Sveitarstjórn

683. fundur 01. október 2026 kl. 08:00 - 09:30 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Gestur Páll Júlíusson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Inga Vala Gísladóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Guðmundur S Óskarsson
  • Linda Lárusdóttir
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
 
Dagskrá:
 
Almenn erindi
1. E2609064 - Stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga
Eyjafjarðarsveit hefur haft frumkvæði að því að kanna grundvöll fyrir stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga, að fyrirmynd sambærilegra hagsmunasamtaka sveitarfélaga. Markmið samtakanna yrði að skapa sameiginlegan vettvang sveitarfélaga þar sem landbúnaður er mikilvægur þáttur í atvinnulífi og samfélagsgerð. Samtökin myndu vinna að sameiginlegri hagsmunagæslu sveitarfélaganna í málefnum sem tengjast landbúnaði, svo sem skipulagsmálum, tekjustofnum, laga- og reglugerðarumhverfi og samskiptum við bændur og ríkisvaldið.
Þreifingar hafa þegar farið fram meðal sveitarfélaga og hafa viðbrögð verið jákvæð, en nokkur sveitarfélög hafa lýst vilja til þátttöku. Málið er lagt fyrir sveitarstjórn til umræðu um áframhaldandi undirbúning og næstu skref.
 
Sveitarstjórn fagnar þeim jákvæðu viðbrögðum sem fram hafa komið við hugmyndum um stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga og telur mikilvægt að sveitarfélög þar sem landbúnaður er veigamikill þáttur í atvinnulífi hafi sameiginlegan vettvang til hagsmunagæslu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að halda áfram undirbúningi að stofnun samtakanna í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Stefnt er að því að halda stofnfund miðvikudaginn 7. október næstkomandi. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að vinna áfram að undirbúningi stofnfundarins í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og þau sveitarfélög sem lýst hafa áhuga á þátttöku.
Sveitarstjórn samþykkir einnig samhljóða þátttöku Eyjafjarðarsveitar í samtökunum.
 
2. E2609029 - Samband íslenskra sveitarfélaga - Notendaráð sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur í upphafi nýs kjörtímabils minnt sveitarfélög á mikilvægi þess að skipa í lögbundin notendaráð sveitarfélaga, þ.e. samráðshóp í málefnum fatlaðs fólks, öldungaráð og ungmennaráð.
Jafnframt er vakin athygli á mikilvægi þess að sveitarfélög fari yfir samþykktir og erindisbréf ráðanna og tryggi að skipan þeirra og starfsemi sé í samræmi við þau lagalegu skilyrði sem um ráðin gilda.
 
Lagt fram til kynningar.
 
3. E2609042 - VR, LÍV og FF - Fyrirspurn til sveitarstjórnar
Lagt fram erindi frá formönnum VR, Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og Rafiðnaðarsambandsins, fyrir hönd Fagfélaganna, þar sem óskað er eftir upplýsingum um aðgerðir sveitarfélaga til að styðja við markmið kjarasamninga frá árinu 2024 um verðstöðugleika og bættan kaupmátt heimila.
Í erindinu er sérstaklega óskað eftir afstöðu sveitarfélagsins til gjaldskrárhækkana, framboðs og uppbyggingar íbúðarhúsnæðis, aðgerða til að brúa bil milli fæðingarorlofs og leikskóla og annarra aðgerða sem geti dregið úr kostnaðarhækkunum heimila.
 
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið og tekur undir mikilvægi þess að sveitarfélög leggi sitt af mörkum til að stuðla að verðstöðugleika og bættum kaupmætti heimila.
Sveitarstjórn áréttar að Eyjafjarðarsveit hefur þegar gripið til aðgerða í þessum efnum og hefur leitast við að sýna gott fordæmi. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026 var ákveðið að takmarka almennar gjaldskrárhækkanir við 2,5% að jafnaði, með þeim undantekningum sem lög kveða á um. Jafnframt var fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækkaður úr 0,39% í 0,35%. Í apríl 2026 samþykkti sveitarstjórn að takmarka einnig hækkanir leikskóla- og frístundagjalda skólaársins 2026-2027 við 2,5% í stað áætlaðrar 5% vísitöluhækkunar.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að halda áfram á þessari braut og að sveitarfélög, ríkisvaldið og fyrirtæki vinni sameiginlega að markmiðum um verðstöðugleika og bættan kaupmátt. Við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 verður áfram lögð áhersla á að halda gjaldskrárhækkunum í lágmarki, samhliða því að tryggja sjálfbæran rekstur sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að svara erindinu með vísan til framangreindra aðgerða.
 
4. E2609049 - SGS - Þjóðarsátt um verðstöðugleika
Lagt fram erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands þar sem sveitarfélög landsins eru hvött til þátttöku í sameiginlegu átaki um verðstöðugleika.
Í erindinu er lagt til að ríki, sveitarfélög, atvinnulíf og aðrir sem áhrif hafa á verðmyndun skuldbindi sig til að halda aftur af verð- og gjaldskrárhækkunum og miða við að þær verði ekki umfram 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.
Jafnframt er óskað eftir skriflegri afstöðu Eyjafjarðarsveitar til þess hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt í slíku átaki og tryggja að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki umfram framangreind mörk.
 
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið og tekur undir mikilvægi þess að sveitarfélög leggi sitt af mörkum til að stuðla að verðstöðugleika og bættum kaupmætti heimila.
Sveitarstjórn áréttar að Eyjafjarðarsveit hefur þegar gripið til aðgerða í þessum efnum og hefur leitast við að sýna gott fordæmi. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026 var ákveðið að takmarka almennar gjaldskrárhækkanir við 2,5% að jafnaði, með þeim undantekningum sem lög kveða á um. Jafnframt var fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækkaður úr 0,39% í 0,35%. Í apríl 2026 samþykkti sveitarstjórn að takmarka einnig hækkanir leikskóla- og frístundagjalda skólaársins 2026-2027 við 2,5% í stað áætlaðrar 5% vísitöluhækkunar.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að halda áfram á þessari braut og að sveitarfélög, ríkisvaldið og fyrirtæki vinni sameiginlega að markmiðum um verðstöðugleika og bættan kaupmátt. Við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 verður áfram lögð áhersla á að halda gjaldskrárhækkunum í lágmarki, samhliða því að tryggja sjálfbæran rekstur sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að svara erindinu með vísan til framangreindra aðgerða.
 
5. E2609014 - Ungmennaráð - umsóknir 2026 og tilnefningar skóla og UMF Samherja
Lagðar fram tilnefningar fulltrúa í ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tilnefningar og skipar eftirtalda fulltrúa í ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar:
 
Fulltrúar Hrafnagilsskóla:
- Aldís Hekla Jóhannesdóttir, aðalfulltrúi til tveggja ára, og Einar Hjalti Steingrímsson, varafulltrúi.
- Halldór Ingi Guðmundsson, aðalfulltrúi til eins árs, og Ísak Ari Aronsson, varafulltrúi.
 
Fulltrúar UMF Samherja til tveggja ára:
- Kristín Harpa Friðriksdóttir, aðalfulltrúi.
- Ragnheiður Birta Hákonardóttir, varafulltrúi.
 
Fulltrúar Eyjafjarðarsveitar til tveggja ára:
- Haukur Skúli Óttarsson og Heiðrún Jónsdóttir, aðalfulltrúar.
- Sara Dögg Sindradóttir og Teitur Baldursson, varafulltrúar.
 
Sveitarstjórn óskar nýskipuðu ungmennaráði velfarnaðar í störfum sínum.
 
6. E2609062 - Stefnumótun UMF Samherja 2026-2027 - Ósk um samstarf og fjárstuðning
Lagt fram erindi frá Ungmennafélaginu Samherjum þar sem óskað er eftir samstarfi Eyjafjarðarsveitar vegna stefnumótunar félagsins fyrir árin 2026-2027.
 
Sveitarstjórn þakkar Ungmennafélaginu Samherjum fyrir erindið. Sveitarstjórn vísar erindinu til umræðu í velferðar- og menningarnefnd.
 
7. E2609032 - Norðurorka - Erindi vegna lántöku 2026
Lagt fram að nýju erindi Norðurorku hf. þar sem óskað er eftir að eigendur félagsins veiti einfalda ábyrgð vegna allt að 300.000.000 kr. lántöku félagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdir í hitaveitu og fráveitu.
 
Sveitarstjórn frestaði erindinu á 682. fundi sínum og fól sveitarstjóra og oddvita að funda með verðandi stjórnarformanni stjórnar og framkvæmdarstjóra Norðurorku hf.
 
Sveitarstjóri og oddviti hafa fundað með fulltrúum stærsta eiganda Norðurorku hf.
 
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkir hér með á 683. fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Norðurorku hf. hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að kr. 300.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Bæjarstjórnin/sveitarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdir í hitaveitu og fráveitu. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Sveitarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda Norðurorku hf. til að breyta ekki ákvæðum samþykkta félagsins sem kveða á um að félagið megi ekki, að neinu leyti, fara í eigu einkaaðila.
Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Jóni Birni Hákonarsyni, sveitarstjóra, kt. 270173 3149, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Eyjafjarðarsveitar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
 
8. E2605022 - Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030
Skrifstofu- og fjármálastjóri fór yfir stöðu vinnu við gerð fjárhagsáætlunar Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027. Rætt var um helstu verkefni fram undan við áætlunargerðina, þar á meðal undirbúning fjárfestingaráætlunar, forgangsröðun framkvæmda og fundi með nefndum.
 
Framkvæmdaráð hefur óskað eftir tillögum frá forstöðumönnum sveitarfélagsins vegna vinnu við fjárhagsáætlun ársins, meðal annars varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir, viðhaldsverkefni og aðrar fjárfestingar.
 
Lagt fram til kynningar.
 
9. E2609055 - Markaðsstofa Norðurlands - Framlag sveitarfélagsins næstu þrjú árin (2027-2029)
Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands þar sem óskað er eftir áframhaldandi fjárhagslegum stuðningi Eyjafjarðarsveitar við Flugklasann Air 66N.
 
Í erindinu er farið yfir þróun beins millilandaflugs um Akureyrarflugvöll, þann árangur sem verkefnið hefur skilað og mikilvægi þess fyrir ferðaþjónustu, atvinnuuppbyggingu og byggðaþróun á Norðurlandi. Jafnframt kemur fram að óvissa ríki um áframhaldandi fjármögnun verkefnisins af hálfu ríkisins.
 
Markaðsstofa Norðurlands óskar eftir stuðningi sveitarfélagsins að fjárhæð 500 kr. á hvern íbúa á ári árin 2027-2029.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða áframhaldandi stuðning við Flugklasann Air 66N að fjárhæð 500 kr. á hvern íbúa á ári fyrir árin 2027-2029.
Sveitarstjórn áréttar mikilvægi þess að áfram verði unnið markvisst að uppbyggingu beins millilandaflugs um Akureyrarflugvöll. Verkefnið hefur mikilvæga þýðingu fyrir ferðaþjónustu, atvinnulíf og íbúa á Norðurlandi og er mikilvægt að sveitarfélög, ríki og aðrir hagaðilar standi saman að áframhaldandi uppbyggingu þess.
Sveitarstjórn leggur jafnframt áherslu á mikilvægi áframhaldandi aðkomu ríkisins að fjármögnun flugþróunar á Norðurlandi enda er öflugur stuðningur Flugþróunarsjóðs mikilvægur á meðan nýjar flugleiðir um Akureyrarflugvöll eru að þróast og festa sig í sessi.
 
Fundargerðir til kynningar
10. E2609041 - Markaðsstofa Norðurlands - fundargerð stjórnar 28.08.26
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Markaðsstofu Norðurlands frá fundi sem haldinn var föstudaginn 28. ágúst 2026.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
11. E2609048 - HNE - Fundargerð 251
Lögð fram til kynningar fundargerð 251. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
12. E2609051 - Molta - 117. stjórnarfundur
Lögð fram til kynningar fundargerð 117. fundar stjórnar Moltu, sem haldinn var þann 28. apríl 2026.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
13. E2609059 - Molta - Aðalfundur 23. september 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Moltu ehf., sem haldinn var miðvikudaginn 23. september 2026.
 
Á fundinum var meðal annars farið yfir skýrslu stjórnar og ársreikning félagsins fyrir árið 2025. Fram kom að rekstrartekjur námu 163 m.kr., hagnaður ársins 6,7 m.kr. og eiginfjárhlutfall 62,5%. Jafnframt var fjallað um aukið innvegið magn, gæði hráefnis, flokkun matarleifa og fyrirhugaðar breytingar á vinnufyrirkomulagi félagsins.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
14. E2609050 - SSNE - Fundargerð 86. stjórnarfundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 86. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE).
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
15. E2607012 - SSNE - Haustþing 2026
Lögð fram til kynningar þinggerð Haustþings Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), sem haldið var 4. september 2026.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
16. 2609011F - Framkvæmdaráð - 173
Lögð fram til kynningar fundargerð 173. fundar framkvæmdaráðs.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
17. 2609007F - Velferðar- og menningarnefnd - 24
Lögð fram til kynningar fundargerð 24. fundar velferðar- og menningarnefndar.
 
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að athuga með faglega ráðgjöf varðandi grisjun bóka, hönnun og innra skipulag fyrir nýja bókasafnið.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30
Getum við bætt efni síðunnar?