Dagskrá:
Almenn erindi
Þar sem þetta er fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar stýrir Hermann Ingi Gunnarsson fundi þar til kjör oddvita hefur farið fram, enda hefur hann lengsta reynslu af störfum í sveitarstjórn.
1. E2605043 - Úrslit kosninga til sveitarstjórnar 2026
Fyrir fundinn er lögð skýrsla kjörstjórnar um atkvæðatölur framboðslista ásamt fundargerðum kjörstórnar fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026.
Lagt fram til kynningar.
2. E2605044 - Kjör oddvita og varaoddvita
Fyrir fundinum liggur sú tillaga að oddviti og varaoddviti sveitarstjórnar séu kjörnir til fjögurra ára.
Kjör oddvita og varaoddvita fer fram með nafnlausri atkvæðagreiðslu.
Oddviti sveitarstjórnar var kjörinn Hermann Ingi Gunnarsson með 6 atkvæðum.
Varaoddviti sveitarstjórnar var kjörinn Gestur Páll Júlíusson með 5 atkvæðum, tvö atkvæði fékk Guðmundur Óskarsson.
3. E2605045 - Ráðning ritara sveitarstjórnar
Sveitarstjórn ákveður ráðningu ritara sveitarstjórnar fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Fyrir fundinum liggur sú tillaga að Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri Eyjafjarðarsveitar, verði ráðinn fundarritari.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að ráða Bjarka Ármann Oddsson sem ritara sveitarstjórnar fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
4. E2605046 - Ákvörðun um fundartíma sveitarstjórnar 2026-2030
Sveitarstjórn ákveður almenn viðmið um tíðni og tímasetningu sveitarstjórnarfunda. Þá ákveður sveitarstjórn hvenær síðasti sveitarstjórnarfundur fyrir sumarfríð skuli almennt haldinn og hvenær störf sveitarstjórnar hefjist almennt að loknu sumarfríi.
Fyrir fundinum liggur sú tillaga að sveitarstjórn fundi almennt á tveggja vikna fresti. Fundir verði á fimmtudegi klukkan 8:00.
Sumarfrí sveitarstjórnar á kjörtímabilinu hefjist almennt fyrir 17.júní og fyrsti fundur að loknu sumarfríi sé haldinn eigi síðar en 16.ágúst. Aukafundir verði haldnir ef brýn þörf er á.
Þá verði tekið mið af því að síðasti fundur fyrir jól sé almennt ekki haldinn síðar en í fyrstu heilu viku desember og fyrsti fundur á nýju ári skuli almennt ekki haldinn síðar en í annarri heilu viku janúar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fundir sveitarstjórnar fari fram á eftirfarandi dögum haustið 2026 og vorið 2027.
Almennt fari fundir fram klukkan 8:00.
2026
20. ágúst
3. september
17. september
1. október
15. október
29. október
12. nóvember
26. nóvember
10. desember
2027
14. janúar
4. febrúar
18. febrúar
4. mars
18. mars
8. apríl
29. apríl
13. maí
27. maí
10. júní
5. E2605040 - Ráðning sveitarstjóra
Í samráði við fulltrúa sveitarstjórnar var staða sveitarstjóra auglýst laus til umsóknar þann 21.maí síðastliðinn þar sem Finnur Yngvi Kristinsson óskaði ekki eftir endurráðningu.
Umsóknarfrestur rann út þann 3.júní og tekur sveitarstjórn nú formlega ákvörðun um næstu skref.
Alls sóttu 35 einstaklingar um stöðuna og verður fyllsta trúnaðar gætt við þá meðan ráðningarferli er í gangi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela oddvita sveitarstjórnar umboð til að vinna að ráðningu sveitarstjóra. Unnið verði að ráðningunni í góðu samráði við sveitarstjórnarfulltrúa.
6. E2605042 - Stefnumál lista sveitarstjórnar 2026-2030
Sveitarstjóri hefur tekið saman lista yfir helstu áherslumál framboðanna í sveitarstjórn fyrir kjörtímabilið 2026-2030 og liggur sú samantekt fyrir fundinum.
Sveitarstjórn þakkar sveitarstjóra fyrir samantektina sem er gott innlegg í skipulag kjörtímabilsins.
Sveitartjóra falið að merkja samantektina til kynningar fyrir allar nefndir sveitarfélagsins.
7. E2605041 - Móttaka nýrra sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna
Sveitarstjóri hefur tekið saman handbók með helstu upplýsingum fyrir móttöku nýrra sveitarstjórnarfulltrúa, nefndarmanna og nýs sveitarstjóra. Handbókinni er ætlað að einfalda aðilum að komast hratt og örugglega inn í störf sín á kjörtímabilinu.
Þá liggur fyrir kynning á samþykktum um stjórn Eyjafjarðarsveitar og kynning á siðareglum kjörinna fulltrúa.
Sveitarstjórn þakkar sveitarstjóra fyrir greinagóða samantekt.
8. E2605039 - Skipan í nefndir og ráð 2026-2030
Sveitarstjórn tekur fyrir skipan í nefndir, ráð, samstarfshópa og stjórnir.
Skipulagsnefnd
Hákon Bjarki Harðarson formaður (F)
Dagný Linda Kristjánsdóttir (F)
Reynir Sverrir Sverrisson (F)
Heiðdís Pétursdóttir (F)
Friðrik Karlsson (K)
Varamenn
Dýri Hreiðarsson (F)
Inga Vala Gísladóttir (F)
Svana Ósk Rúnarssdóttir (F)
Kristján Hermann Tryggvason (F)
Guðmundur Óskarsson (K)
Fjallskilanefnd:
Beate Stormo formaður (F)
Reynir Sverrir Sverrisson (F)
Ragnar Jónsson (K)
Varamenn:
Erla Katrín Orrradóttir (F)
Steingrímur Einarsson (F)
Hafþór Magni Sólmundsson (K)
Framkvæmdaráð
Hermann Ingi Gunnarsson formaður (F)
Berglind Kristinsdóttir (F)
Guðmundur Óskarsson (K)
Varamenn:
Hákon Bjarki Harðarson (F)
Inga Vala Gísladóttir (F)
Linda Lárusdóttir (K)
Kjörstjórn
Sigríður Hrefna Pálsdóttir formaður (F)
Linda Margrét Sigurðardóttir (F)
Þór Reykdal (K)
Varamenn:
Baldur Helgi Benjamínsson (F)
Einar Grétar Jóhannsson (F)
Elsa Sigmundsdóttir (K)
SSNE stjórn
Hermann Ingi Gunnarsson aðalmaður (F)
Linda Lárusdóttir varamaður (K)
SSNE fulltrúar á þing
Berglind Kristinsdóttir (F)
Gestur Páll Júlíusson (F)
Linda Lárusdóttir (K)
Varamenn
Hákon Bjarki Harðarson (F)
Inga Vala Gísladótir (F)
Friðrik Karlsson (K)
Sambandið landsþing fulltrúar
Hermann Ingi Gunnarsson (F)
Guðmundur Óskarsson (K)
Varafulltrúar
Berglind Kristinsdóttir (F)
Linda Lárusdóttir (K)
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:25