Dagskrá:
Almenn erindi
1. E2210043 - Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022
Tekin til umfjöllunar áform landeigenda sem bárust við kynningu vinnslutillögu endurskoðunar aðalskipulags. Jafnframt liggur fyrir álit Náttúrufræðistofnunar vegna hugmynda um nýtt efnistökusvæði í austari kvísl Eyjafjarðarár og umsögn HMS um vinnslutillöguna dags. 20 mars 2026. Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 449. fundi sínum.
Sigríður Bjarnadóttir vék af fundi við umræður og afgreiðslu um efnistöku í landi Hólsgerðis.
Sveitarstjórn felur skipulagshönnuði að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum, afgreiðslu skipulagsnefndar á samanteknum áformum landeigenda og viðbrögðum HMS við gerð aðalskipulagstillögu. Aðalskipulagstillagan verði send Skipulagsstofnun til athugunar skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar uppfærð tillaga liggur fyrir.
2. E2603004 - Sölvastaðir - umsókn um byggingarreit fyrir starfsmannahús
Tekin fyrir að nýju umsókn Sölvastaða ehf. um að breyta deiliskipulagi Sölvastaða svínabús vegna áforma um að bæta við byggingarreit fyrir starfsmannahús innan skipulagssvæðisins. Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 449. fundi sínum.
Sveitarstjórn vísar breytingartillögu á deiliskipulaginu í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.
3. E2603009 - Háaborg 2 L174046 - umsókn um stofnun lögbýlis
Óðinn Ásgeirsson óskar umsagnar sveitarfélagsins um umsókn hans til Atvinnuvegaráðuneytis um stofnun lögbýlis að Háuborg 2 (L174046) sbr. meðfylgjandi skjöl. Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 449. fundi sínum.
Sveitarstjórn samþykkir stofnun lögbýlis á Háuborg 2 L174046 enda uppfyllir jörðin skilgreiningu 7. mgr. 2. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og skilyrði Atvinnuvegaráðuneytis um að vera skráð lögbýli.
4. E2411037 - Melgerðismelar - L219983 Deiliskipulag - Flugslóð
Kynningu vinnslutillögu nýs deiliskipulags fyrir flugskýli á Melgerðismelum lauk 18. mars sl. 8 umsagnir bárust við tillöguna og eru þær til umfjöllunar nefndarinnar. Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 449. fundi sínum.
Sveitarstjórn felur skipulagshönnuði að hafa innkomnar umsagnir ISAVIA og Samgöngustofu til hliðsjónar varðandi hindrunarflöt flugbrautar og fjarlægð flugskýla við flugbraut við mótun skipulagstillögu. Svo breytt skipulagstillaga verði síðan auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
5. E2601009 - Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis
Kynningu skipulagslýsingar vegna deiliskipulags íbúðarsvæðis á Syðri-Varðgjá lauk 18. mars sl. og bárust 6 umsagnir sem eru nú til umfjöllunar nefndarinnar. Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 449. fundi sínum.
Sveitarstjórn felur skipulagshönnuði að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum við gerð skipulagstillögu. Hafa þarf samráð við Vegagerðina vegna hönnunar aðkomu á skipulagssvæðið og einnig er bent á umsögn HMS um fjarlægð íbúðar- og frístundahúsa frá stofn- og tengivegum. Skipulagstillagan verði síðan lögð fyrir sveitarstjórn að nýju.
6. E2404000 - Breyting á Aðalskipulagi Akureyrarbæjar 2018-3030 vegna Blöndulínu 3 - umsagnarbeiðni
Akureyrarbær óskar umsagnar sveitarfélagsins um breytingu á Aðalskipulagi Akureyrarbæjar 2018-2030 vegna Blöndulínu 3 sem er nú í auglýsingu skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga og er umsagnarfrestur til 23. apríl nk.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við erindið fyrir sitt leyti.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við erindið fyrir sitt leyti.
7. E2505032 - Endurskoðun Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 - umsagnarbeiðni
Svalbarðsstrandarhreppur óskar umsagnar sveitarfélagsins um endurskoðun Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps sem er í auglýsingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er umsagnarfrestur til 29. apríl nk.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við erindið fyrir sitt leyti.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við erindið fyrir sitt leyti.
8. E2512013 - Endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar 2012-2024 - Umsagnarbeiðni
Hörgársveit óskar umsagnar sveitarfélagsins um endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar sem er í auglýsingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er umsagnarfrestur til 30. apríl nk.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við erindið fyrir sitt leyti.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við erindið fyrir sitt leyti.
9. E2603010 - Minjasafnið á Akureyri - Rekstrarreikningur Smámunasafnsins 2025
Lagður fram rekstrarreikningur Smámunasafnsins fyrir árið 2025.
Lagt fram til kynningar.
Ljóst er að kostnaður við Smámunasafnið á árinu 2025 fer langt fram úr áætlun. Skýrist það af því að reikningur vegna ársins 2024 barst seint og féll á árið 2025, þá berst reikningur vegna ársins 2025 einnig seint. Báðir reikningar bókast á árið 2025 og kostnaður verður því ríflega tvöfaldur á við áætlun.
Sveitarstjóra falið að setja upp samningsdrög við Minjasafnið fyrir næsta fund sveitarstjórnar.
10. E2603011 - Kirkjugarðar Laugalandsprestakalls - Stækkun kirkjugarðsins á Grund, erindi Minjastofnunar
Lagt fram bréf frá stjórn kirkjugarða Laugalandsprestakalls til sveitarstjórnar vegna fyrirhugaðrar stækkunar kirkjugarðsins á Grund.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að taka kostnað við könnunarskurð á umræddu framkvæmdasvæði. Aðstæður verða metnar aftur ef eitthvað kemur í ljós við könnunina. Sveitarsjóra falið að vera í sambandi við Minjastofnun vegna framkvæmdarinnar.
11. E2603020 - Frumvarp til nýrra sveitarstjórnalaga
Lagt fram til kynningar frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga.
Beðið er eftir minnisblaði ráðgjafa vegna frumvarpsins. Málið aftur rætt á næsta fundi.
Sveitarstjórn gerir alvarlega athugasemd við þann stutta frest sem gefinn er til umsagna.
12. E2601016 - Mötuneyti - útboð 2026
Sveitarstjórn tekur fyrir niðurstöðu útboðs vegna reksturs mötuneytis Eyjafjarðarsveitar. Útboðið var auglýst þann 2. mars 2026.
Fyrir liggja tilboð sem hafa verið yfirfarin og metin samkvæmt fyrirfram skilgreindum matsviðmiðum. Nú liggur fyrir tillaga um val á tilboði sem sveitarstjórn er falið að taka afstöðu til.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagt tilboð í rekstur mötuneytis Eyjafjarðarsveitar. Einungis eitt tilboð barst í verkefnið frá ÆDI ehf.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að ganga til samninga á grundvelli tilboðsins.
13. E2603026 - Vinnuskólinn 2026
Lagður fram samanburður á heildartímum og tímabilum í vinnuskólum við Eyjafjörð.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fjölga tímum sem hver nemandi við vinnuskóla Eyjafjarðarsveitar má vinna. Fjöldi vinnustunda verður sem hér segir:
14 ára fá að vinna allt að 100 stundir.
15 ára fá að vinna allt að 120 stundir.
16 ára fá að vinna allt að 160 stundir.
Laun verða sem hér segir með orlofi:
2012 árgangur 1.583 kr/per tíma
2011 árgangur 1.727 kr/per tíma
2010 árgangur 2.195 kr/per tíma
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna aukins kostnaðar upp á 2 milljónir króna vegna fjölgunar vinnustunda. Kostnaði mætt með lækkun á handbæru fé.
14. E2603029 - Akureyrarbær - Skýrsla vinnuhóps um málefni fatlaðs fólks
Lagt fram til kynningar.
15. E2602011 - Leikskólinn Krummakot - Skóladagatal 2026-2027
Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að skóladagatal Krummakots veturinn 2026-2027 verði samþykkt. Auk þess leggur skólanefnd til við skólastjóra Hrafnagilsskóla og Krummakots að nýta sameiginlegan starfsdag til samvinnu milli skólanna.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi skóladagatal Krummakots fyrir skólaárið 2026-2027. Sveitarstjórn tekur undir áherslur skólanefndar að einhver sameiginlegur starfsdagur verður nýttur til samvinnu milli skólanna.
16. E2602010 - Hrafnagilsskóli - Skóladagatal 2026-2027
Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að skóladagatal Hrafnagilsskóla veturinn 2026-2027 verði samþykkt. Auk þess leggur skólanefnd til við skólastjóra Hrafnagilsskóla og Krummakots að nýta sameiginlegan starfsdag til samvinnu milli skólanna.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi skóladagatal Hrafnagilsskóla fyrir skólaárið 2026-2027. Sveitarstjórn tekur undir áherslur skólanefndar að einhver sameiginlegur starfsdagur verður nýttur til samvinnu milli skólanna.
17. E2603014 - Skólanefnd - Vistunartími yngstu barna í leikskóla
Skólanefnd er hlynnt því að reynt verði að stytta vistunartíma yngstu barna. Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að rætt verði við foreldraráð Krummakots um tillögur stjórnunarteymis Krummakots um vistunartíma fyrir börn á aldrinum 12 - 24 mánaða og börn sem eiga foreldra í fæðingarorlofi. Lögð verði áhersla á að hagsmunir barnanna verði hafðir að leiðarljósi. Einnig samþykkir skólanefnd að beina því til sveitarstjórnar að gjöld fyrir vistun utan skráðs vistunartíma verði uppfærð í samræmi við aukinn launakostnað sem af þessu hlýst.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að setja fram tillögu af uppfærðu gjaldi fyrir vistun utan skráðs vistunartíma.
Sveitarstjórn óskar eftir við skólastjórnendur leikskólans að vinna minnisblað með foreldraráði um það hvernig nálgast megi það verkefni að draga úr vistunartíma yngstu nemenda á leikskólanum (12-24 mánaða).
18. E2603015 - Hrafnagilsskóli - Ósk um viðbótartíma til tónmenntakennslu
Skólanefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að heimila að auka við stöðugildi í tónmenntakennslu í samræmi við minnisblað skólastjóra Hrafnagilsskóla. Þannig verði komið til móts við öfluga tónmenntakennslu og tónlistaruppeldi, bæði í Hrafnagilsskóla og Krummakoti.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að aukið verði við stöðugildi í tónmenntakennslu í samræmi við minnisblað skólastjórnenda frá og með upphafi næsta skólaárs enda hefur nemendafjöldi aukist umtalsvert á síðustu árum.
19. E2603033 - Framlög til framboða til sveitarstjórnar
Lagðar fram viðmiðunarreglur um framlög til stjórnmálaflokka.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að þau framboð sem bjóða fram til sveitarstjórnar í Eyjafjarðarsveit 2026, fái framlag kr. 350.000.- vegna áætlaðs útlagðs kostnaðar við framboð listanna árið 2026.
Listarnir þiggja ekki árleg framlög á kjörtímabilinu líkt og gert er ráð fyrir í viðmiðunarreglum um framlög sveitarfélaga til stjórnmálasamtaka.
20. E1901017 - Húsnæðismál grunn- og leikskóla
Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að teikningar verði yfirfarnar með tilliti til þess sem fram kemur á minnisblaði.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að bæta við þriðju skrifstofu í rými stjórnenda þar sem nú er gert ráð fyrir tveimur. Þetta er óveruleg breyting og hefur engin áhrif á fjárhagsáætlun.
21. E2502037 - Fasteignir Eyjafjarðarsveitar
Lagt fram kauptilboð í Skólatröð 13.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagt kauptilboð í fasteignina Skólatröð 13 upp á 87,7 milljónir króna.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að ganga frá samningi um sölu eignarinnar í samræmi við framlagt tilboð.
27. E2603024 - Grænahlíð L152615 - umsókn um byggingarreit fyrir fjós
Dalanaut ehf. sækir um byggingarreit fyrir um 4000 fermetra fjósbyggingu á jörðinni Grænuhlíð norðan við núverandi fjós sbr. meðfylgjandi afstöðumynd frá Ívari Ragnarssyni dags. 17.03.26 Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að byggingarreitur sé færður þannig að hann verði að lágmarki 50 metra frá tengivegi til samræmis við reglur Vegagerðarinnar. Svo breytt umsókn verði samþykkt. Lagt er til að fallið sé frá grenndarkynningu skv. 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem byggingaráformin varða ekki aðra en landeigendur og sveitarfélagið.
Sveitarstjórn beinir því til skipulagsfulltrúa og skipulagsnefndar að kalla eftir áliti Veðurstofunnar vegna ofanflóðamats áður en erindið er afgreitt.
Fundargerðir til kynningar
22. E2603012 - HNE - Fundargerð 246
Lögð fram til kynningar fundargerð 246. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
23. E2603018 - SSNE - Fundargerð 81. stjórnarfundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 81. fundar stjórnar SSNE.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
24. E2603027 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 995
Lögð fram til kynningar fundargerð 995. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
25. 2603005F - Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar - 284
Lögð fram til kynningar fundargerð 284. fundar skólanefndar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
26. 2603014F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 449
Lögð fram til kynningar fundargerð 449. fundar skipulagsnefndar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00