Sveitarstjórn

679. fundur 18. júní 2026 kl. 08:00 - 10:30 fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Gestur Páll Júlíusson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Inga Vala Gísladóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Guðmundur Sigurbjörn Óskarsson
  • Linda Lárusdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sóley Kjerúlf Svansdóttir
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson
  • Bjarki Ármann Oddsson
  • .
  • Gestur fundar var Jón Björn Hákonarson
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson Skrifstofustjóri

 

Dagskrá:

Almenn erindi

1.

E2605040 - Ráðning sveitarstjóra

 

Fyrir liggur niðurstaða ráðningarferlis vegna stöðu sveitarstjóra Eyjafjarðarsveitar. Á fundi sveitarstjórnar 4. júní 2026 var oddvita falið umboð til að vinna að ráðningu sveitarstjóra í góðu samráði við sveitarstjórnarfulltrúa. Ráðningarferli hefur nú verið lokið og leggur oddviti fram tillögu um ráðningu sveitarstjóra til afgreiðslu sveitarstjórnar.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Hermanns Inga Gunnarssonar, oddvita sveitarstjórnar, um að ráða Jón Björn Hákonarson kt. 270173-3149 í stöðu sveitarstjóra Eyjafjarðarsveitar og tekur hann við starfinu af Finni Yngva Kristinssyni þann 1. ágúst 2026.

Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að fela Jóni Birni prókúruumboð sveitarfélagsins frá og með upphafsdagsetningu ráðningasambands. Fráfarandi sveitarstjóri heldur á prókuru sveitarfélagsins til þess dags.

Oddvita falið að skrifa undir ráðningarsamning.


Jón Björn er boðinn velkominn til starfa.


Fráfarandi sveitarstjóri, Finnur Yngvi Kristinsson, færir eftirfarandi til bókar.

Það er góð tilfinning að afhenda sæti sveitarstjóra til svo öflugs eftirmanns eins og nú er raun. Ég er sannfærður um að ráðning Jóns Björns muni verða heillaskref fyrir samfélagið og að hin mikla reynsla hans og þekking muni nýtast sveitarstjórn til áframhaldandi góðra verka.

Ég færi sveitarstjórn og sveitarfélaginu öllu mínu bestu þakkir fyrir gefandi tíma undanfarin átta ár. Að ljúka störfum með því að aðstoða við val á arftaka mínum í starfi var mikill heiður og endurspeglar hve heilsteipt og gott samstarf okkar hefur verið allan þennan tíma.

Jón Björn til hamingju með ráðninguna og kæra sveitarstjórn til hamingju.






 

   

2.

E2605039 - Skipan í nefndir og ráð 2026-2030

 

Sveitarstjórn tekur fyrir skipan í nefndir sveitarfélagsins fyrir kjörtímabilið 2026-2030.

 

 

Atvinnu- og umhvefisnefnd:
Aðalmenn
Inga Vala Gísladóttir verður formaður (F)
Kristján Tryggvason (F)
Gestur Páll Júlíusson (F)
Andrea Hjaltadóttir (F)
Valur Ásmundson (F)
Sigurður Ingi Friðleifsson (K)
Aðalsteinn Hallgrímsson (K)

Varamenn
Susanne Linterman (F)
Gísli Rúnar Víðisson (F)
Hrafnhildur Sigurðardóttir (F)
Sigurgeir Sveinn Gíslason (F)
Rakel Sara Elvarsdóttir (F)
Ragnar Jónsson (K)
Sigríður Bjarnadóttir (K)


Velferðar- og menningarnefnd:
Aðalmenn
Berglind Kristinsdóttir verður formaður (F)
Susanne Linterman (F)
Halldór Sigurður Guðmundsson (F)
Óðinn Ásgeirsson (F)
Rósa Húnadóttir (F)
Linda Lárusdóttir (K)
Margrét Árnadóttir (K)

Varamenn
Andrea Hjaltadóttir (F)
Kristbjörn Steinarsson (F)
Sara Dögg Sindradóttir (F)
Anna Richardsdóttir (F)
Guðmundur Geirsson (F)
Hafþór Magni Sólmundsson (K)
Valgerður Guðrún Valdimarsdóttir (K)

Skólanefnd:
Aðalmenn
Anna Guðmundsdóttir formaður (F)
Harpa Friðriksdóttir (F)
Þorsteinn Ægir Egilsson (F)
Gestur Páll Júlíusson (F)
Sóley Kjerúlf Svansdóttir (K)

Varamenn
Katrín Júlía Pálmadóttir (F)
Andrea Hjaltadóttir (F)
Halldór Sigurðsson (F)
Hákon Bjarki Harðarson (F)
Margrét Árnadóttir (K)

Almannavarnarnefnd Eyjafjarðar:
Aðalmaður
Jón Björn Hákonarson

Varamaður
Hermann Ingi Gunnarsson


Skólanefnd Tónlistaskóla Eyjafjarðar:
Aðalmaður
Hafdís Inga Haraldsóttir (F)

Varamaður
Margrét Árnadóttir (K)


Svæðisskipulag Eyjafjarðar:
Aðalmaður
Hermann Ingi Gunnarsson (F)

Varamaður
Guðmundur S. Óskarsson (K)

 

   

3.

E2603039 - Borgarhóll III - umsókn um byggingarreit

 

Tekin fyrir umsókn frá Fræhnútum ehf. um byggingarreit fyrir íbúðarhús/sumarhús í landi Borgarhóls III (L218453) sem byggir á nýjum upplýsingum.

Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 450 fundi sínum.

 

 

Hermann Ingi Gunnarsson yfirgefur fund undir þessum fundarlið.

Á 373. fundi sveitarstjórnar sem haldinn var þann 8.september 2009 var heimild veitt til fyrir byggingu frístunda- og gestahúss á byggingarreit samkvæmt uppdrætti frá Búgarði dags 24.08.2009. Sveitarstjórn telur engar forsendur til að draga þá heimild til baka og lítur svo á að hún sé enn í gildi og byggingarfulltrúa því heimilt að afgreiða málið samkvæmt fyrri samþykkt.

Sveitarstjórn áréttar að um er að ræða eldri samþykkt sem er ekki fordæmisgefandi fyrir aðra hluta jarðarinnar.

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að byggingarreitur sé færður miðað við upprunaleg áform í samræmi við það sem óskað er eftir í erindinu.

 

   

4.

E2603024 - Grænahlíð L152615 - umsókn um byggingarreit fyrir fjós

 

Tekin fyrir að nýju umsókn Dalanauts ehf. um byggingarreit fyrir um 4000 fermetra fjós á jörðinni Grænuhlíð. Erindið var seinast á dagskrá sveitarstjórnar 26. mars sl. þar sem óskað var umsagnar Vegagerðarinnar vegna fjarlægðar byggingar frá vegi og Veðurstofu Íslands vegna ofanflóðamats. Umbeðin gögn liggja nú fyrir.

Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 453. fundi sínum.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að byggingarreitur undir fjós á jörðinni Grænuhlíð sé samþykktur enda eru ekki gerðar athugasemdir við staðsetningu hans í umsögnum Vegagerðarinnar og Veðurstofu Íslands. Þó er tekið undir tilmæli Veðurstofunnar um lengingu varnargarðs eða að bygging og nánasta umhverfi verði hannað með skriðuhættu í huga.

 

   

5.

E2604041 - Ytri-Varðgjá 2 og 3 - Merkjalýsing vegna afmörkunar lóða

 

Lögð er fram merkjalýsing vegna afmörkunar nýrra lóða úr Ytri-Varðgjá 2, L232364, og Ytri-Varðgjá 3, L152838. Með merkjalýsingunni eru afmarkaðar 15 íbúðarlóðir og eru þær hluti af og í samræmi við auglýst deiliskipulag íbúðarsvæðis á Ytri-Varðgjár, dags. 19.06.2025, auk nýrrar fráveitulóðar. Samþykkt deiliskipulag fylgir fundargögnum.

Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 452. fundi sínum.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024 enda er hún í samræmi við deiliskipulag íbúðarsvæðis Ytri-Varðgjár sem öðlaðist gildi 03.07.2025.

 

   

6.

E2605027 - Bakkaflöt 1-9 - merkjalýsing og stofnun lóða

 

Fyrir fundinum liggur merkjalýsing vegna stofnunar lóða úr Bakkaflöt L235554. Með merkjalýsingunni eru afmarkaðar og stofnaðar lóðirnar Bakkaflöt 1-9, í samræmi við deiliskipulag Bakkaflatar sem fylgir jafnframt fundargögnum.

Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 452. fundi sínum.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að framlögð merkjalýsing verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024 enda er hún í samræmi við deiliskipulag athafnasvæðis á Bakkaflöt sem öðlaðist gildi 05.05.2026.

 

   

7.

E2605047 - Hrafnagilsskóli - umsókn um bráðabirgðar viðbyggingu

 

Eyjafjarðarsveit sækir um byggingarleyfi fyrir bráðabirgðarviðbyggingu við Hrafnagilsskóla sbr. meðfylgjandi erindi og afstöðumynd. Um er að ræða gámaeiningar sem staðsettar verða sunnan við núverandi byggingu yngsta stigs og er gert ráð fyrir að byggingarnar víki þegar framkvæmdum við skóla og íþróttamiðstöð lýkur.

Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 452. fundi sínum.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir erindið samhljóða þar sem um er að ræða tímabundna byggingu. Um er að ræða óverulegt frávik frá deiliskipulagi skv. 3. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal því fallið frá breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu.

 

   

8.

E2606006 - Sveinsbær - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

 

Jólagarðurinn ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir um 70 fermetra hús á lóð Sveinsbæjar L208354 á meðan unnið er að undirbúningi við framtíðarstaðsetningu hússins.

Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 452. fundi sínum.

 

 

Sveitarstjórn hefur áður samþykkt í tölvupósti að veitt verði stöðuleyfi fyrir húsinu til 12 mánaða á lóð Sveinsbæs L208354 sbr. meðfylgjandi afstöðumynd og vísar umsókninni til afgreiðslu byggingarfulltrúa. Staðfestist sú afgreiðsla hér með samhljóða.

 

   

9.

E2411037 - Melgerðismelar - L219983 Deiliskipulag - Flugslóð

 

Deiliskipulagstillaga fyrir flugskýli á Melgerðismelum var auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 1. apríl til 15. maí sl. og bárust 8 umsangir sem eru nú til umfjöllunar sveitarstjórnar.

Skipulagsnefnd tók erindið til umfjöllunar á 452. fundi sínum og lagði fram tillögur til sveitarstjórnar í afgreiðslu sinni.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða eftirfarandi afgreiðslu.

Minjastofnun Íslands
Umsögn:
Engar menningarminjar sáust á svæðinu við úttekt minjavarðar þann 9. september 2025 og gerir Minjastofnun ekki athugasemd við fyrirhugað deiliskipulag.

Viðbrögð sveitarstjórnar:
Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni


Slökkvilið Akureyrar
Umsögn:
Slökkvilið Akureyrar bendir á að ekki er gerð fullnægjandi grein fyrir vatnsöflun vegna slökkvistarfs innan skipulagssvæðisins.
Í kafla 2.5.1 er fjallað um neysluvatn, en ekki kemur fram hvort vatnsveita svæðisins uppfylli kröfur um afköst, rennsli og þrýsting sem nauðsynleg eru við slökkvistarf. Einnig er nauðsynlegt að hafa í huga fjarlægð frá slökkvistöð. Með hliðsjón af fyrirhugaðri uppbyggingu flugskýla, þar sem gera má ráð fyrir geymslu loftfara, eldsneytis, olíu og annars eldfims búnaðar, er mikilvægt að slökkvivatn sé tryggt með fullnægjandi hætti. Slökkviliðið gerir eftirfarandi athugasemdir og kröfur:
- Gerð verði grein fyrir brunavatnsþörf svæðisins á grundvelli áhættumats.
- Staðfest verði að vatnsveita hafi nægjanlega afkastagetu (rennslismagn og þrýsting) til slökkvistarfs.
- Skilgreind verði staðsetning brunahana eða annarra vatnstökustaða á skipulagsuppdrætti.
- Tryggt verði að aðgengi slökkviliðs að vatnstökustöðum og byggingum uppfylli kröfur gildandi byggingarreglugerðar.
- Ef vatnsveita uppfyllir ekki kröfur skal gera ráð fyrir sérstöku slökkvivatnsforðabúri (t.d. vatnstanki eða sambærilegri lausn).
Slökkvilið Akureyrar telur nauðsynlegt að ofangreind atriði verði skýrð og tryggð áður en deiliskipulagið verður samþykkt, þannig að brunavarnir á svæðinu verði fullnægjandi í samræmi við lög um brunavarnir nr. 75/2000 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.

Viðbrögð sveitarstjórnar:
Eftirfarandi skilmálum verður bætt við í kafla 2.6 Brunavarnir:
- Áður en til framkvæmda kemur skal gera áhættumat fyrir svæðið m.t.t. brunavatnsþörf.
- Ekki verður hafin uppbygging á svæðinu fyrr en ljóst er hvort vatnsöflun sé nægjanlega til slökkvistarfs á svæðinu.
- Bætt er við að tryggja skuli aðgengi slökkviliðs að vatnstökustöðum.
- Bætt við þið þeim skilmálum að ef vatnsveita uppfyllir ekki kröfur til slökkvistarfs meðal annars vegna brunahana verður fundinn viðunandi lausn fyrir slökkvivatnsforðabúr.


Samgöngustofa
Umsögn:
Við yfirferð gagna er bent á að í greinargerðinni kemur ekki fram hver fjarlægð fyrirhugaðra flugskýla er frá flugbraut eða lendingarsvæði flugvallarins á Melgerðismelum. Slíkar upplýsingar eru mikilvægar til að unnt sé að meta hvort fyrirhuguð mannvirki samræmist öryggiskröfum flugstarfsemi.
Jafnframt er í skipulagsgögnum tilgreint að hámarkshæð flugskýla geti orðið allt að 6,5 m frá aðalgólfi. Hins vegar er ekki gerð grein fyrir því hvort sú hæð fari inn á skilgreint hindranasvæði eða hindranaflöt flugvallarins. Nauðsynlegt er að sýnt sé fram á að fyrirhuguð mannvirki samræmist þeim hindranatakmörkunum sem gilda vegna flugstarfsemi og að þau hafi ekki neikvæð áhrif á flugöryggi.

Viðbrögð sveitarstjórnar:
Á sniði í kafla 2.4 í greinagerð deiliskipulags má sjá að fyrirhuguð flugskýli eru 75m frá öryggissvæði flugbrautarinnar og að fyrirhuguð flugskýli eru langt neðan hindranasvæðis flugvallarins.
Umfjöllun um þetta í kafla 2.4 verður gerð skýrari en þess utan krefst athugasemd ekki breytinga á tillögunni.


Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra
Umsögn:
HNE telur að í tillögunni hafi verið tekið tillit til athugasemda eftirlitsins varðandi nýja reglugerð um fráveitur og skólphreinsun, olíuskiljur og mengunarvarnir.
Að því virtu gerir HNE engar athugasemdir við fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu eins og hún er fram sett.

Viðbrögð sveitarstjórnar:
Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni


Svifflugfélag Akureryar
Umsögn:
Ef byggja á bogaskýli allt að 400 fermetrum þá er hámarkshæð að 6.5 metrum takmarkandi á breidd skýlis en hækkun í 7.5 eða 8 metra væri nægilegt.
Hér er orðalag úr tillögunni: "Þakform skal vera mænisþak eða bogadregið þak, vegghæð að hámarki 4,0 m og mænishæð eða hæsta hæð á bogaþaki frá aðalgólfi að hámarki 6,5 m."
Má túlka þetta þannig að heimilt sé að byggja bogaskýli eða er kvöðin sú að veggir séu lóðréttir?
Flugvöllurinn og svæðið í kringum hann er afgirt og lokað með hliði þegar enginn er á svæðinu og þeir aðilar fá aðgang sem hafa gilt erindi á svæðið.
Þeir aðilar eru þá aðallega starfsmenn Isavia og félagar í klúbbunum sem stunda starfsemi á svæðinu eins og Vélflugfélag Akureyrar, Svifflugfélag Akureyrar og Flugmódelfélag Akureyrar.
Stofnað var sérstakt félag Flugklúbbur Íslands 1988 um rekstur svæðisins og sameiginlegs klúbbhúss "Flugstöð Þórunnar Hyrnu" sem öll félögin og hagsmunaaðilar á svæðinu eru aðilar að.
Það er góður andi á svæðinu og gott samstarf er á milli allra aðila sem þar stunda sín flug sport og við viljum halda því þannig.
Mikilvægt er að þeir aðilar sem hafa aðgang að svæðinu skilji umgengnisreglur í kringum flugvelli.
Ég tel það brýnt að kvöð sé á flugskýlum byggt á þessum 6 lóðum að þau séu aðallega ætluð í flugtengda starfsemi.

Viðbrögð sveitarstjórnar:
Hámarkshæð verður hækkuð úr 6,5m í 7,5m en þrátt fyrir slíka hækkun eru flugskýlin fjarri því að fara inn á hindranasvæði flugvallarins.
Ekki er krafa að veggir séu lóðréttir ef byggt er flugskýli með bogaþaki og verða skilmálar hvað það varðar gerðir skýrari.
Eðli málsins samkvæmt eru flugskýli ætluð fyrir flugtengda starfsemi og því er ekki talin þörf á að setja kvöð um að svo sé.


Norðurorka
Umsögn:
Norðurorka gerir engar athugasemdir.

Viðbrögð sveitarstjórnar:
Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni


Vegagerðin
Umsögn:
Vegagerðin hefur farið yfir tillögu að deiliskipulagi fyrir Melgerðismela flugskýli sem barst í gegn um Skipulagsgátt 1.4.2026.
Skipulagssvæðið liggur ekki að vegum á vegaskrá. Deiliskipulagið mun hafa mjög takmarkað áhrif á umferð um þjóðvegi eða umferðaröryggi. Vegagerðin gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

Viðbrögð sveitarstjórnar:
Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni


Flugklúbbur Íslands
Umsögn:
Það er ósk okkar að þegar skipulagið fyrir flugskýlin hefur verið samþykkt í Sveitastjórn Eyjafjarðar, hvort möguleiki sé að hefja sem fyrst framkvæmdir við lagningu rafstrengs á svæðið. Áætlað er að fá straum úr tengikassa sem er vestan við þjóðbrautina við veg upp að Melbrekku. Það bráð vantar öruggt rafframboð fyrir flugvallarsvæðið og tengikassi við Hyrnu (aðstöðuhús flugklúbbana ) gæti verið 1. áfangi í þessu verkefni.

Viðbrögð sveitarstjórnar:
Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni


Sveitarstjórn felur skipulagshönnuði að uppfæra deiliskipulagstillöguna í samræmi við afgreiðslu innkominna athugasemda. Að lokinni uppfærslu verði tillagan send til HMS til staðfestingar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er skipulagsfulltrúa falið að fullnusta gildistöku skipulagsins í kjölfarið.

Sveitarstjórn beinir því til sveitarstjóra að skoða þurfi útfærslu og tilkostnað við vatnsöflun á svæðinu áður en lóðum er úthlutað og að sá kostnaður verði tekinn með í verði lóðanna.

 

   

10.

E2601009 - Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis

 

Deiliskipulagstillaga fyrir nýtt íbúðarsvæði í landi Syðri-Varðgjár (L152799) var kynnt skv. 4 mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var umsagnarfrestur til 13. maí sl. 8 umsagnir bárust um tillöguna og eru þær nú til umfjöllunar.

Skipulagsnefnd tók tillöguna fyrir á 452. fundi sínum.

 

 

Sveitarstjórn felur skipulagshönnuði að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum við gerð skipulagstillögu.
Sérstaklega er bent á umsögn Minjastofnunar Íslands um að setja kvaðir í skipulagið um að fornleifarannsóknir fari fram áður en framkvæmdir hefjast og umsögn Vegagerðarinnar vegna tenginga við Veigastaðaveg.
Sveitarstjórn bendir á að veghalli aðkomuvegar má vera 12% og húsagatna 9%, aðkomuvegur nær eingöngu að fyrsta húsi í íbúðargötunni.
Vegtenging við Smáralæk skal nýtt fyrir skipulagssvæðið.
Skipulagshönnuði er jafnframt falið að vinna tillöguna og hönnun aðkomu inn á skipulagssvæðið í samráði við Vegagerðina.
Uppfærð tillaga verður lögð fyrir skipulagsnefnd að nýju að þessum skilyrðum uppfylltum.

 

   

11.

E2503020 - Vaglir L152818 - Umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku

 

Fyrir fundinum liggur erindi þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi til efnistöku úr Eyjafjarðará í landi Vagla L152818 á svæði E25B. Erindið var seinast á dagskrá nefndarinnar 24. mars 2025 þar sem því var frestað og óskað eftir frekari gögnum frá landeiganda sem liggja nú fyrir. Óskað er eftir heimild til að taka 40.000 rúmmetra af sandi á fjögurra ára tímabili eða 10.000 rúmmetra á ári. Umsókninni fylgja umsagnir Fiskirannsókna ehf., Veiðifélags Eyjafjarðarár og Fiskistofu auk minnisblaðs frá Verkís um mat á núverandi aðstæðum á efnistökusvæðinu.

Í minnisblaði frá Verkís kemur fram að metið sé að aðstæður hafi batnað á efnistökusvæðinu frá því að fyrri efnistöku lauk og að áframhaldandi takmörkuð efnistaka á svæðinu geti talist forsvaranleg sé hún unnin innan skilgreinds svæðis, með eðlilegu verklagi og með viðeigandi frágangi og eftirfylgni.
Ekki er lagst gegn framkvæmdinni í umsögnum Fiskistofu, Veiðifélags Eyjafjarðarár og Fiskirannsókna ehf.

Skipulagsnefnd tók erindið til umfjöllunar á 452. fundi sínum.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku 10.000 rúmmetra af efni á ári í tvö ár á efnistökusvæði E25B í Eyjafjarðará í landi Vagla. Sveitarstjórn tekur undir ábendingu skipulagsnefndar þess efnis að mikilvægt sé að framkvæmdin taki mið af þróun svæðisins hverju sinni og að forðast skuli óhóflega og staðbundna ofdýpkun innan farvegar, sbr. umsögn Verkís.

Allt rask á farvegi árinnar skal fara fram á tímabilinu 1. desember til 15. júní sbr. umsögn Fiskirannsókna ehf.
Framkvæmdir skulu jafnframt stöðvaðar á veiðitímabili Eyjafjarðarár og snyrtilega skal gengið um svæðið á framkvæmdatíma og jafnframt að framkvæmdum loknum.

Ganga þarf úr skugga um hvort einhverjar lagnir séu fyrir á svæðinu áður en framkvæmdir hefjast.
Áður en framkvæmdarleyfi verður gefið út þarf að liggja fyrir samkomulag milli landeigenda um nýtingu efnistökusvæða E25A og E25B sbr. Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030.

Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.

 

   

12.

E2605049 - Fellshlíð - Umsókn um byggingarheimild

 

Eigendur Fellshlíðar L152593 sækja um byggingarreit fyrir viðbyggingu norðvestan við núverandi fjós.

Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 452. fundi sínum.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða byggingarreit fyrir viðbyggingu við núverandi fjós á Fellshlíð í samræmi við umsókn. Þar sem erindið er ekki talið varða hagsmuni annarra en umsækjenda og sveitarfélagsins skuli fallið frá grenndarkynningu sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

13.

E2606005 - Tjarnaland land L187527 - umsókn um byggingarreit fyrir íbúðarhús

 

Eigendur Tjarnalands lands L187527 sækja um byggingarreit fyrir 80-100 fermetra íbúðarhús á landareign sinni sbr. meðfylgjandi umsókn, afstöðumynd og uppdrátt. Umsókninni fylgir undirritað samþykki eigenda Ytri-Tjarna (L152835) og Tjarnagerðis (L152810) fyrir byggingaáformunum.

Skipulagsnefnd tók málið fyrir á 453. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að umsókn um byggingarreit fyrir einbýlishús á Tjarnalandi landi L187527 verði vísað í grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt er að stytta tímabil grenndarkynningar ef allir hagsmunaaðilar lýsa því skriflega yfir að þeir geri ekki athugasemd við áformin. Ef engar athugasemdir berast á grenndarkynningartímabili telst erindið samþykkt.

 

 

Sveitarstjórn hafnar erindinu og bendir á að það fari gegn aðalskipulagi sveitarfélagsins hvað varðar fjarlægðarmörk frá öðrum landeignum. Engin rök hafa borist sem renna styrkum stoðum undir það af hverju ætti að veita undanþágu frá skipulagsskilmálum.

 

   

14.

E2604047 - Ytri-Varðgjá - framkvæmdaleyfi vegna efnistöku

 

Erindi frá Finni ehf. þar sem óskað er eftir heimild til 15.000 m³ efnistöku í Eyjafjarðará í landi Ytri-Varðgjár næstu 3 árin. Fyrir liggja gögn vegna framkvæmdarinnar, þ.m.t. umsagnir Fiskistofu og Veiðifélags Eyjafjarðarár.

Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 453. fundi sínum.

 

 

Sveitarstjórn tekur undir tillögu skipulagsnefndar um að afgreiðslu erindisins skuli frestað. Skipulagsfulltrúa er falið að óska eftir umsögnum Náttúruverndastofnunar, Umhverfis- og orkustofnunar og Óshólmanefndar um áformin. Þegar þær umsagnir liggja fyrir tekur skipulagsnefnd það aftur til umræðu.

 

   

15.

E2606011 - Hólmatröð 8 - fyrirspurn vegna byggingaráforma

 

Fyrir fundinum liggur erindi frá Mjölni Tréverki vegna hönnunar húss að Hólmatröð 8. Óskað er eftir yfirferð og afstöðu skipulagsnefndar til fyrirliggjandi gagna, m.a. með tilliti til byggingarreits, hæðar húss og annarra atriða sem varða samræmi við gildandi deiliskipulag.

Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 453. fundi sínum.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir erindið samhljóða. Um er að ræða óverulegt frávik frá deiliskipulagi skv. 3. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal því fallið frá breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu.

 

   

16.

E2606017 - Þjóðlendan Laugafell L237821 - afmörkun lóðar undir skálabyggingar

 

Lögð fyrir merkjalýsing þar sem verið er að staðfesta afmörkun lóðar undir skálabyggingar á Laugafelli L172584. Laugafell L172584 er þegar til í fasteignaskrá og innan hennar eru skráðir 4 mannvirki/skálar. Með þessari merkjalýsingu er afmörkun hennar hnitsett en lóðin kemur úr þjóðlendunni Laugafelli L237821 og er 29.526,3 m² að stærð. Lóðin er samkvæmt samþykktu deiliskipulagi Hálendismiðstöðvar í Laugafelli sem fylgir fundargögnum.

Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 453. fundi sínum.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða merkjalýsingu á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Þá verði staðfangi þjóðlendunnar Laugafells L237821 breytt í "Laugafell þjóðlenda" til þess að báðar fasteignir hafi ekki sömu staðföng.

Þegar lóðin hefur verið stofnuð skal sveitarstjóri auglýsa hana í samræmi við gildandi lög að teknu tilliti til þess að þarna sé fyrir starfsemi sem hefur verið byggð upp á löngum tíma.

 

   

17.

E2410001 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í landi Teigs

 

Teigur ehf. sækir um framlengingu á framkvæmdaleyfi til efnistöku á sandi úr sandeyrum í Eyjafjarðará í landi Teigs L152808 sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. janúar 2025. Framkvæmdaleyfið gilti til 9. apríl 2026 og heimilaði efnistöku 20.000 m³ af sandi. Samkvæmt upplýsingum frá umsóknaraðila er búið að taka 8.992 m3 af því efni og því er óskað er eftir framlengingu leyfis til 20. júní 2027. Fylgigögn fyrra framkvæmdaleyfis eru með fundargögnum.

Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 453. fundi sínum.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að framlengja framkvæmdaleyfi til efnistöku í landi Teigs. Efnismagnið helst óbreytt og er því heimilt að taka ónýtt magn miðað við fyrra framkvæmdaleyfi, leyfið skal gilda til 20. júní 2027.
Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.

 

   

18.

E2606022 - Hrafnagilsskóli - Innivist-loftgæðamælingar

 

Efla hefur framkvæmt skoðun á loftgæðum í Hrafnagisskóla og liggur samantekt fyrir fundinum.

Í skýrslunni kemur fram að æskilegt sé að leita leiða til að ná tökum á hitasveiflum í sumum rýmum til að auka gæði innivistar, þá sé mikilvægt að koma loftræstingu á þar sem hún er ekki til staðar til að draga úr myndum koltvísýrings í þeim rýmum og dreifa betur innblástursstútum þar sem loftræsting er til staðar.
Samkvæmt skýrslunni er ekki neinn sjánlegur raki í byggingunni þó tekið sé fram að hann geti leynst undir yfirborði og mögulegt sé að kanna það betur með sýnatöku, sérstaklega í útveggjum.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að bregðast við þeim ábendingum sem fram koma í skýrslunni með það fyrir augum að bæta innivist. Þannig verði lögð áhersla dreifing á inntakslofti verði jafnari og betri í stofum og að hitabreytingar í rýmum verði jafnari.
Sveitarstjóra falið að koma verkinu í framkvæmd.

 

   

19.

E2605010 - Sýslum. á Norðurl.eystra óskar eftir umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá Fjordside Byways ehf.

 

Lagt er fram umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dags. 7. maí 2026, vegna umsóknar Fjordside Byways ehf. um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-C (minna gistiheimili) að Þverá I, lóð nr. 5, í Eyjafjarðarsveit. Sótt er um leyfi fyrir allt að sex gesti. Óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknarinnar.

Húsnæðið er frístundahús á skilgreindu frístundasvæði í aðalskipulagi. Fjarlægð að mörkum næsta íbúðarsvæðis eru rúmir 100 metrar og í næsta íbúðarhús eru um 175 metrar. Fjarlægð að mörkum landbúnaðarsvæðis eru um 17 metrar.

 

 

Sveitarstjórn kallar eftir könnun á grenndaráhrifum sem taki mið af nærliggjandi frístundahúsum, íbúðarhúsum og landareignum.
Taka skuli mið af 300 metra radíus í þessu tilfelli.

Ef ekki koma neikvæðar athugasemdir á kynningartímabilinu er sveitarstjóra falið að afgreiða málið jákvætt til Sýslumanns.
Komi athugasemdir fram tekur sveitarstjórn málið aftur til afgreiðslu.

 

   

20.

E2605013 - Rauði krossinn - Fjöldahjálparstöðvar á Norðurlandi

 

Lagt er fram erindi frá Rauða krossinum við Eyjafjörð, dags. 7. maí 2026, þar sem sveitarfélög á Norðurlandi eystra eru hvött til að taka til skoðunar og skráningar með formlegum hætti fjöldahjálparstöðvar innan sinna marka.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að skilgreina Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar og skólamannvirki sem fjöldahjálparstöð. Sveitarstjóra falið að koma upplýsingunum á framfæri við Rauðakross Íslands.

 

   

21.

E2605038 - Víðir Sveinn Ágústsson - Uppsögn samnings um jarðhita við Ylur s.f.

 

Fyrir fundinum liggur tilkynning um uppsögn á "Samningi um jardhita" sem gerdur var milli landeigenda Holsgerdis og Torfufells annars vegar og Yls s.f. hins vegar, og undirritadur var ad Torfufelli hinn 1. ágúst 1991.

 

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

22.

E2606008 - UMF Samherjar - Beiðni um samtal og samstarf

 

Lagt er fram erindi frá Ungmannafélaginu Samherjum dagssett 2. júní 2026 þar sem óskað er eftir viðræðum við sveitarfélagið um aukið samstarf til framtíðar. Félagið vísar til vaxandi umfangs starfsemi sinnar og leggur meðal annars til að rætt verði um sameiginlegan starfsmann, endurskoðun samstarfssamnings og framtíðarsýn um bætta félagaaðstöðu.

 

 

Oddvita sveitarstjórnar og formanni Velferðar- og menningarnefndar falið að funda með forsvarsmönnum UMF Samherja.

 

   

23.

E2606009 - UMF Samherjar - Tillaga um viðburðarnefnd

 

Lagt er fram erindi, dags. 2. júní 2026, frá Ungmannafélaginu Samherjum þar sem lögð er fram tillaga um stofnun viðburðarnefndar á vegum sveitarfélagsins með það að markmiði að undirbúa og þróa nýja bæjarhátíð fyrir Eyjafjarðarsveit. Jafnframt er lagt til að nefndin hafi hlutverk við stefnumótun og samræmingu viðburða í sveitarfélaginu.

 

 

Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að halda samkomu fyrir íbúa sveitarfélagsins helgina eftir verslunarmannahelgi þegar viðburðurinn Fram í fjörð sem haldinn er af Ferðamálafélagi Eyjafjarðarsveitar fer fram. Áhersla samkomunnar verður að þjappa saman íbúa sveitarfélagsins á notarlegri stund. Formanni Velferðar- og menningarnefndar falið að fylgja málinu eftir og ræða við hlutaðeigandi aðila.

Erindinu UMF Samherja vísað til Velferðar- og menningarnefndar til nánari útfærslu fyrir næstu ár.

 

   

Fundargerðir til kynningar

24.

E2606004 - Markaðsstofa Norðurlands - Starf Flugklasans Air 66N 15. okt. 2025 - 21. apríl 2026

 

Lögð fram til kynningar skýrsla frá Markaðsstofu Norðurlands um starf Flugklasans Air 66N dagana 15. október 2025 til 21. apríl 2026.

 

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

25.

E2605007 - Norðurorka - Fundargerð 323. fundar

 

Lögð fram til kynningar fundargerð 323. fundar stjórnar Norðurorku.

 

 

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

 

   

26.

E2605008 - Fundargerð vorfundar almannavarnanefndar 5.05.2026 og ársreikningur 2025

 

Lögð fram til kynningar fundargerð vorfundar Almannavarnanefndar í umdæmi Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra haldinn 5. maí 2026 og ársreikningur 2025.

 

 

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

 

   

27.

E2605037 - Flokkun Eyjafjörður ehf. - Stjórnarfundur 26. maí 2026

 

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnarfundar Flokkun Eyjafjarðar frá 26. maí 2026.

 

 

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

 

   

28.

E2606003 - Flokkun Eyjafjörður ehf. - Ársreikningur 2025

 

Lagt fram til kynningar ársreikningur Flokkun Eyjafjörður fyrir árið 2025.

 

 

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

 

   

29.

E2605034 - SSNE - Fundargerð 6. Farsældarráðs Norðurlands eystra

 

Lögð fram til kynningar fundargerð 6. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra.

 

 

Sveitarstjórn bendir íbúum á að farsældardagurinn verður haldinn í Hofi 4.september.
Annað í fundargerðinni gefur ekki tilefni til ályktunar.

 

   

30.

E2605021 - SSNE - Þinggerð ársþings 2026

 

Lögð fram til kynningar þinggerð ársþings Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra.

 

 

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

 

   

31.

E2605020 - SSNE - Fundargerð 83. stjórnarfundar

 

Lögð fram til kynningar fundargerð 83. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE.

 

 

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

 

   

32.

E2605006 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 997

 

Lögð fram til kynningar fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

 

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

 

   

33.

E2605023 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 998

 

Lögð fram til kynningar fundargerð 998. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

 

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

 

   

34.

E2606007 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 999

 

Lögð fram til kynningar fundargerð 999. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

 

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

 

   

35.

E2606020 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 1000

 

Lögð fram til kynningar fundargerð 1000. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

 

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

 

   

36.

2605011F - Ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar - 16

 

Lögð fram til kynningar fundargerð 16. fundar Ungmennaráðs Eyjafjarðarsveitar.

 

 

Sveitarstjórn þakkar fráfarandi ungmennaráði fyrir vel unnin störf á tímabilinu og þann mikla metnað sem einkennt hefur starf ráðsins á tíma þess.

 

   

37.

2606006F - Framkvæmdaráð - 170

 

Lögð fram til kynningar fundargerð 170. fundar framkvæmdaráðs Eyjafjarðarsveitar.

 

 

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

 

   

38.

2605005F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 452

 

Lögð fram til kynningar fundargerð 452. fundar Skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar.

 

 

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

 

   

39.

2606004F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 453

 

Lögð fram til kynningar fundargerð 453. fundar Skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar.

 

 

Gefur ekki tilefni til ályktunar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30

Getum við bætt efni síðunnar?