Sveitarstjórn

684. fundur 15. október 2026 kl. 08:00 - 10:05 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Gestur Páll Júlíusson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Inga Vala Gísladóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Guðmundur Sigurbjörn Óskarsson
  • Linda Lárusdóttir
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
 
Almenn erindi
 
Hermann Ingi Gunnarsson oddviti, hóf fundinn á því að leita afbrigða af dagskrá fundarins, og óskaði eftir því að taka inn nýtt mál á dagskrá: "Bókun frá stofnfundi samtaka Landbúnaðarsveitarfélaga", var það samþykkt samhljóða og verður það mál það 17. á fundinum.
 
1. E2512022 - Fyrirspurn vegna gerð vegslóða í landi Tjarna L152812
Lagt fram bréf frá Minjastofnun Íslands vegna skemmda á friðlýstum fornleifum við Granastaði í Eyjafjarðarsveit við framkvæmdir vegna lagningar vegslóða og efnistöku í landi Tjarna en Arctic Hydro hf. var veitt leyfi fyrir framkvæmdinni 13. mars sl.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra og skipulagsfulltrúa að funda með fulltrúa Minjastofnunar Íslands vegna málsins og fara yfir atvik þess og næstu skref.
 
2. E2509029 - Hrafnabjörg L235978 - Breyting á DSK fyrir frístundarhús
Tekin fyrir að nýju skipulagslýsing vegna deiliskipulags frístundasvæðis F6 í landi Höskuldsstaða og Jódísarstaða, unnin af Ívari Ragnarssyni, dags. 11.06.2026. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 20. ágúst sl. að lýsingin yrði kynnt skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lýsingin var kynnt frá 27. ágúst til 17. september 2026 og bárust sjö umsagnir á kynningartímanum. Nefndin fjallar um innkomnar umsagnir.
 
Sveitarstjórn þakkar fyrir framkomnar umsagnir og samþykkir samhljóða að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að koma þeim á framfæri við skipulagsráðgjafa. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að unnið verði áfram að tillögu að deiliskipulagi frístundasvæðis F6 í landi Höskuldsstaða og Jódísarstaða með hliðsjón af framkomnum umsögnum.
 
3. E2608015 - Sveinsbær L208354 - beiðni um heimild til deiliskipulagsbreytingar
Tekin fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hrafnagilshverfis þar sem afmarkaður yrði 546 fermetra byggingarreitur fyrir verslunar- og þjónustuhús á lóðinni Sveinsbær L208354 en lóðin er verslunar- og þjónustulóð í deiliskipulaginu. Á byggingarreitnum yrði heimilt að byggja allt að 100 fermetra hús þar sem hámarksvegg-/þakhæð yrði 5,0 m.
 
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkt verði að gera óverulega breytingu á deiliskipulagi Hrafnagilshverfis skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem tekur til Sveinsbæjar L208354.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fyrirliggjandi tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hrafnagilshverfis vegna Sveinsbæjar L208354 verði grenndarkynnt, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
Heimilt verður að stytta tímabil grenndarkynningar ef allir þeir sem hagsmuna eiga að gæta hafa lýst skriflega yfir með áritun sinni að þeir geri ekki athugasemdir við tillöguna, sbr. 5.9.2. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
 
Að lokinni grenndarkynningu verði málið lagt fyrir skipulagsnefnd.
 
4. E2608056 - Vogar íbúðarbyggð - staðföng
Fyrir fundinum liggur ábending frá íbúum í Vogum í landi Syðri-Varðgjár þar sem óskað er eftir að settur verði upp vegvísir að Vogum við Eyjafjarðarbraut eystri. Jafnframt er óskað eftir hraðamerkingu á götuna. Óskað var umsagna HMS og Vegagerðarinnar um staðföng og staðvísa á svæðinu og fylgja þær fundargögnum.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar um að staðföng í Vogum í landi Syðri-Varðgjár verði samræmd þannig að allar fasteignir með aðkomu um veginn að Vogum fái staðvísinn Vogar ásamt húsnúmeri 1-9, með það að markmiði að skýra aðkomu neyðaraðila.
 
Sveitarstjórn felur skipulagsfulltrúa að útbúa tillögu að staðföngum í samræmi við leiðbeiningar HMS, kynna hana eigendum viðkomandi fasteigna og gefa þeim kost á að koma á framfæri athugasemdum. Að lokinni kynningu verði málið lagt fyrir skipulagsnefnd að nýju ásamt þeim athugasemdum sem berast.
 
5. E2610006 - Holt - Umsókn um byggingarheimild
Byggingarfulltrúa hefur borist umsókn frá eigendum Holts L236419 um byggingu stakstæðs 196 m² bílskýlis suðaustan við núverandi íbúðarhús á lóðinni. Óskað er umsagnar skipulagsnefndar um áformin.
 
Berglind Kristinsdóttir vék af fundi undir afgreiðslu þessa liðs.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða erindi um byggingu 196 m² stakstæðs bílskýlis á lóðinni Holti L236419.
Þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en málshefjanda og sveitarfélagsins samþykkir sveitarstjórn jafnframt að fallið verði frá grenndarkynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
6. E2601009 - Syðri-Varðgjá (L152799) - deiliskipulag íbúðarsvæðis
Fyrir fundinum liggur uppfærð tillaga að deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Syðri-Varðgjár L152799, dags. 9. október 2026, unnin af Landslagi ehf. Tillögunni hefur verið breytt eftir umfjöllun skipulagsnefndar 14. september 2026.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að tillaga að deiliskipulagi íbúðarsvæðis í landi Syðri-Varðgjár L152799, dags. 9. október 2026 og unnin af Landslagi ehf., verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn felur skipulagsfulltrúa að annast auglýsingu tillögunnar og áframhaldandi meðferð málsins í samræmi við skipulagslög.
 
7. E2610019 - Ályktun skólanefndar vegna breytingar á námsmati í grunnskólum
Lögð fram ályktun skólanefndar Eyjafjarðarsveitar, dags. 12. október 2026, vegna fyrirhugaðra breytinga á námsmati í grunnskólum. Í ályktuninni eru gerðar athugasemdir við undirbúning og innleiðingu nýs einkunnakvarða og bent á óvissu varðandi framkvæmd námsmats. Skólanefnd skorar á mennta- og barnamálaráðherra að fresta fyrirhuguðum breytingum þar til nægur tími hefur gefist til undirbúnings og framkvæmd þeirra hefur verið skýrð betur.
 
Sveitarstjórn tekur heilshugar undir ályktun skólanefndar og þær áhyggjur sem þar koma fram vegna undirbúnings og innleiðingar fyrirhugaðra breytinga á námsmati í grunnskólum.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að skora á mennta- og barnamálaráðherra að fresta innleiðingu breytinganna þar til tryggt hefur verið að nægur tími gefist til undirbúnings, framkvæmd námsmats hafi verið skýrð með fullnægjandi hætti og skólasamfélaginu gefist raunhæft svigrúm til að aðlagast breytingunum.
 
8. E2609060 - Umsókn um rekstrarstyrk fyrir Kvennaathvarf á Akureyri 2027
Lagt fram erindi frá Samtökum um kvennaathvarf þar sem óskað er eftir stuðningi sveitarfélaga á Norðurlandi eystra við rekstur Kvennaathvarfsins á Akureyri árið 2027.
 
Kvennaathvarfið á Akureyri hefur verið starfrækt frá árinu 2020 og veitir konum og börnum sem flýja þurfa heimili sín vegna ofbeldis tímabundið húsaskjól, ráðgjöf og stuðning. Jafnframt er boðið upp á viðtalsþjónustu og fræðslu á svæðinu.
 
Í erindinu er óskað eftir þátttöku sveitarfélaga á Norðurlandi eystra í húsnæðiskostnaði athvarfsins fyrir árið 2027, sem áætlaður er samtals 4,3 m.kr. Hlutur Eyjafjarðarsveitar samkvæmt fyrirliggjandi skiptingu nemur 160.571 kr.
 
Velferðar- og menningarnefnd tekur jákvætt í erindið og telur mikilvægt að sveitarfélög á Norðurlandi eystra standi sameiginlega að stuðningi við starfsemi Kvennaathvarfsins á Akureyri. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að Eyjafjarðarsveit taki þátt í húsnæðiskostnaði athvarfsins árið 2027 samkvæmt fyrirliggjandi skiptingu, að fjárhæð 160.571 kr.
 
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og samþykkir að styrkja Kvennaathvarfið um 160.571 kr. tekur undir mikilvægi þess að sveitarfélög á Norðurlandi eystra standi sameiginlega að stuðningi við starfsemi Kvennaathvarfsins á Akureyri.
 
Sveitarstjórn samþykkir einnig samhljóða að óska eftir að erindið verði tekið til umræðu á vettvangi SSNE, meðal annars með það að markmiði að sveitarfélög á svæðinu móti sameiginlega stefnu í fjármögnun starfsseminnar.
 
9. E2603011 - Kirkjugarðar Laugalandsprestakalls - Stækkun kirkjugarðsins á Grund
Beiðni frá Kirkjugörðum Laugalandsprestakalls um fjárframlag til að halda áfram vinnu við stækkun kirkjugarðsins á Grund og til minni háttar lagfæringa á öðrum görðum.
 
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og samþykkir samhljóða að vísa því til vinnu við fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027.
 
10. E2605022 - Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030
Farið yfir stöðu vinnu við fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027.
 
Sveitarstjórn fór yfir stöðu vinnu við fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027 og þær forsendur sem liggja fyrir á þessu stigi. Vinna við endanlegar tekju-, launa- og verðlagsforsendur stendur enn yfir og verður áætlunin uppfærð eftir því sem áreiðanlegri forsendur liggja fyrir.
 
Sveitarstjórn leggur áherslu á að fjárhagsáætlun ársins 2027 byggi á varfærnum og raunhæfum forsendum, að rekstur sveitarfélagsins verði sjálfbær og að svigrúm verði áfram til nauðsynlegra fjárfestinga og uppbyggingar.
 
Sveitarstjórn hefur þegar samþykkt að almennar gjaldskrárhækkanir verði að jafnaði ekki umfram 2,5% og verður sú ákvörðun höfð að leiðarljósi við áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunina.
 
Við gerð fjárfestingaráætlunar verði megináhersla lögð á viðbyggingu við Hrafnagilsskóla. Samhliða því verði dregið úr öðrum fjárfestingum og þeim forgangsraðað með hliðsjón af fjárhagslegri getu sveitarfélagsins, nauðsyn framkvæmdanna og áhrifum þeirra á þjónustu við íbúa. Markmiðið verði að skapa svigrúm fyrir framkvæmdina við Hrafnagilsskóla án þess að auka skuldsetningu sveitarfélagsins umfram það sem fjárhagur þess ber.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að áfram verði unnið að fjárhagsáætlun ársins 2027 á þessum grunni og að uppfærð staða verði lögð fyrir sveitarstjórn eftir því sem vinnunni vindur fram.
 
17. E2610024 - Bókun frá stofnfundi samtaka Landbúnaðarsveitarfélaga
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar tekur heilshugar undir bókun stofnfunds Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga og verður hún send sem umsögn sveitarfélagsins í samráðsgátt stjórnvalda um mál. S-196/2026.
 
„Stofnfundur Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga lýsir yfir miklum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á tollflokkun osts með viðbættri jurtaolíu. Samtökin telja óeðlilegt að málið sé enn á ný tekið upp enda hefur það verið til umfjöllunar hjá stjórnvöldum og á dómstólum um árabil og gildandi framkvæmd verið við lýði þann tíma.
 
Samtökin leggja áherslu á að breytingin snúist ekki einungis um tollflokkun einstakrar vöru heldur geti haft víðtæk áhrif á samkeppnisstöðu innlendrar mjólkurframleiðslu og þá virðiskeðju sem byggir á störfum bænda, afurðavinnslu, flutningum og fjölbreyttri þjónustustarfsemi um land allt. Verulegur hluti íslenskrar mjólkurframleiðslu fer til ostagerðar og geta breytingarnar því haft áhrif langt út fyrir einstök bú og náð til fjölmargra sveitarfélaga þar sem landbúnaður er ein helsta undirstaða atvinnulífs. Að ógleymdu því að bændur hafa farið í miklar fjárfestingar í sinni framleiðslu á síðustu árum til að efla samkeppnishæfni sína og áðurnefndar breytingar geta því haft mikil áhrif á rekstarhæfni þeirra búa. Rétt er að hafa í huga að um 12% af mjólkurframleiðslu hérlendis fara í framleiðslu á rifnum osti og mjólkursamlag á Egilsstöðum hefur sérhæft sig í framleiðslu á Mozzarellaosti eingöngu þannig að um er ræða mikil áhrif einnig á störf víða um land.
 
Samtökin minna jafnframt á að öflug innlend matvælaframleiðsla er ein af grunnforsendum fæðuöryggis þjóðarinnar. Á tímum aukinnar óvissu í alþjóðamálum er mikilvægt að stjórnvöld taki ákvarðanir sem styðja við innlenda framleiðslugetu og tryggja að landið búi áfram yfir sterkum innviðum til matvælaframleiðslu.
 
Stofnfundur Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga skorar því á Alþingi og ríkisstjórn að falla frá fyrirhuguðum breytingum og tryggja að við mat á málinu verði tekið fullt tillit til áhrifa þess á fæðuöryggi, verðmætasköpun í landbúnaði og byggðafestu í landinu.“
 
Fundargerðir til kynningar
 
11. E2610003 - Héraðsskjalasafnið á Akureyri - Ársskýrsla 2025
Lögð fram til ársskýrsla Héraðsskjalasafnsins á Akureyri fyrir árið 2025.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
12. E2609066 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 1002
Lögð fram til kynningar fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
13. E2610017 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 1003
Lögð fram til kynningar fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
14. E2610013 - Norðurorka - Fundargerð 326. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 326. fundar stjórnar Norðurorðu.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
15. 2610003F - Velferðar- og menningarnefnd - 25
Lögð fram til kynningar fundargerð 25. fundar velferðar- og menningarnefndar.
 
Fjórði dagskrárliður fundarins, Stefnumótun UMF Samherja 2026-2027 - Ósk um samstarf og fjárstuðning, vísað til vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
 
Að öðru leyti gefur fundargerðin ekki tilefni til ályktunar.
 
16. 2610002F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 456
Lögð fram til kynningar fundargerð 456. fundar skipulagsnefndar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:05
Getum við bætt efni síðunnar?