sýndur er á að koma með keppnina í sveitarfélagið.
Sveitarstjórn hefur farið yfir erindið en sér sér því miður ekki fært að verða við beiðninni að þessu sinni. Sveitarstjórn þakkar fyrir að sveitarfélaginu hafi verið boðin þátttaka í verkefninu og óskar aðstandendum velfarnaðar við undirbúning og framkvæmd keppninnar.
8. E2311010 - Ríkisjarðirnar Háls og Saurbær
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir hafa lokið yfirferð vegna verðmata á ríkisjörðunum Hálsi og Saurbæ og liggja gögn frá þeim fyrir fundinum.
Í samskiptunum kemur fram að fulltrúi fjármálaráðuneytisins leggur áherslu á að það sé einungis sveitarfélagið sem eigi kaupréttinn, sbr. 35. gr. jarðalaga um sölu til sveitarfélaga. Að hluta eignanna eða að öllu leyti.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra og oddvita sveitarstjórnar að eiga samtal við ríkiseignir um framhaldið í samræmi við umræður á fundinum.
9. E2510009 - Sýslum. á Norðurl.eystra - Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá Yard ehf. vegna Austurhlíðar
Sveitarstjórn felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna erindið og frestar afgreiðslu þess þar til að grenndarkynningu lokinni.
Í grenndarkynningu skuli nágrönnum bent á að um sé að ræða svæði sem óskað hafi verið eftir að landnotkunarflokk verði breytt í Verslun- og þjónustu í yfirstandandi aðalskipulagsvinnu.
10. E2603002 - Félags-og húsnm.rn. - Ósk um tilnefningar í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Eyjafjörð
Sveitartjórn lýsir sig reiðurbúna til stuðnings við vinnuna en sökum þess að önnur sveitarfélög eiga umtalsvert meiri aðkomu að strandlengju Eyjafjarðar þá gerir sveitarfélagið ekki tilkall til sætis í svæðisráðinu.
Sveitarstjórn leggur þó áherslu á að haft verði ríkt og gott samráð við sveitarfélagið í öllu ferlinu.
11. E2603007 - Norðurorka - Tillögur að breytingum á samþykktum
Fyrir fundinum liggja drög að breytingum á samþykktum Norðurorku sem send voru eigendum Norðurorku hf. til umfjöllunar og óskað eftir athugasemdum við drögin ef við á. Þá býður NO upp á það að forstjóri og lögfræðingur Norðurorku komi til fundar með hluthöfum á staðarfund eða í fjarfundi, til að veita svör við spurningum sem upp kunna að koma.
Sveitarstjórn fagnar því að fá drögin til umsagnar.
Sveitarstjórn telur nauðsynlegt að skýra betur hlutverk Norðurorku sem innviðafyrirtækis sem starfar í þágu íbúa þeirra sveitarfélaga sem þjónustusvæði Norðurorku nær til. Tilgreina þurfi það í 2. grein samþykktanna.
Sveitarstjórn er sátt við faglega nálgun varðandi stjórn og hlutverk stjórnar, en telur 21. grein mögulega ganga gegn því sjálfstæði stjórnar og armslengdar hennar frá pólitískri stjórnun sem annars er verið að leitast eftir með breytingum samþykktanna.
Að öðru leyti gerir sveitarstjórn ekki athugasemdir við drögin sjálf, en leggur hins vegar áherslu á að minni hluthafar verði áfram með áheyrnarfulltrúa í stjórn svo sem verið hefur. Jafnframt að áheyrnarfulltrúi fái laun fyrir sína fundarsetu sem ekki hefur verið til þessa.
Loks telur sveitarstjórn eðlilegt, og fer fram á, að minni hluthafar fái beina aðkomu að ferli við val óháðra stjórnarmanna og varamanna þeirra.
12. E2509043 - Beiðni um endurupptöku og endurskoðun á ákvörðun sveitarstjórnar um synjun á erindi vegna deiliskipulags og breytingar á aðalskipulagi fyrir Stekkjarhól
Fyrir fundinum liggur niðurstaða Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Lagt fram til kynningar.
13. E2602004 - Skógræktarfélag Eyfirðinga samningur 2026-2027
Tekin eru fyrir drög að samning við Skógræktarfélag Eyfirðinga árin 2026-2027.
Máið var síðast tekið fyrir á 671. funddi sveitarstjórnar þar sem sveitarsrtjóra var falið að lagfæra orðalag í samræmi við umræður á fundinum.
Fyrir fundinum liggja nú lagfærð drög.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög af samningi við Skógræktarfélag Eyfirðinga fyrir árin 2026-2027.
14. E2602032 - Hopp Akureyri - Hrafnagilshverfi
Hopp Akureyri hefur spurst fyrir um það hvort áhugi sé fyrir hendi til að þjónusta þeirra nái í Hrafnagilshverfi.
Framkvæmdaráð tók erindið fyrir á 168. fundi sínum þar sem það tók jákvætt í hugmyndir að aukinni fjölbreytni sem felst í fararskjótum Hopp milli Hrafnagilshverfis og Akureyrarbæjar og beindi erindinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Framkvæmdaráð lagði áherslu á við sína afgreiðslu að ef af þjónustunni verði þá sé rík áhersla lögð á að Hopp hjól séu eingöngu skilin eftir á afmörkuðum stöðum og fjarlægð fljótt þegar þau eru rafmagnslaus eða utan þjónustu.
Sveitarstjórn tók fyrir erindi vegna mögulegrar útvíkkunar þjónustu Hopp þannig að hún nái til Hrafnagilshverfis.
Sveitarstjórn tekur undir afgreiðslu framkvæmdaráðs og lýsir jákvæðni gagnvart því að kanna möguleika á aukinni fjölbreytni í samgöngum milli Hrafnagilshverfis og Akureyrar með slíkri þjónustu. Sveitarstjórn leggur þó ríka áherslu á að ef af þjónustunni verður þá verði samið sérstaklega um að farartæki verði eingöngu skilin eftir á skilgreindum og afmörkuðum stöðum og að þau verði fjarlægð tafarlaust þegar þau eru rafmagnslaus eða utan þjónustu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að ganga til samninga við Hopp um þjónustuna, enda verði framangreind skilyrði tryggð í samningi. Samningurinn verði til reynslu til eins árs og framhaldið endurskoðað að því liðnu.
15. E2505007 - UMFÍ - Landsmót 50 ára og eldri í Eyjafjarðarsveit 2026
Unirbúningur vegna Landsmóts UMFÍ 50 í Eyjafjarðarsveit og er í fulllum gangi. Stefnt er á að á lokadegi mótsins, sunnudaginn 28.júní, verði sérstakt "fjölskyldufjör" haldið í Hrafnagilshverfinu eftir hádegi. Þar getur öll fjölskyldan tekið þátt í fjölbreyttri dagská og verkefnum sem öll miða að hreyfingu og því að hafa gaman saman.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar tók fyrir erindi frá mótshöldurum Landsmót UMFÍ 50 2026 þar sem óskað er eftir að aðgangur að sundlauginni í Hrafnagilshverfi verði gjaldfrjáls sunnudaginn 28. júní 2026 í tengslum við dagskrá fjölskyldufjörs á lokadegi mótsins.
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið enda fellur viðburðurinn vel að markmiðum mótsins um hreyfingu, heilsueflingu og samveru fjölskyldna. Sveitarstjórn samþykkir því samhljóða að aðgangur að sundlauginni verði gjaldfrjáls þann dag.
Fundargerðir til kynningar
16. 2603001F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 448
Lögð fram til kynningar fundargerð 448. fundar skipulagsnefndar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
17. E2602035 - Norðurorka - Fundargerð 320. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 320. fundar stjórnar Norðurorku.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
18. E2603008 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 994
Lögð fram til kynningar fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
19. 2602016F - Framkvæmdaráð - 168
Lögð fram til kynningar fundargerð 168. fundar framkæmdaráðs.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:45