Sveitarstjórn

675. fundur 16. apríl 2026 kl. 08:00 - 10:45 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Linda Margrét Sigurðardóttir
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Anna Guðmundsdóttir
  • Ásta Arnbjörg Pétursdóttir var fjarverandi en fundinn sat Guðmundur S. Óskarsson
  • Sigurður Ingi Friðleifsson
  • Sigríður Bjarnadóttir
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
 
Dagskrá:
 
Almenn erindi
1. E1901017 - Húsnæðismál grunn- og leikskóla
Fyrir fundinum liggur samantekt sveitarstjóra á kostnaði við byggingu nýs leikskóla og leikskólalóðar.
 
Sveitarstjórn þakkar sveitarstjóra fyrir yfirferð á kostnaði við uppbyggingu leikskólans Krummakots. Fram kom að beinn óverðbættur kostnaður við byggingu og lóð nemur um 993 milljónum króna. Þá nemur hönnunarkostnaður um 108 milljónum króna og kostnaður vegna stofnbúnaðar, gróðurhúss og stoðveggjar við Hrafnatröð um 78 milljónum króna. Verðbættur heildarkostnaður byggingar, lóðar og stoðveggjar nemur í dag um 1,4 milljörðum króna.
Sveitarstjórn fagnar þeirri gríðarlegu samheldni sem ríkt hefur í samfélaginu um uppbyggingu Krummakots sem skilað hefur sveitarfélaginu mikilvægu mannvirki og styrkir þjónustu við börn og fjölskyldur til framtíðar.
Sveitarstjórn leggur áherslu á mikilvægi þess að áfram verði unnið af ábyrgð við rekstur sveitarfélagsins og að reynsla af framkvæmdinni nýtist við undirbúning og kostnaðarmat komandi verkefna.
 
2. E2604015 - Bakkaflöt lóðir
Fyrir fundinum liggur tillaga sveitarstjóra að verðlagningu lóða á Bakkaflöt.
 
Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu sveitarstjóra um verðlagningu lóða við Bakkaflöt, þar sem miðað er við að lágmarksverð taki mið af heimiluðu byggingarmagni hverrar lóðar. Sveitarstjórn telur tillöguna fela í sér eðlilega nálgun við verðlagningu með hliðsjón af áætluðum kostnaði við gatnagerð, landkaupum og frágangi svæðisins.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að auglýsa lóðirnar til sölu í samræmi við framlagða tillögu, þannig að þær verði boðnar út og hæstbjóðandi hljóti hverja lóð, enda verði þær ekki seldar undir samþykktu lágmarksverði.
 
3. E2604012 - Þormóðsstaðavirkjun í Sölvadal í Eyjafjarðarsveit
Þar sem málið varðar fleiri aðila er óskað trúnaðar á gögnum málsins meðan það er í meðferð.
 
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins og felur sveitarstjóra að koma ábendingum til skila í samræmi við umræður á fundinum. Málið tekið aftur fyrir á næsta fundi.
 
Hermann Ingi Gunnarsson vék af fundi undir þessum lið.
4. E2603039 - Borgarhóll III - umsókn um byggingarreit
Tekin fyrir umsókn frá Fræhnútum ehf. um byggingarreit fyrir íbúðarhús/sumarhús í landi Borgarhóls III (L218453) sem byggir á nýjum upplýsingum.
 
Frestað til næsta fundar.
 
5. E2310005 - Athafnasvæði á Bakkaflöt - nýtt deiliskipulag og breyting á Aðalskipulagi
Viðbrögð HMS vegna yfirferðar stofnunarinnar á deiliskipulagi Bakkaflatar skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lögð fram. Jafnframt fylgja uppfærð deiliskipulagsgögn frá Lilium teiknistofu þar sem brugðist hefur verið við ábendingum HMS. Aðalskipulagsbreytingin vegna Bakkaflatar var staðfest 7. apríl sl.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða uppfært deiliskipulag skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda hefur verið brugðist við athugaemdum HMS, þ.m.t. athugasemd um fjarlægð byggingarreita frá vegum og eru þeir nú ekki innan við 50 m. frá stofn- og tengivegum. Skipulagsfulltrúa er falið að auglýsa deiliskipulagið í B-deild Stjórnartíðinda enda hefur Aðalskipulagsbreyting Bakkaflatar þegar öðlast gildi.
 
6. E2601009 - Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis
Tekin til umfjöllunar tillaga að deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Syðri-Varðgjár frá Landslagi ehf. dags. 30.03.26 en við útfærslu tillögunnar voru hafðar til hliðsjónar umsagnir sem bárust við kynningu skipulagslýsingarinnar.
 
Sveitarstjórn felur skipulagshönnuði að fella út textann um kjallara í kafla 4.2 þar sem það er ekki í samræmi við rammahluta aðalskipulags. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa svo breyttri deiliskipulagstillögu í kynningu skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
7. E2604002 - Núpá og Þormóðsstaðaá - beiðni um breytingu á aðalskipulagi vegna vatnsaflsvirkjana
Erindi frá Arctic Hydro hf. sem áformar að reisa allt að 7,0 MW vatnsaflsvirkjun í Núpá og allt að 3,0 MW vatnsaflsvirkjun í Þormóðsstaðaá í Sölvadal. Framkvæmdin krefst breytinga á Aðalskipulagi og er óskað eftir því að sveitarfélagið hefji vinnu við breytinguna. Erindinu fylgir uppdráttur sem sýnir afstöðu helstu mannvirkja skv. frumhönnun.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að heimila málsaðila að vinna skipulagslýsingu skv. 1. mgr. 30 gr. og 1. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
8. E2601024 - Eyjafjarðarbraut eystri - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundna haugsetningu og vinnslu efnis
N10b ehf. sækir um framlengingu til 2-3 mánaða á framkvæmdaleyfi til tímabundinnar haugsetningar á grjóti og efnisvinnslu á tanga vestan Eyjafjarðarbrautar eystri. Núverandi framkvæmdaleyfi, sem samþykkt var í sveitarstjórn 29. janúar sl., rennur út 15. apríl nk.
 
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu erindisins til næsta fundar og kallar eftir afstöðu Óshólmanefndar.
 
9. E2403029 - Ytri-Varðgjá - umsókn um stöðuleyfi fyrir skemmu
N10b ehf. sækir um framlengingu til eins árs á stöðuleyfi fyrir 450 fm skemmu á plani við Ytri-Varðgjá en byggingin er nýtt við fyrirhugaðar framkvæmdir á jörðinni. Fyrra stöðuleyfi var samþykkt á fundi sveitarstjórnar 2. maí 2024.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að framlengja stöðuleyfið fyrir 450 fm skemmu á plani við Ytri-Varðgjá til eins árs og vísar erindinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
 
10. E2603020 - Frumvarp til nýrra sveitarstjórnalaga
Greinargerð um frumvarp til sveitarstjórnarlaga unnin af GB stjórnsýsluráðgjöf.
 
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar telur mikilvægt að endurskoðun sveitarstjórnarlaga fari fram í víðu samráði við sveitarfélög og með skýra virðingu fyrir sjálfstjórn þeirra, hlutverki og ólíkum aðstæðum. Sá tími sem gefinn hefur verið til verkefnisins er allt of skammur og getur það vart leitt til góðrar niðurstöðu fyrir heildina.
Sveitarfélagið hefur fengið utanaðkomandi ráðgjafa, Guðjón Bragason, til að taka saman helstu atriði fyrir sig ásamt mörgum öðrum sveitarfélögum og tekur sveitarstjórn undir þau sjónarmið sem þar koma fram. Sveitarstjórn telur að nokkur ákvæði þess séu of íþyngjandi, óskýr eða til þess fallin að auka reglubyrði án þess að ávinningur sé nægilega skýr.
Sveitarstjórn leggur sérstaka áherslu á athugasemdir við 69. gr. frumvarpsins um lögbundna fjármálastefnu. Að mati sveitarstjórnar er veruleg hætta á að sú skylda feli í sér aukið skrifræði og verði íþyngjandi fyrir minni og meðalstór sveitarfélög þar sem stjórnsýsla er einfaldari og mannafli takmarkaðri. Mikilvægt er að kröfur af þessu tagi taki mið af stærð, umfangi og rekstrarforsendum sveitarfélaga.
Sveitarstjórn telur einnig ástæðu til að horfa sérstaklega til annarra ákvæða frumvarpsins sem kunna að auka flækjustig í stjórnsýslu og samstarfi sveitarfélaga. Þar má nefna ákvæði um samvinnu sveitarfélaga, kostnaðarskiptingu og samninga við leiðandi sveitarfélag, þar sem mikilvægt er að lagaumgjörðin verði skýr, einföld og raunhæf í framkvæmd. Samstarf sveitarfélaga er víða forsenda skilvirkrar þjónustu og því þarf löggjöfin að styðja við það fremur en að gera það þyngra í vöfum.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar telur mikilvægt að áfram verði unnið að frumvarpinu í nánu samtali við sveitarfélög og Samband íslenskra sveitarfélaga, með það að markmiði að ná breiðri sátt um breytingar sem eru skýrar, málefnalegar og til þess fallnar að styrkja sveitarstjórnarstigið í heild.
 
11. E2510009 - Sýslum. á Norðurl.eystra - Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi.
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá Yard ehf. vegna Austurhlíðar
 
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstrarleyfis gistingar í flokki II frá Yard ehf. enda bárust ekki mótmæli við því á grenndarkynningartímabilinu.
 
12. E2604013 - Fyrirhuguð hækkun VSK á baðlón
Ríkisstjórn Íslands boðaði í fjármálaáætlun 2027-2031 hækkun á VSK á aðgangseyri í baðlón úr 11% í 24%.
 
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar lýsir verulegum áhyggjum af því aukna óvissuumhverfi sem atvinnurekstur í landinu býr við. Fjölmargir utanaðkomandi þættir í heimsmálum hafa skapað erfitt rekstrarumhverfi og því er enn mikilvægara en áður að stjórnvöld leggist á árarnar með atvinnulífinu til að skapa ný og öflug tækifæri fyrir þjóðina.
Sveitarstjórn hefur fengið þær upplýsingar að aukin gjöld á skemmtiferðaskip hafi leitt til afbókana og endurskoðunar á áætlunum. Fyrirvari gjaldtökunnar var skammur og rekstraraðilar því nauðbeygðir til að taka á sig skerðingu og endurskoða viðskiptasambönd sem byggð höfðu verið upp á Íslandi. Slíkar skyndilegar breytingar geta veikt samkeppnisstöðu landsins og dregið úr trausti á rekstrarumhverfinu.
Í fjármálaáætlun kemur fram fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% frá og með næstu áramótum. Sveitarstjórn hefur verulegar áhyggjur af því að það kunni að hafa neikvæðar afleiðingar fyrir ferðaþjónustu á Íslandi til lengri tíma. Þjónustuaðilar hafa í mörgum tilvikum nú þegar gefið út verð til sinna stærstu viðskiptavina og þannig myndað skuldbindingar langt fram á árið 2027. Verði breytingin samþykkt án eðlilegs aðlögunarfrests getur það leitt til tekjutaps, skertrar samkeppnishæfni og minni fjárfestingarvilja.
Löggjafavaldið verður að skapa meiri fyrirsjáanleika í atvinnulífinu og efla með því traust aðila á því viðskiptaumhverfi sem þeir starfa í. Yfirvöld verða að setja sig vel inn í hvernig viðskiptahættir í viðkomandi atvinnugrein eru stundaðir áður en leikreglum er breytt. Aðlögunarfrestur verður að vera viðunandi, ella getur það valdið tjóni sem erfitt getur reynst að vinna til baka.
 
13. E2603031 - Ungmennaráð - Erindisbréf, endurskoðun
Ungmennaráð leggur til við sveitarstjórn að erindisbréf ráðsins sé endurskoðað með það að leiðarljósi að aldursbil verði skilgreint 14-20 ára.
 
Þá verði skipað í ráðið á eftirfarandi hátt:
A) Nemendaráð Hrafnagilsskóla tilnefni tvo fulltrúa til tveggja ára í senn, tilnefning komi úr hópi nemenda í 9.bekk að lokinni lýðræðislegri kosningu. Á fyrsta ári komi þó tilnefning til eins árs úr hópi nemenda í 10.bekk svo tryggt sé að einungis annar fulltrúinn fari út í hvert skipti og þeir komi úr sitthvorum aldurshópnum.
B) UMF Samherjar tilnefni einn aðila á aldrinum 16-20 ára til tveggja ára í senn.
C) Sveitarstjórn skipi tvo fulltrúa á aldrinum 16-20 ára til tveggja ára í senn og verður það í hlutverki sveitastjórnar að jafna kynjahlutföll með sínum fulltrúum. Auglýst verði eftir áhugasömum aðilum í sveitarfélaginu við skipun fulltrúa sveitarstjórnar.
Jafn margir aðilar séu skipaðir til varamanna af sömu aðilum.
 
Sveitarstjórn tekur fagnandi við ábendingum og óskum Ungmennaráðs varðandi breytingar á erindisbréfi þess hvað varðar skipun í ráðið.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að aðlaga erindisbréfið í samræmi við framkomnar tillögur Ungmennaráðs. Engar aðrar breytingar verða gerðar á erindisbréfinu og er því litið svo á að hér sé um fyrri umræðu á breytingum þess að ræða.
Erindisbréfið verður tekið til síðari umræðu á næsta fundi.
 
14. E2511021 - Heilsutengd hlunnindi starfsmanna Eyjafjarðarsveitar
Lagt fram minnisblað forstöðumanns íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar og skrifstofu- og fjármálastjóra vegna heilstutengdra hlunninda starfsmanna Eyjafjarðarsveitar.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögur að heilsutengdum hlunnindum starfsmanna Eyjafjarðarsveitar og felur sveitarstjóra að innleiða reglurnar og kynna þær fyrir starfsfólki sveitarfélagsins.
 
15. E2602040 - Afreks- og hvatningarstyrkur Eyjafjarðarsveitar
Sveitarstjórn bókaði á 666. fundi sínum: "Jafnframt beinir sveitarstjórn til Velferðar- og menningarnefndar að endurskoða ferðastyrkinn með það að leiðarljósi að fella hann niður en stofna nýjan sértækan úthlutunarpott með fjárheimild upp á 500.000kr sem ætlaður er sérstaklega til að efla ungmenni í sveitarfélaginu. Óskar sveitarstjórn eftir að nefndin taki þetta til umræðu og komi með tillögur að útfærslum. Frá og með 1. janúar 2026 verður ferðastyrkurinn lagður af í núverandi mynd.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Velferðar- og menningarnefndar að reglum um nýjan afreks- og hvatningarstyrk Eyjafjarðarsveitar. Jafnframt tekur sveitarstjórn undir bókun Velferðar- og menningarnefndar og mælir með því að reglurnar verðir endurmetnar að lokinni fyrstu úthlutun.
 
16. E2604011 - Fasteignir ríkisins í Eyjafjarðarsveit
Fyrir fundinum liggja til kynningar erindi Eyjafjarðarsveitar til mennta- og barnamálaráðherra, heilbrigðisráðherra, fjármálaráðherra og fasteigna ríkisins.
 
Sveitarstjórn undirstrikar þær áhyggjur sem fram koma í erindunum varðandi ástand eigna ríkisins á Kristnesspítala og felur sveitarstjóra að fylgja þeim fast eftir.
Sveitarstjórn telur afar mikilvægt að ríkið hefji þegar í stað vinnu við að finna lausnir á ástandi eignanna að Kristnesi og ítrekar vilja sinn til að koma að þeirri vinnu og aðstoða við úrlausn málsins. Sveitarstjórn óskar tafarlaust eftir fundi með fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra um stöðuna enda gríðarlegt hagsmunamál fyrir sveitarfélagið og íbúa þess.
 
17. E2601032 - SSNE - Loftlagsstefna Norðurlands eystra
Skipun í samvinnuvettvang sveitarfélaga fyrir framfylgd Loftslagsstefnu Norðurlands eystra.
 
Afgreiðslu frestað til nýs kjörtímabils.
 
18. E2604010 - Byggðaáætlun - tækifæri til að hafa áhrif á aðgerðaáætlun 2027-2031
Lagt er fram til kynningar vinnuskjal aðgerðaáætlunar 2027-2031 sem unnið er í tengslum við mótun nýrrar byggðaáætlunar 2027-2041. Skjalið hefur verið kynnt á samráðsfundum með landshlutasamtökum sveitarfélaga og er ætlað að vera grunnur að frekari umræðu og vinnslu. Um er að ræða vinnuskjal sem getur tekið breytingum á grundvelli athugasemda og áframhaldandi samstarfs við ráðuneyti.
 
Lagt fram til kynningar.
 
19. E2603044 - Skógræktarfélag Íslands - Ályktun samþykkt á fulltrúafundi 28. mars 2026
Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands um breytingartillögu meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla.
 
Lagt fram til kynningar.
 
Fundargerðir til kynningar
20. E2603037 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 996
Lögð fram fundargerð 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
21. E2603036 - SSNE - Fundargerð 82. stjórnarfundar
Lögð fram fundargerð 82. fundar stjórnar SSNE.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
22. E2603040 - Hættumatsnefnd Eyjafjarðarsveitar - fundargerð 8. fundar
Lögð fram fundargerð 8. fundar Hættumatsnefndar Eyjafjarðarsveitar.
 
Sveitarstjórn leggur áherslu á að Veðurstofan opinberi niðurstöður ofanflóðamats strax og þær liggja fyrir og kallar eftir að fá skýrsluna til kynningar við fyrsta tækifæri.
 
23. E2604016 - Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar - fundargerð 19. fundar
Fundargerð 19. fundar svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar lögð fram til kynningar.
 
Sveitarstjórn þakkar svæðisskipulagsnefnd fyrir að taka undir mikilvægi þess að hringtorg og hjóla- og göngustígur við hringveg frá Akureyri að Skógarböðum verði að veruleika sem fyrst. Mikilvægt er að sveitarfélög og aðrir hagaðilar á svæðinu sameinist um framgang verkefnisins svo efla megi umferðaröryggi og bæta samgöngur á svæðinu.
Annað í fundargerðinni gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
24. E2604008 - Norðurorka - Fundargerð 321. fundar
Lögð fram fundargerð 321. fundar stjórnar Norðurorku.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
25. E2604009 - Norðurorka - Fundargerð 322. fundar
Lögð fram fundargerð 322. fundar stjórnar Norðurorku.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
26. 2603011F - Velferðar- og menningarnefnd - 21
Fundargerð 21. fundar velferðar- og menningarnefndar lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
27. 2603016F - Ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar - 14
Fundargerð 14. fundar ungmennaráðs lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
28. 2604001F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 450
Fundargerð 450. fundar skipulagsnefndar lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
29. 2604004F - Framkvæmdaráð - 169
Fundargerð 169. fundar framkvæmdaráðs lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:45
 
 
Getum við bætt efni síðunnar?