Sveitarstjórn

680. fundur 20. ágúst 2026 kl. 08:00 - 10:10 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Gestur Páll Júlíusson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Inga Vala Gísladóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Guðmundur S Óskarsson
  • Linda Lárusdóttir
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
 
Dagskrá:
 
Almenn erindi
1. E2210043 - Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022
Fyrir fundinum liggja uppfærð gögn vegna endurskoðunar Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar. Málið var síðast tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 18. júní 2026, þar sem fjallað var um athugasemdir HMS við tillöguna og jafnframt gerðar athugasemdir samkvæmt minnispunktum skipulagsnefndar við greinargerð og yfirferð HMS. Skipulagshönnuði var þá falið að vinna úr framkomnum athugasemdum. Fyrirliggjandi gögn hafa nú verið uppfærð í samræmi við þær.
 
Sveitarstjórn samþykkir uppfærða tillögu að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar og að hún verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
2. E2501006 - Brúarland (ÍB 15) - breytingar á skilgreiningu í ASK og greinargerð DSK
Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 vegna Brúarlands (ÍB15) og breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar Brúnagerðis, áfanga A og B, lauk 20. júní 2026. Alls bárust 16 athugasemdir og umsagnir vegna aðalskipulagsbreytingarinnar og 15 vegna deiliskipulagsbreytingarinnar og liggja þær fyrir til umfjöllunar.
 
Sveitarstjórn hefur farið yfir framkomnar athugasemdir og umsagnir. Þær lúta einkum að breyttri landnotkun og fyrirhuguðum gistirekstri á svæðinu, samræmi við skipulagsstefnu sveitarfélagsins, grenndaráhrifum, umferð, lýsingu, vatns- og fráveitumálum, áhrifum framkvæmda og málsmeðferð.
Sveitarstjórn telur að við meðferð málsins hafi verið tekið fullnægjandi tillit til þeirra meginatriða sem fram koma í athugasemdum. Gætt verði að grenndaráhrifum eins og kostur er og í skipulagi eru settir skilmálar meðal annars um aðkomu og umferð, lýsingu og frágang, auk þess sem veitumál eru útfærð í samráði við viðeigandi aðila. Sveitarstjórn telur að fyrirhuguð breyting sé ekki í ósamræmi við samþykkta skipulagsstefnu sveitarfélagsins og að framkomnar athugasemdir gefi ekki tilefni til breytinga á auglýstum tillögum.
Sveitarstjórn samþykkir því auglýstar breytingartillögur að aðal- og deiliskipulagi skv. 32., 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að annast áframhaldandi málsmeðferð og fullnusta gildistöku skipulagsins.
 
3. E2509010 - Hótel við skógarböðin - DSK breyting vegna hreinsistöðvar
Fyrir fundinum liggja athugasemdir sem bárust við grenndarkynningu breytingar á deiliskipulagi Ytri-Varðgjár, baðstaðar og hótels vegna staðsetningar hreinsistöðvar. Grenndarkynning fór fram frá 29. janúar til 27. febrúar 2026. Málið var síðast tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 30. apríl 2026, þar sem tillagan var samþykkt. Eftir stóð að taka afstöðu til framkominna athugasemda, sbr. 5.9.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
 
Sveitarstjórn telur að framkomnar athugasemdir gefi ekki tilefni til frekari breytinga á tillögunni, enda hefur verið brugðist við þeim atriðum sem fram hafa komið við meðferð málsins.
Sveitarstjórn samþykkir því framkomin svör við athugasemdum og einnig breytingartillögu á deiliskipulagi Ytri-Varðgjár, baðstaðar og hótels vegan vegna staðsetningar hreinsistöðvar.
 
4. E2608003 - Hringtorg við Hringveg og Eyjafjarðarbraut eystri - leyfi vegna rannsóknarfyllingar og -borana
Vegagerðin sækir um leyfi fyrir jarðvegsrannsóknum vegna hönnunar hringtorgs við vegamót Hringvegar og Eyjafjarðarbrautar eystri. Sótt er um að setja niður rannsóknarfyllingu innan hönnunarsvæðis hringtorgs sem standa þarf a.m.k. 1 m yfir sjávaryfirborði við háflóð og er áætlað efnismagn í hana um 300 m3. Jafnframt er sótt um að bora í rannsóknarfyllinguna niður á fast undirlag, eða a.m.k. 15 metra niður og framkvæmda jarðsjármælingu. Óskað hefur verið eftir umsögn Náttúrufræðistofnunar um áformin.
 
Sveitarstjórn samþykkir að veita leyfi vegna fyrirhugaðra jarðvegsrannsókna við vegamót Hringvegar og Eyjafjarðarbrautar eystri, enda hafa borist jákvæð viðbrögð frá Náttúrufræðistofnun.
 
5. E2509029 - Hrafnabjörg L235978 - Breyting á DSK fyrir frístundarhús
Fyrir fundinum liggur skipulagslýsing, unnin af Ívari Ragnarssyni, dags. 11.06.2026 vegna skipulagningar frístundasvæðis F6 í landi Höskuldsstaða og Jódísarstaða. Markmið deiliskipulagsins er m.a. að skipuleggja fimm frístundalóðir á svæðinu og yrði hver um sig um 10.000 til 21.500 fermetrar að stærð.
 
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi skipulagslýsingu og að hún verði kynnt í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn hvetur jafnframt til þess að við gerð deiliskipulagsins verði þess gætt að gott landbúnaðarland verði varðveitt eftir því sem kostur er.
 
6. E2608017 - Klauf - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Hermann Ingi Gunnarsson vék af fundi undir þessum lið.
 
Fyrir fundinum liggur umsókn um stöðuleyfi fyrir 360 m² tjaldskemmu á jörðinni Klauf L152678. Samkvæmt umsókn er fyrirhuguð staðsetning um 80 m frá næstu landamerkjum.
 
Sveitarstjórn samþykkir erindið og felur byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfi til eins árs fyrir tjaldskemmunni í samræmi við fyrirliggjandi gögn.
 
7. E2608018 - Skólatröð 13 L240619 - beiðni um staðsetningu smáhýsis við lóðamörk
Jóhann Freyr Jónsson sækir um að fá að staðsetja 15 fermetra smáhýsi á lóðarmörkum Skólatraðar 13 sbr. meðfylgjandi tölvupóst og afstöðumynd.
 
Sveitarstjórn samþykkir erindið.
 
8. E2607001 - Syðra-Laugaland - merkjalýsing vegna hnitsetningar skika
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing, dags. 15.06.2026, vegna skika innan jarðarinnar Syðra-Laugalands, L152790. Í merkjalýsingunni felst að afmarkaður og hnitsettur er 2.100 m² skiki innan jarðarinnar en innan skikans eru mhl 05 fjárhús, mhl 08 hlaða og mhl 13 kálfahús. Sótt er um að staðfang nýja landskikans verði Syðra-Laugaland 3.
 
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og samþykkir hana á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að nýr landskiki fái staðfangið Syðra-Laugaland 3. Sveitarstjórn gerir kvaðir á landeiganda Syðra-Laugalands L152790 að tryggð verði aðkoma að landskikanum. Skipulagsfulltrúa falið að fylgja þessu eftir.
 
9. E2606017 - Þjóðlendan Laugafell L237821 - afmörkun lóðar undir skálabyggingar
Lögð fyrir merkjalýsing þar sem verið er að stofna nýja 2,90 ha lóð, Laugafell (L241709) úr þjóðlendunni Laugafelli (L237821) en innan marka hinnar nýju lóðar eru 4 mannvirki/skálar Ferðafélags Akureyrar. Þessu samhliða breytist staðfang þjóðlendunnar Laugafells (L237821) í "Fjöllin austur" svo ekki séu tvær fasteignir innan sveitarfélagsins með sama staðfang. Jafnframt fylgir forathugun vegna skipulags og lóðarstofnunar við Laugafell en skv. 10 gr. laga nrþ. 100/2021 skal fara fram forathugun áður en tekin er ákvörðun um að auglýsa sérleyfis- eða rekstrarsamninga.
 
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu, með fyrirvara um undirskrift Ríkissjóðs Íslands, og samþykkir hana á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að beiðni verði send ráðuneytinu um stofnun nýrrar lóðar.
 
10. E2606018 - Umsagnarbeiðni - Vaðlaborgir B - Íbúðarsvæði deiliskipulag - Kynning tillögu á vinnslustigi
Erindi dagsett 9.06.2026 þar sem Svalbarðsstrandarhreppur óskar eftir umsögn er varðar Vaðlaborgir B - Íbúðarsvæði deiliskipulag, nr. 1123/2025: Kynning tillögu á vinnslustigi (Nýtt deiliskipulag).
 
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Vaðlaborga B. Sveitarstjórn leggur þó til að horft verði til þess möguleika að tengja íbúðarsvæðin með göngustíg.
 
11. E2608012 - Samtök um dýravelferð á Íslandi - erindi um bann við loðdýrarækt í aðalskipulagi
 
Lagt fram erindi frá Samtökum um dýravelferð á Íslandi þar sem íslensk sveitarfélög eru hvött til þess að banna loðdýrarækt innan sveitarfélags í Aðalskipulagi.
 
12. 2503011 - Leifsstaðir II - Hotel North - Umsagnarbeiðni vegna breytingu á gildu rekstrarleyfi
Leifsstaðir II - Hotel North - Umsagnarbeiðni vegna breytingu á gildu rekstrarleyfi
 
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstrarleyfis til S&A eigna ehf. fyrir gististað í flokki IV-B, stærra gistiheimili, að Leifsstöðum II, með vísan til jákvæðrar umsagnar byggingarfulltrúa.
 
13. E2603031 - Ungmennaráð - Erindisbréf, endurskoðun
Lagt fram til síðari umræðu endurskoðað erindisbréf Ungmennaráðs.
 
Sveitarstjórn samþykkir uppfært erindisbréf ungmennaráðs.
Jafnframt felur sveitarstjórn sveitarstjóra að auglýsa eftir áhugasömum einstaklingum á aldrinum 16-20 ára til setu í ungmennaráði, í samræmi við ákvæði erindisbréfsins.
 
14. E2605039 - Skipan í nefndir og ráð 2026-2030
Sveitarstjórn tekur fyrir skipan í nefndir, ráð, samstarfshópa og stjórnir.
 
Sveitarstjórn tekur fyrir skipan í nefndir sveitarfélagsins fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
 
Óshólmanefnd:
Jóhann Reynir Eysteinsson (F)
Sigurður Hjaltason (K)
 
15. E2608022 - Reiðvegur-Brúnir
Fyrir liggur erindi frá reiðveganefnd Funa þar sem óskað er eftir að Eyjafjarðarsveit taki á sig viðbótarkostnað vegna breyttrar útfærslu reiðleiðar frá Eyjafjarðarbraut Eystri að hitaveituvegi. Áætlaður kostnaður er 2-5 m.kr.
 
Sveitarstjórn samþykkir tillögu framkvæmdaráðs og veitir Reiðveganefnd Funa 2 m.kr. aukastyrk til reiðvegagerðar á árinu 2026 vegna sérstakra aðstæðna við breytta útfærslu reiðleiðar frá Eyjafjarðarbraut Eystri að hitaveituvegi.
Sveitarstjórn samþykkir auk þess samhljóða viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna aukins kostnaðar upp á 2 m.kr. Kostnaði mætt með lækkun á handbæru fé.
 
16. E2606028 - Vegagerðin - Tilkynning um niðurfellingu Syðra-Laugalandsvegar 8429-01 af vegaskrá
Fyrir liggur tilkynning Vegagerðarinnar um fyrirhugaða niðurfellingu Syðra-Laugalandsvegar 8429-01 af vegaskrá, þar sem ekki er lengur búseta að Syðra-Laugalandi 2. Vegagerðin hyggst fella veginn af vegaskrá frá næstu áramótum og mun viðhald og þjónusta hans þá ekki lengur vera á ábyrgð stofnunarinnar.
 
Sveitarstjórn gerir athugasemd við fyrirhugaða niðurfellingu Syðra-Laugalandsvegar 8429-01 af vegaskrá og felur sveitarstjóra að ræða við Vegagerðina um verklag um niðurfellingu vega af vegaskrá.
 
17. E2606029 - Vegagerðin - Tilkynning um niðurfellingu Sölvadalsvegar 827-01 af vegaskrá
Fyrir liggur tilkynning Vegagerðarinnar um fyrirhugaða niðurfellingu Sölvadalsvegar 827-01 af vegaskrá, þar sem ekki er lengur búseta á Þormóðsstöðum og Þormóðsstöðum II. Vegagerðin hyggst fella veginn af vegaskrá frá næstu áramótum og mun viðhald og þjónusta hans þá ekki lengur vera á ábyrgð stofnunarinnar.
 
Sveitarstjórn gerir athugasemd við fyrirhugaða niðurfellingu Sölvadalsvegar 827-01 af vegaskrá og felur sveitarstjóra að ræða við Vegagerðina um verklag um niðurfellingu vega af vegaskrá.
 
18. E2608008 - Vináttuheimsókn
Lagt er fram erindi frá Gunnari Má Gunnarssyni, forseta bæjarstjórnar Akureyrarbæjar, þar sem kannaður er áhugi sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar á að taka á móti bæjarstjórn Akureyrarbæjar í vináttuheimsókn. Tilgangur heimsóknarinnar er að sveitarstjórnarfólk sveitarfélaganna hittist og kynnist, auk þess sem tækifærið verði nýtt til umræðu um sameiginlega hagsmuni sveitarfélaganna, meðal annars fyrirhugaða þróunaráætlun fyrir borgarsvæði Akureyrar.
 
Sveitarstjórn tekur vel í erindi bæjarstjórnar Akureyrarbæjar um vináttuheimsókn og fagnar tækifærinu til að efla tengsl sveitarstjórnarfólks og ræða sameiginlega hagsmuni sveitarfélaganna. Heimsóknin er áætluð 27.ágúst 2026 kl:14:15 og mun sveitarstjórn mæta til fundar við bæjarstjórn Akureyrar á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar.
 
19. E2606036 - LEB - Öldungaráð sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar erindi frá Landssambandi eldri borgara (LEB) varðandi skipun öldungaráða og mikilvægi virks samráðs sveitarfélaga við eldra fólk. Í erindinu er meðal annars minnt á lögbundið hlutverk öldungaráða samkvæmt lögum um málefni aldraðra og mikilvægi þess að skapa skýran ramma um starfsemi þeirra og aðkomu að ákvörðunum sveitarfélaga.
 
Lagt fram til kynningar.
 
20. E2608027 - Innviðaráðuneytið - Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar erindi frá Innviðaráðuneytinu sem býður kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufundar um hinsegin málefni. Samtökin ´78 sjá um fræðsluna en markmiðið er auka þekkingu sveitarstjórnarfólks á réttindum og félagslegri stöðu hinsegin fólks.
 
Lagt fram til kynningar. Sveitarstjórn hvetur sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarfólk að skrá sig á fræðsluna.
 
21. E2607013 - Innviðaráðuneytið - Endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga, gerð grænbókar
Erindi frá Innviðaráðuneytinu vegna endurskoðunar stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga. Ráðuneytið óskar eftir upplýsingum frá sveitarfélögum vegna gerðar grænbókar um stöðu, áskoranir og tækifæri sveitarstjórnarstigsins. Frestur til að skila svörum er til 21. september 2026.
 
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að skila inn upplýsingunum.
 
22. E2607017 - Atvinnuvegaráðuneytið - Ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár
Erindi frá Atvinnuvegaráðuneytinu vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár. Í erindinu eru sveitarfélög hvött til að yfirfara afréttarskrár og fjallskilasamþykktir, skoða möguleika á samstarfi sveitarfélaga og nýta þær heimildir sem lög um búfjárhald og fjallskil veita við úrlausn mála vegna ágangsfjár.
 
Lagt fram til kynningar.
 
23. E2608026 - UMF Samherjar - ARENA fótboltavellir
 
Sveitarstjórn tekur vel í hugmyndir um uppbyggingu FIFA Arena knattspyrnuvallar á íþrótta- og skólasvæðinu á Hrafnagili. Sveitarstjórn samþykkir að fara í samstarf við Umf. Samherja varðandi umsókn um ARENA fótboltavöll og felur sveitarstjóra að vera í samskiptum við félagið.
 
24. E2607014 - Umhverfis og orkustofnun - Upplýsingar um nýjar framkvæmdir og sjálfbær umsvif í vatnaáætlun 2028-2033
Erindi frá Umhverfis- og orkustofnun vegna endurskoðunar vatnaáætlunar fyrir tímabilið 2028-2033. Óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélögum um fyrirhugaðar framkvæmdir og sjálfbær umsvif sem kunna að hafa áhrif á vatnshlot og umhverfismarkmið þeirra. Skilafrestur upplýsinga er til og með 30. september 2026.
 
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að svara erindinu.
 
25. E2607012 - SSNE - Haustþing 2026
Stjórn SSNE boðar til haustþings SSNE miðvikudaginn 9. september næstkomandi. Þingið verður haldið í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík og verður sett kl. 11:30 og mun formlegri dagskrá ljúka kl. 17:00.
 
Lagt fram til kynningar.
 
26. E2607011 - SSNE - Samþykki fyrir þátttöku í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga
Erindi frá SSNE vegna verkefnisins "Rafrænt og sjálfvirkt losunarbókhald fyrir rekstur sveitarfélaga innan SSNE" er hluti af gildandi sóknaráætlun og loftslagsstefnu landshlutans.
 
Sveitarstjórn samþykkir að Eyjafjarðarsveit taki þátt í verkefninu.
 
27. E2608016 - Tilnefning fulltrúa í fjölmenningarráð SSNE
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) óska eftir tilnefningu fulltrúa frá sveitarfélagi ykkar í fjölmenningarráð SSNE fyrir komandi kjörtímabil.
 
Sveitarstjórn samþykkir að tilnefna Susanne Lintermann sem fulltrúa Eyjafjarðarsveitar í fjölmenningarráð SSNE fyrir komandi kjörtímabil.
 
Fundargerðir til kynningar
28. E2606023 - Hættumatsnefnd Eyjafjarðarsveitar - fundargerð 9. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 9. fundar hættumatsnefnd Eyjafjarðarsveitar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
29. E2606024 - Norðurorka - Fundargerð 324. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 324. fundar stjórnar Norðurorku.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
30. E2606025 - HNE - Fundargerð 248
Lögð fram til kynningar fundargerð 248. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
31. E2606026 - HNE - Fundargerð 249
Lögð fram til kynningar fundargerð 249. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
32. E2608005 - HNE - Fundargerð 250
Lögð fram til kynningar fundargerð 250. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
33. E2605031 - Greið leið ehf. - Aðalfundur 9.06.2026
Lögð er fram fundargerð aðalfundar Greiðrar leiðar ehf., sem haldinn var 9. júní 2026. Á var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum tillaga stjórnar um að félagið yrði tekið til slita á grundvelli XIII. kafla laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög.
Auk þess var farið yfir skýrslu stjórnar og ársreikning félagsins fyrir árið 2025, auk þess sem stjórn og endurskoðandi félagsins voru kjörin.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
34. E2605032 - Greið leið ehf. - hluthafafundur 9.06.2026
Stjórn Greiðrar leiðar ehf. samþykkti að leggja til við hluthafafund að félagið yrði tekið til slita. Á hluthafafundi félagsins 9. júní 2026 var ársreikningur 2025 lagður fram ásamt álitsgerð endurskoðanda, þar sem fram kom að eignir félagsins hrökkvi fyrir skuldum. Hluthafafundur samþykkti jafnframt kosningu skilanefndar og að tilkynna hlutafélagaskrá um slit félagsins. Samkvæmt ársreikningi nam eigið fé félagsins 21,6 m.kr. í árslok 2025 og kom fram í álitsgerð endurskoðanda að eignir félagsins hrökkvi fyrir skuldum.
Á fundinum var jafnframt samþykkt að kjósa Jónas Rafn Tómasson og Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur í skilanefnd félagsins. Skilanefnd var falið að tilkynna hlutafélagaskrá um slit félagsins og óska löggildingar til skilanefndarstarfa í samræmi við 3. mgr. 86. gr. laga um einkahlutafélög.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
35. E2607015 - SSNE - Fundargerð 84. stjórnarfundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 84. fundar stjórnar SSNE.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
36. E2608024 - SSNE - Fundargerð 85. stjórnarfundar
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
37. 2608001F - Fjallskilanefnd Eyjafjarðarsveitar - 51
Lagt fram til kynningar 51. fundur fjallskilanefndar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
38. 2608008F - Framkvæmdaráð - 171
Lagt fram til kynningar 171. fundur framkvæmdaráðs.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
39. 2608003F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 454
Lagt fram til kynningar 454. fundur skipulagsnefndar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:10
 
Getum við bætt efni síðunnar?