Sveitarstjórn

677. fundur 13. maí 2026 kl. 08:00 - 09:00 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Linda Margrét Sigurðardóttir
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Anna Guðmundsdóttir var fjarverandi en fundinn sat Hákon Bjarki Harðarson
  • Ásta Arnbjörg Pétursdóttir var fjarverandi en fundinn sat Guðmundur S. Óskarsson
  • Sigurður Ingi Friðleifsson
  • Sigríður Bjarnadóttir
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
 
Dagskrá:
 
Almenn erindi
1. E2604039 - Ársreikningur Eyjafjarðarsveitar 2025
Ársreikningur Eyjafjarðarsveitar lagður fram til síðari umræðu í sveitarstjórn.
 
Helgi Níelsson frá KPMG sat fundinn undir þessum lið.
 
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 191,7 m.kr. og rekstrarniðurstaða A hluta jákvæð um 200,6 m.kr. Rekstrargjöld A og B hluta námu samtals 1.732,9 m.kr. Rekstrartekjur sveitarfélagsins námu tæpum 2,0 milljörðum króna á árinu og jukust um rúmlega 11% milli ára, sem endurspeglar áframhaldandi vöxt og styrkan tekjugrunn sveitarfélagsins.
 
Handbært fé frá rekstri nam 332,8 m.kr. hjá A og B hluta og veltufé frá rekstri 251,7 m.kr. Sú niðurstaða staðfestir að rekstur sveitarfélagsins stendur vel undir daglegum útgjöldum og skapar svigrúm til uppbyggingar og fjárfestinga. Á árinu var ráðist í umfangsmiklar fjárfestingar í fasteignum, gatnakerfi og öðrum innviðum sveitarfélagsins sem námu alls um 929 m.kr. hjá A og B hluta. Þær framkvæmdir skýra að stórum hluta lækkun handbærs fjár á árinu.
 
Eigið fé A og B hluta nam 2.190,3 m.kr. í árslok og hefur aukist frá fyrra ári. Þrátt fyrir umfangsmiklar framkvæmdir og fjárfestingar er skuldastaða sveitarfélagsins áfram hófleg, en skuldaviðmið samstæðunnar nam 25,2% í árslok. Rekstrargrundvöllur sveitarfélagsins er því áfram traustur.
 
Við endurskoðun frá fyrri umræðu breyttust tölur þannig að eignfærsla lækkaði um 83 m.kr. Rekstrarniðurstaða og handbært fé lækkar sem því nemur.
 
Lágt skuldahlutfall og sterk eiginfjárstaða skýrast fyrst og fremst af góðu sjóðstreymi frá rekstri, jákvæðri rekstrarniðurstöðu og ábyrgri fjármálastjórn síðustu ára. Sveitarfélagið hefur þannig getað staðið undir stórum hluta fjárfestinga með eigin fjármunum á sama tíma og innviðir og eignastaða hafa verið styrkt verulega.
 
Sveitarstjórn lýsir yfir ánægju með niðurstöðu ársreikningsins sem staðfestir sterka fjárhagsstöðu sveitarfélagsins, traustan rekstur og getu þess til að mæta áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins með ábyrgum og sjálfbærum hætti. Jafnframt vill sveitarstjórn þakka starfsfólki sveitarfélagsins, stjórnendum stofnana og kjörnum fulltrúum fyrir gott samstarf á liðnu kjörtímabili.
 
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkir samhljóða ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2025 við síðari umræðu.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00
 
 
Getum við bætt efni síðunnar?