Sveitarstjórn

682. fundur 17. september 2026 kl. 08:00 - 10:20 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Gestur Páll Júlíusson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Inga Vala Gísladóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Guðmundur S. Óskarsson
  • Linda Lárusdóttir
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
 
Dagskrá:
 
Almenn erindi
1. E2609030 - Erindi vegna breytinga á farvegi Eyjafjarðarár á móti Grund
Tekið fyrir erindi frá Ljósaborg ehf. vegna framkvæmda í Eyjafjarðará sem hafa leitt til breytinga á farvegi hennar.
 
Skipulagsnefnd bendir á að ekki er efnistökusvæði í Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar á umræddu framkvæmdasvæði og ekki er í gildi framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að fara fram á það við framkvæmdaraðila að kvísl árinnar sem hefur verið lokað verði opnuð aftur svo áin geti runnið aftur eftir fyrri farvegi. Skipulagsfulltrúi hefur rætt við hlutaðeiganda sem hefur brugðist við og opnað kvíslina að hluta, einnig er skipulagsfulltrúa falið að fylgjast áfram með málinu.
 
Sveitarstjórn tekur undir með skipulagsnefnd og leggur á það þunga áherslu að kvísl árinnar sem lokað var verði opnuð að fullu umsvifalaust áður en frekari tjón verður á bökkum árinnar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að fylgja málinu eftir og hafa eftirlit með því.
 
2. E2609026 - Þórustaðir 2 L152852 - fyrirspurn um breytta landnotkun í endurskoðun aðalskipulags
Teknar fyrir tillögur frá eigendum Þórustaða 2 L152852 um breytta landnotkun á jörðinni við endurskoðun Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar. Tillögurnar voru upphaflega sendar í lok síðasta árs en hafa ekki verið teknar til umfjöllunar fyrr en nú.
 
Sveitarstjórn hafnar samhljóða áformum um uppbyggingu íbúðar- og frístundabyggðar á Þórustöðum 2 enda hefur það verið stefna í gildandi og endurskoðuðu aðalskipulagi að beina uppbyggingu á þegar skilgreind íbúðar- og frístundasvæði sem eru talin uppfylla þörf um uppbyggingu á skipulagstímabilinu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að 9,4 ha svæðið sem sótt er um breytta landnotkun verði breytt úr landbúnaðarsvæði í skógræktar- og landgræðslusvæði. Sveitarstjórn samþykkir einnig beiðni um að 19,3 ha svæði í Þórustaðamýri verði breytt úr landnotkunarflokknum óbyggð svæði (ÓB4) yfir í landbúnaðarsvæði til kartöfluræktar. Skipulagshönnuði Aðalskipulagsins er falið að breyta tillögunni eftir auglýsingu miðað við ofangreint. Afgreiðsla sveitarstjórnar er send til kynningar í Óshólmanefnd.
 
3. E2608037 - Grænahlíð L152615 - umsókn um efnistöku af svæði E4
Dalanaut ehf. sækir um framkvæmdaleyfi til efnistöku 20.000 m³ af efni til eigin nota af efnistökusvæði E4 í Aðalskipulagi sbr. meðfylgjandi umsókn og kort af svæðinu.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að framkvæmdaleyfi verði veitt til efnistöku 20.000 m³ af efni á svæði E4 úr áreyrum Eyjafjarðarár. Sveitarstjórn leggur áherslu á að sem minnst verði unnið í sjálfum farvegi árinnar og slíkt ekki heimilað á veiðitíma árinnar. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.
 
4. E2604047 - Ytri-Varðgjá - framkvæmdaleyfi vegna efnistöku
Fyrir fundinum liggur að nýju umsókn Finns ehf. um framkvæmdaleyfi til 15.000 m³ efnistöku úr Eyjafjarðará í landi Ytri-Varðgjár. Málið var síðast til umfjöllunar á fundi sveitarstjórnar 18. júní 2026, þar sem afgreiðslu erindisins var frestað og skipulagsfulltrúa falið að óska umsagna Náttúruverndarstofnunar, Umhverfis- og orkustofnunar og Óshólmanefndar. Erindið var í kjölfarið grenndarkynnt á tímabilinu 15. júlí til 31. ágúst 2026 og bárust alls fimm umsagnir á kynningartímanum sem nú liggja fyrir til umfjöllunar.
 
Sveitarstjórn hafnar samhljóða umsókn um framkvæmdaleyfi til 15.000 m³ af efni úr Eyjafjarðará í landi Ytri-Varðgjár. Framkvæmdasvæðið er innan svæðis nr. 510 á náttúruminjaskrá og á hverfisverndarsvæði. Leirurnar njóta sérstakrar verndar samkvæmt 61. gr. náttúruverndarlaga, nr. 60/2013 og skv. þeim ber að forðast að raska vistkerfum nema brýna nauðsyn beri til.
 
5. E2609028 - Lækkun hraða á Knarrarbergs- og Leifsstaðavegi
Fjallað um hugmyndir sveitarfélagsins um að lækka hámarkshraða úr 70 km/klst í 50 km/klst á Knarrarbergsvegi, frá gatnamótum Veigastaðavegar, og Leifsstaðavegi.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fara fram á við Vegagerðina að hámarkshraði verði lækkaður úr 70 í 50 km/klst á Knarrarbergsvegi og Leifstaðarvegi.
 
6. E2604045 - Jódísartún - Merkjalýsing lóða
Fyrir fundinum liggur að nýju merkjalýsing vegna lóða nr. 1-6 og 9-10 við Jódísartún, þar sem gerð er grein fyrir afmörkun lóðanna til samræmis við stofnskjal og samþykkt deiliskipulag svæðisins. Málið var síðast tekið fyrir á 453. fundi skipulagsnefndar þann 15.06.2026 þar sem afgreiðslu var frestað og óskað eftir frekari upplýsingum frá merkjalýsanda.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
 
7. E2607007 - Höskuldsstaðir land L186707 og Höskuldsstaðir land L186708 - sameining landareigna - merkjalýsing
Tekin fyrir merkjalýsing unnin af Þórhalli Ragnarssyni þar sem verið er að sameina landeignirnar Höskuldsstaði land L186707 og Höskuldsstaði land L186708. Sótt er um að hin sameinaða landeign fái staðfangið Drekasteinn.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að sameinaður landskiki fái staðfangið Drekasteinn. Sveitarstjórn bendir þó á að í endurskoðuðu Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar sem nú er í auglýsingu er landnotkun umræddar landeignar breytt úr frístundasvæði F7 í landbúnaðarsvæði að ósk landeiganda.
 
8. E2609018 - Fellshlíð L152593 - merkjalýsing lóðar
Lögð fram merkjalýsing dags. 20.08.2026 þar sem verið er að afmarka nýja 12.176,3 m² lóð á jörðinni Fellshlíð L152593 en innan lóðarinnar yrðu íbúðarhús byggt 1948 (mhl. 02) og íbúðarhús viðbygging byggð 1979 (mhl. 16). Lagt er til að nýja lóðin fái staðfangið Fellshlíð 2.
 
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jafnframt samþykkir nefndin að nýja lóðin fái staðfangið Fellshlíð 2.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jafnframt samþykkir nefndin að nýja lóðin fái staðfangið Fellshlíð 2.
Sveitarstjórn setur kvöð á landeiganda Fellshlíðar L152593 um að tryggð verði aðkoma að hinni nýju lóð. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja því eftir.
 
9. E2608042 - Erindisbréf - Skólanefnd
Erindisbréf skólanefndar var lagt fram til kynningar fyrir nýskipaða skólanefnd. Við yfirferð þess kom fram að bréfið er frá árinu 2018 og hefur því ekki verið endurskoðað um nokkurt skeið.
 
Skólanefnd beinir því til sveitarstjórnar að erindisbréf nefndarinnar verði tekið til heildstæðrar endurskoðunar og uppfært til samræmis við gildandi laga- og reglugerðarumhverfi, aðalnámskrár og núverandi starfshætti Eyjafjarðarsveitar.
 
Sveitarstjórn samþykkir að erindisbréf skólanefndar verði tekið til endurskoðunar og felur sveitarstjóra að leggja fram drög að uppfærðu erindisbréfi.
 
10. E2608047 - Hrafnagilsskóli - Akstursáætlun 2026-2027
Lögð fram akstursáætlun Hrafnagilsskóla fyrir skólaárið 2026-2027 þar sem fram kemur fyrirkomulag skólaaksturs og akstursleiðir fyrir nemendur skólans. Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að akstursáætlun Hrafnagilsskóla fyrir skólaárið 2026-2027 verði samþykkt.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi akstursáætlun Hrafnagilsskóla fyrir skólaárið 2026-2027.
 
11. E2605004 - Ungmennaráð - Almenningssamgöngur til Akureyrar
Velferðar- og menningarnefnd tók til umfjöllunar erindi Ungmennaráðs Eyjafjarðarsveitar um almenningssamgöngur fyrir ungmenni úr Hrafnagilshverfi sem sækja nám í Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri.
 
Nefndin tekur jákvætt í erindið og telur mikilvægt að skoðaðar verði leiðir til að bæta samgöngur fyrir ungmenni. Nefndin fór yfir fyrirliggjandi tilboð frá SBA um akstur á leiðinni og ræddi mögulegt fyrirkomulag þjónustunnar.
Velferðar- og menningarnefnd vísar erindinu til sveitarstjórnar til nánari útfærslu með tilliti til fjármögnunar.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að funda með SBA um fyrirkomulag akstursins.
 
12. E2605022 - Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030
Staða við vinnu við fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027.
 
Sveitarstjórn fór yfir stöðu vinnunnar og næstu skref í undirbúningi fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
 
13. E2609032 - Norðurorka - Erindi vegna lántöku 2026
Lagt fram erindi Norðurorku hf. þar sem óskað er eftir að eigendur félagsins veiti einfalda ábyrgð vegna allt að 300.000.000 kr. lántöku félagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdir í hitaveitu og fráveitu.
 
Sveitarstjórn frestar erindinu og felur sveitarstjóra og oddvita að funda með verðandi stjórnarformanni stjórnar og framkvæmdarstjóra Norðurorku hf.
 
Fundargerðir til kynningar
14. E2609037 - SSNE - Fundargerð 8 Farsældarráðs Norðurlands eystra - Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða
Lögð fram til kynningar fundargerð 8. fudar farsældarráðs Norðurlands eystra - sem og áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
15. E2609015 - Tónlistarskóli Eyjafjarðar - Fundargerð 154. fundar skólanefndar
Fundargerð 154. fundar skólanefndar Tónlistarskóla Eyjafjarðar lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
16. E2609035 - Molta - 118. stjórnarfundur
Fundargerð 118. fundar stjórnar Moltu lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
17. E2609021 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 1001
Fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
18. 2608021F - Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar - 285
Fundargerð 285. fundar skólanefndar lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
19. 2609001F - Velferðar- og menningarnefnd - 23
Fundargerð 23. fundar velferðar- og menningarnefndar lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
20. 2608014F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 455
Fundargerð 455. fundar skipulagsnefndar lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:20
Getum við bætt efni síðunnar?