Sveitarstjórn

685. fundur 29. október 2026 kl. 08:00 - 10:15 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Gestur Páll Júlíusson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Inga Vala Gísladóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Guðmundur S. Óskarsson
  • Linda Lárusdóttir
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
 
Dagskrá:
 
Almenn erindi
Hermann Ingi Gunnarsson oddviti, hóf fundinn á því að leita afbrigða af dagskrá fundarins, og óskaði eftir því að taka inn nýtt mál á dagskrá: "SSNE - Fundargerð 8 Farsældarráðs Norðurlands eystra - Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða" og það samþykkt samhljóða og verður það mál það 20. á fundinum.
1. E2411007 - Leifsstaðir II L152714 - breyting á aðal- og deiliskipulagi, hótel orlofshús
Lagðar fram uppfærðar tillögur að breytingu á aðal- og deiliskipulagi fyrir Leifsstaði II vegna uppbyggingar á svæðinu. Upprunalegar tillögur voru auglýstar skv. 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 í vor þar sem athugasemdir bárust m.a. frá nágrönnum og var málinu frestað á fundi skipulagsnefndar 27. apríl sl. Með uppfærðum tillögum er komið til móts við athugasemdir sem bárust við auglýsingu fyrri tillagna, m.a. með fækkun gistirúma og minnkuðu hámarks-byggingarmagni.
 
Lagðar fram uppfærðar tillögur að breytingu á aðal- og deiliskipulagi fyrir Leifsstaði II vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á svæðinu.
 
Tillögurnar hafa verið til kynningar og umsagnar á nokkrum stigum skipulagsferlisins. Skipulagslýsing var kynnt vorið 2025, vinnslutillaga haustið 2025 og endanlegar tillögur auglýstar samkvæmt 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 3. mars til 17. apríl 2026. Við auglýsingu bárust athugasemdir, meðal annars frá íbúum og landeigendum í nágrenni Leifsstaða II. Að loknu auglýsingarferli var afgreiðslu málsins frestað í skipulagsnefnd og farið yfir framkomnar athugasemdir og mögulegar breytingar á tillögunum.
 
Athugasemdir íbúa og annarra hagsmunaaðila lúta einkum að umfangi fyrirhugaðrar uppbyggingar, aukinni umferð og umferðaröryggi á Leifsstaðavegi, hljóðvist, ásýnd og lýsingu, auk vatns- og fráveitumála.
 
Við áframhaldandi meðferð málsins hefur verið komið til móts við athugasemdir sem fram hafa komið og gripið til eftirfarandi aðgerða:
 
- Umfang uppbyggingar hefur verið minnkað. Heimiluðum gistirýmum, samkvæmt deiliskipulagstillögunni, hefur verið fækkað úr 368 í 256, heildarbyggingarmagn minnkað úr 7.517 m² í 6.497 m². Auk þess minnkar skipulagssvæðið úr 9,6 ha í 8,6 ha.
- Fjöldi fyrirhugaðra gistieininga hefur verið minnkaður og vegir og byggingarreitir aðlagaðir að breyttri byggingargerð.
- Í uppfærðu deiliskipulagi er gert ráð fyrir vegöxlum beggja vegna aðkomuvegar að hótelinu og bundnu yfirborði akstursleiða innan deiliskipulagssvæðisins til að draga úr ryk- og hávaðamengun.
- Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 17. september 2026 að fara fram á við Vegagerðina að hámarkshraði á Knarrarbergsvegi og Leifsstaðavegi verði lækkaður úr 70 km/klst. í 50 km/klst. Með þeirri aðgerð er sérstaklega brugðist við ábendingum um umferðaröryggi, hávaða og rykmengun.
- Veitumál hafa verið útfærð nánar. Gert er ráð fyrir að uppbygging vatnsveitu verði unnin í samráði við Norðurorku og að neysluvatn komi frá vatnsveitu með gilt starfsleyfi. Þá er gert ráð fyrir að allt skipulagssvæðið tengist stækkuðu eða nýju hreinsivirki og að fráveitulausnir uppfylli gildandi reglur um fráveitur og skólphreinsun.
- Í skipulagsskilmálum er jafnframt lögð áhersla á að varðveita umhverfisgæði svæðisins. Lýsingu skal halda hófstilltri og almennt skal vera ró á svæðinu milli kl. 22:00 og 07:00.
 
Sveitarstjórn telur að með framangreindum breytingum og aðgerðum hafi verið brugðist við með málefnalegum hætti við þeim athugasemdum sem bárust, jafnframt því sem haldið er í meginmarkmið skipulagstillagnanna. Sveitarstjórn tekur undir mat skipulagsnefndar að þær breytingar sem gerðar hafa verið eftir auglýsingu dragi úr umfangi uppbyggingarinnar og feli ekki í sér breytingu á auglýstum tillögum í grundvallaratriðum, sbr. 1. mgr. 32. gr. og 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki er því talin ástæða til að auglýsa tillögurnar að nýju.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða uppfærðar tillögur að breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna Leifsstaða II og breytingu á deiliskipulagi Leifsstaða II, ásamt fyrirliggjandi afgreiðslu á þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust við auglýsingu tillagnanna, sbr. 32., 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
Skipulagsfulltrúa er falið að annast áframhaldandi málsmeðferð og vinna að gildistöku skipulaganna í samræmi við ákvæði skipulagslaga.
 
2. E2604002 - Núpá og Þormóðsstaðaá - beiðni um breytingu á aðalskipulagi vegna vatnsaflsvirkjana
Fyrir fundinum liggur skipulagslýsing, dags. 22. október 2026, sem COWI vann fyrir Arctic Hydro hf. Hún varðar breytingu á aðalskipulagi og gerð deiliskipulags fyrir tvær vatnsaflsvirkjanir í Sölvadal og er unnin í framhaldi af afgreiðslu sveitarstjórnar 16. apríl 2026. Þá heimilaði sveitarstjórn málsaðila að vinna skipulagslýsingu skv. 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin á aðalskipulagi felst í því að landnotkun á virkjanasvæðunum verði breytt úr landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði, þar sem gert verði ráð fyrir stíflum og lónum. Fyrirhugað er að vinna deiliskipulag fyrir báðar virkjanir samhliða aðalskipulagsbreytingunni og að framkvæmdirnar fari í umhverfismat.
 
Guðmundur Sigurbjörn Óskarsson og Linda Lárusdóttir véku af fundi undir afgreiðslu þessa dagskrárliðs.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að skipulagslýsingin verði kynnt í samræmi við 30. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
3. E2610028 - Bringa L152577 - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku á svæði E10
Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn frá Bringu ehf. þar sem sótt erum að taka 15.000 rúmmetra af efni á svæði E10 sem er á áreyrum Eyjafjarðarár í landi Bringu.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku allt að 15.000 m³ á svæði E10, í samræmi við tillögu skipulagsnefndar. Efnistaka er óheimil frá byrjun maí til loka október og jafnframt er efnistaka úr árfarvegi Eyjafjarðarár óheimil.
 
Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt 11. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.
 
4. E2302010 - Finnastaðaá - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku 2023
Sölvastaðir ehf. óska eftir að fá að framlengja framkvæmdaleyfi til efnistöku úr Finnastaðaá á svæði E17 sem rennur út 30. október nk. Samkvæmt upplýsingum frá leyfishafa á eftir að taka 11.719 rúmmetra af efni af þeim 20.500 rúmmetrum sem framkvæmdaleyfið heimilaði. Óskað er eftir að framlengja leyfið til 1. apríl 2027.
 
Sveitarstjórn óskar eftir umsögn Vegagerðarinnar vegna þeirra athugasemda sem fram komu í fyrri umsögn stofnunarinnar áður en tekin verður afstaða til framlengingar framkvæmdaleyfisins.
 
5. E2606018 - Umsagnarbeiðni - Vaðlaborgir B - deiliskipulag íbúðarsvæðis
Svalbarðsstrandarhreppur óskar umsagnar sveitarfélagsins á deiliskipulagstillögu fyrir íbúðarbyggð í Vaðlaborgum B en tillagan er í auglýsingu skv. 1 mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010 og er umsagnarfrestur til 21. nóvember nk. Sveitarstjórn veitti umsögn um vinnslutillöguna 20. ágúst sl. þar sem ekki voru gerðar athugasemdir en þó lagt til að kanna möguleikann á að tengja íbúðarsvæðin með göngustíg.
 
Sveitarstjórn fagnar því að í tillögunni hafi verið bætt við göngustíg milli íbúðarsvæða, í samræmi við fyrri umsögn sveitarstjórnar frá 20. ágúst 2026.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við auglýsta deiliskipulagstillögu.
 
6. E2607024 - Syðra-Laugaland 2 L236505 - umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi gistingar
Tekin fyrir að nýju umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Norðurlandi eystra vegna umsóknar SL2 ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-D, að Prestssetrinu, Syðra-Laugalandi 2. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 3. september sl. að afla upplýsinga um grenndaráhrif vegna fyrirhugaðs reksturs og bárust þrjár athugasemdir frá nágrönnum.
 
Sveitarstjórn hefur farið yfir framkomnar athugasemdir og telur þær ekki gefa tilefni til að mæla gegn útgáfu rekstrarleyfis en vekur athygli á að í þeim er kvartað undan ónæði frá starfseminni. Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við útgáfu rekstrarleyfisins, en beinir því til rekstraraðila að hann hagi rekstri gististaðarins þannig að ekki hljótist af honum óhóflegt ónæði fyrir nágranna, sérstaklega vegna hávaða. Vísar sveitarstjórn sérstaklega til 17.greinar reglugerðar 1277/2016 í þessu tilfelli.
 
7. E2610044 - Nýtt fyrirkomulag afsláttarkóða Loftbrúar
Umræður um nýtt fyrirkomulag afsláttarkóða Loftbrúar.
 
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar lýsir yfir verulegum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum sem boðaðar hafa verið. Loftbrú er mikilvægur þáttur í að jafna búsetuskilyrði og aðgengi landsmanna að þjónustu, ekki síst þar sem stór hluti sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu, stjórnsýslu, menningar og annarrar opinberrar þjónustu er staðsettur á höfuðborgarsvæðinu.
 
Með fastri niðurgreiðslu í stað hlutfallslegs afsláttar færist kostnaður vegna hækkandi flugfargjalda í auknum mæli yfir á farþega. Breytingin getur sérstaklega komið illa við þá sem þurfa að ferðast með skömmum fyrirvara, meðal annars vegna heilbrigðisþjónustu, fjölskylduaðstæðna eða annarra brýnna erinda og hafa því takmarkaða möguleika á að velja ódýrustu fargjöldin.
 
Sveitarstjórn telur mikilvægt að Loftbrú haldi raunverulegu verðgildi sínu og íbúar landsbyggðarinnar sitji við sama borð og íbúar höfuðborgarsvæðisins og staða þeirra íbúa skerðist ekki vegna breytinga á fyrirkomulagi verkefnisins. Sveitarstjórn gagnrýnir jafnframt að svo veigamiklar breytingar á mikilvægum byggðaaðgerðum séu boðaðar án víðtæks samráðs við sveitarfélög og íbúa þeirra svæða sem kerfið þjónar.
 
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar skorar á stjórnvöld að endurskoða boðaðar breytingar og leggur áherslu á að skoðaðar verði tillögur Þórodds Bjarnasonar prófessors sem hann kynnti á dögunum. Þær fela í sér fyrirsjáanleika sem ráðuneytið kallar eftir og hefur verið hluti raka þess að festa afslátt við krónutölu en um leið tryggja þær íbúum loftbrúarsvæða fast verð á flugmiða.
 
8. E2610020 - Endurskoðun stjórnskipulags og erindisbréfa nefnda Eyjafjarðarsveitar
Lagt fram til umræðu að hefja heildstæða endurskoðun á nefndaskipan Eyjafjarðarsveitar, heitum nefnda og erindisbréfum þeirra. Markmið endurskoðunarinnar er að skýra verksvið og ábyrgð nefnda, samræma verkaskiptingu og uppfæra erindisbréf með hliðsjón af gildandi lögum og núverandi starfsemi sveitarfélagsins. Jafnframt verði skipurit sveitarfélagsins uppfært í samræmi við niðurstöður endurskoðunarinnar.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að hefja endurskoðun á samþykktum, nefndaskipan, heitum nefnda og erindisbréfum. Sveitarstjóra og skrifstofu- og fjármálastjóra er falið að vinna undirbúningsvinnu og leggja fram til umræðu í sveitarstjórn.
 
9. E2605022 - Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030
Farið yfir vinnu við fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027 og helstu breytingar frá síðustu yfirferð.
 
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030 verður lögð fram á næsta fundi sveitarstjórnar þann 12. nóvember 2026.
 
20. E2609037 - SSNE - Fundargerð 8 Farsældarráðs Norðurlands eystra - Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða
Áður lagt fram til kynningar.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030.
 
Fundargerðir til kynningar
10. E2610033 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 1004
Lögð fram til kynningar fundargerð 1004. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
 
Lagt fram til kynningar.
 
11. E2610025 - Norðurorka - Fundargerð 327. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 327. fundar stjórnar Norðurorku.
 
Lagt fram til kynningar.
 
12. E2610041 - Norðurorka - Fundargerð 328. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 328. fundar stjórnar Norðurorku.
 
Lagt fram til kynningar.
 
13. E2610042 - Norðurorka - Fundargerð 329. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 329. fundar stjórnar Norðurorku.
 
Lagt fram til kynningar.
 
14. E2610012 - Norðurorka - Auka aðalfundur 20.10.2026
Lögð fram til kynningar fundargerð auka aðalfundar Norðurorku haldinn 20. október 2026.
 
Lagt fram til kynningar.
 
15. E2610040 - SSNE - Fundargerð 87. stjórnarfundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 87. fundar stjórnar SSNE.
 
Lagt fram til kynningar.
 
16. 2610010F - Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar - 286
Lögð fram til kynningar fundargerð 286. fundar skólanefndar.
 
Lagt fram til kynningar.
 
17. 2610009F - Ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar - 17
Lögð fram til kynningar fundargerð 17. fundar ungmennaráðs.
 
Lagt fram til kynningar.
 
Sveitarstjórn óskar nýju ungmennaráði velferðar í störfum sínum og leggur til að sveitarstjórn fundi sameiginlega með ungmennaráði í upphafi árs 2027.
 
18. 2610008F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 457
Lögð fram til kynningar fundargerð 458. fundar skipulagsnefndar.
 
Lagt fram til kynningar.
 
19. 2610013F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 458
Lögð fram til kynningar fundargerð 458. fundar skipulagsnefndar.
 
Lagt fram til kynningar.
 
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar óskar Freyvangsleikhúsinu til hamingju með leiksýninguna Útsynning. Starfssemi leikhússins er gríðarlega mikilvæg fyrir menningarlíf Eyjafjarðarsveitar og sveitarstjórn vonar að áframhaldandi gróska verði í starfssemi félagsins.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15
 
Getum við bætt efni síðunnar?