Dagskrá:
Almenn erindi
Hermann Ingi Gunnarsson oddviti hóf fundinn með því að leita afbrigða frá boðaðri dagskrá og óskaði eftir að tekið yrði fyrir mál um skipun fulltrúa Eyjafjarðarsveitar í samstarfsvettvang SSNE um loftslagsmál. Afbrigðin voru samþykkt samhljóða og verður málið það 12. á dagskrá fundarins.
1. E2608054 - Náttúruhamfaratrygging Íslands - Áminning um ákvæði 16. gr. laga nr. 55, 1992
Náttúruhamfaratrygging Íslands sendir sveitarstjórnun á Íslandi bréf þar sem hún beinir sjónum sínum að vaxandi tjónum á nýlegum mannvirkjum á þekktum flóðasvæðum og talsverðrar umræðu um enn frekari framkvæmdir á slíkum svæðum.
Sveitarstjórn þakkar Náttúruhamfaratryggingum Íslands fyrir erindið og tekur undir mikilvægi þess að við skipulagsgerð og leyfisveitingar sé tekið fullnægjandi tillit til þekktrar náttúruvár og fyrirliggjandi áhættumats.
Sveitarstjórn vísar málinu til skipulagsnefndar til kynningar.
2. E2605039 - Skipan í nefndir og ráð 2026-2030
Sveitarstjórn tekur fyrir skipan í nefndir sveitarfélagsins fyrir kjörtímabilið 2026?2030.
Sveitarstjórn samþykkir að skipa Ingileif Ástvaldsdóttir sem aðalmann í skólanefnd Tónlistarskóla Eyjafjarðar og Þorbjörgu Ottu Jónasdóttur sem aðalmann í farsældarráð Norðurlands eystra og Bjarka Ármann Oddsson sem varamann.
Jafnframt samþykkir sveitarstjórn eftirfarandi skipan í öldungaráð Eyjafjarðarsveitar:
Aðalfulltrúar Eyjafjarðarsveitar:
Halldór S. Guðmundsson formaður
Berglind Kristinsdóttir
Linda Lárusdóttir
Aðalfulltrúar FEB:
Kristín Thorberg
Hulda Magnea Jónsdóttir
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
Varafulltrúar Eyjafjarðarsveitar:
Hermann Ingi Gunnarsson
Inga Vala Gísladóttir
Sigríður Bjarnadóttir
Varafulltrúar FEB:
Hansína María Haraldsdóttir
Bergljót Sigurðardóttir
3. E2607024 - Syðra-laugaland 2 L236505 - umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi gistingar
Lögð er fram umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Norðurlandi eystra vegna umsóknar SL2 ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-D, að Prestsetrinu, Syðra-Laugalandi 2. Sótt er um leyfi fyrir að hámarki 28 gesti.
Óskað er umsagnar sveitarfélagsins vegna umsóknarinnar í samræmi við lög nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og reglugerð nr. 1277/2016.
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu erindisins og felur sveitarstjóra að afla upplýsinga um grenndaráhrif vegna fyrirhugaðs reksturs áður en afstaða verður tekin í umsögn sveitarfélagsins.
4. E2606033 - Samningur við Bergið Headspace
Lagður er fram til afgreiðslu sveitarstjórnar samstarfssamningur sveitarfélaga á Norðurlandi eystra við Bergið Headspace um stuðnings- og ráðgjafarþjónustu fyrir ungt fólk á aldrinum 12-25 ára. Markmið samningsins er meðal annars að efla aðgengi ungs fólks að stuðningi og ráðgjöf, styrkja lágþröskulda geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu og stuðla að snemmtækri íhlutun og forvörnum.
Samningurinn gildir frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029. Fjárframlag Eyjafjarðarsveitar samkvæmt samningnum nemur 194.504 kr. fyrsta samningsárið, 213.206 kr. annað árið og 231.909 kr. þriðja árið.
Samningurinn er lagður fyrir sveitarstjórn til samþykktar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samstarfssamning við Bergið Headspace.
Sveitarstjóra falið að undirrita samninginn fyrir hönd Eyjafjarðarsveitar.
5. E2608041 - NorðurOrg 2027
Fyrir fundinum liggur erindi frá félagsmiðstöðvum Eyjafjarðarsveitar, Hörgársveitar og Grýtubakkahrepps þar sem óskað er eftir gjaldfrjálsum afnotum af íþróttahúsi vegna NorðurOrg 2027, forkeppni Söngkeppni Samfés á Norðurlandi. Fyrirhugað er að viðburðurinn fari fram föstudaginn 12. mars 2027 og er gert ráð fyrir um 500-600 þátttakendum, gestum og starfsfólki. Jafnframt kemur fram að undirbúningur og framkvæmd viðburðarins muni hafa áhrif á hefðbundna starfsemi í íþróttamiðstöðinni dagana 11.-13. mars.
Sveitarstjórn samþykkir að veita félagsmiðstöðvum Eyjafjarðarsveitar, Hörgársveitar og Grýtubakkahrepps gjaldfrjáls afnot af íþróttahúsi Eyjafjarðarsveitar vegna NorðurOrg 2027 dagana 11.-13. mars.
Sveitarstjórn fagnar því að viðburður af þessari stærðargráðu fari fram í Eyjafjarðarsveit.
6. E2608020 - Ástandsskoðun og framtíð gamla Þinghússins
Lögð fram til kynningar ástandsskoðun gamla Þinghússins sem framkvæmd var af EFLU í ágúst 2026.
Sveitarstjórn hefur kynnt sér niðurstöður ástandsskoðunar EFLU á gamla Þinghúsinu. Niðurstöðurnar sýna að veruleg viðhalds- og endurbótaþörf er á húsinu. Að mati sveitarstjórnar er ástand hússins með þeim hætti að umfangsmiklar og kostnaðarfrekar framkvæmdir þyrfti til að koma því í viðunandi horf og telur sveitarstjórn ekki forsvaranlegt að ráðast í slíkar endurbætur miðað við núverandi forsendur.
Sveitarstjórn telur því rétt að horfa til framtíðar varðandi nýtingu svæðisins og samþykkir að efna til hugmyndaþings um framtíð reitsins. Markmið þess verði að kalla fram vandaðar og raunhæfar hugmyndir um uppbyggingu og nýtingu svæðisins til framtíðar.
Sveitarstjórn vísar undirbúningi slíks hugmyndaþings með íbúum til skipulagsnefndar. Stefnt er að því að hugmyndaþingið verði haldið á komandi vetri.
7. E2605022 - Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027-2028
Skrifstofu- og fjármálastjóri fer yfir komandi fjárhagsáætlunarvinnu.
Lagt fram til kynningar.
12. E2609010 - Skipun í samstarfsvettvang SSNE um loftlagsmál
Fyrir liggur erindi frá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) um skipun fulltrúa Eyjafjarðarsveitar í samstarfsvettvang SSNE um loftslagsmál.
Sveitarstjórn samþykkir að skipa Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóra, sem fulltrúa Eyjafjarðarsveitar í samstarfsvettvang SSNE um loftslagsmál.
Fundargerðir til kynningar
8. E2608048 - Norðurorka - Fundargerð 325. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 325. fundar stjórnar Norðurorku.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
9. E2608030 - SSNE - Fundargerð 7 Farsældarráðs Norðurlands eystra
Lögð fram til kynningar fundargerð 7. fundar farsældarráðs Norðurlands eystra.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
10. 2608015F - Fjallskilanefnd Eyjafjarðarsveitar - 52
Fundargerð 52. fundar fjallskilanefndar lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
11. 2608017F - Framkvæmdaráð - 172
Fundargerð 172. fundar framkvæmdaráðs lögð fram til kynningar.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:25