Sveitarstjórn

686. fundur 12. nóvember 2026 kl. 08:00 - 10:45 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Gestur Páll Júlíusson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Inga Vala Gísladóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Guðmundur S. Óskarsson
  • Linda Lárusdóttir
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
 
Dagskrá:
 
Almenn erindi
1. E2210043 - Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022
Lögð fram að nýju tillaga að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037, að lokinni auglýsingu. Tillagan var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var auglýsingatímabilið frá 25. ágúst til 7. október 2026. Alls bárust 24 umsagnir og athugasemdir. Málið var síðast á dagskrá nefndarinnar 19. októver sl. þar sem farið var yfir athugasemdir og viðbrögð við þeim og er nú áframhald á þeirri yfirferð.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að skipulagshönnuði verði falið að uppfæra skipulagstillöguna í samræmi við afgreiðslu innkominna umsagna og athugasemda í samræmi við umræður á fundinum.
Að lokinni uppfærslu verði tillagan lögð aftur fyrir Skipulagsnefnd til afgreiðslu.
 
2. E2611011 - Aðgerðir í aðgerðaáætlun vatnaáætlunar 2028-2033
Erindi frá Umhverfis- og Orkustofnun þar sem óskað er eftir athugsemdum sveitarfélagsins fyrir 23. nóvember vegna álagsgreiningu vatnshlota.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
 
3. E2512022 - Fyrirspurn vegna gerð vegslóða í landi Tjarna L152812
Lagt fram minnisblað frá fundi sveitarfélagsins og Minjastofnunar Íslands um skemmdir á fornleifum við Granastaði.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að uppfæra verklag við útgáfu framkvæmdaleyfa þannig að óskað verði umsagnar Minjastofnunar Íslands áður en endanleg afstaða er tekin til leyfisveitingar á svæðum þar sem þurfa þykir.
 
4. E2606001 - Sjöan L152852 - Merkjalýsing
Lögð fram merkjalýsing dags. 17.09.2026 unnin af Hákoni Jennssyni þar sem verið er að afmarka lóðina Sjöuna en lóðin er skv. meðfylgjandi deiliskipulagsbreytingu Þórustaða 2 sem samþykkt var í sveitarstjórn 08.04.2021. Lóðin Sjöan er til í fasteignaskrá og hefur sama landnúmer og Þórustaðir 2 en með merkjalýsingu þessari er lóðin hnitsett og fær aðskilið landnúmer. Innan lóðar er einbýli F2160000, mhl.nr. 12.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að dagsetning deiliskipulagsbreytingar í texta merkjalýsingar og texta uppdráttar verði leiðrétt úr 28.03.2020 í 08.04.2021. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að bætt verði inn kvöð í merkjalýsinguna um að aðkoma að lóðinni verði tryggð í gegnum landeignina Þórustaði 2 L152852. Að öðru leyti gerir sveitarstjórn ekki athugasemdir við framlagða merkjalýsingu og samþykkir hana á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
 
5. E2611003 - Gamla þinghúsið - framtíðarnotkun
Umræður um framtíðarnotkun gamla Þinghússins í Hrafnagilshverfi.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að haldinn verði íbúafundur 24. nóvember kl. 18:00 um framtíðarnotkun gamla Þinghússins og skipulagssvæðisins þar í kring í Hrafnagilshverfi og felur sveitarstjóra að undirbúa fundinn.
 
6. E2611010 - Félags- og húsnæðismálaráðuneytið - fjárhagslegur stuðningur vegna áskriftarkostnaðar sem fellur til hjá sveitarfélögum við samræmda grunnskráningu í þjónustukerfum fyrir stuðnings- og stoðþjónustu
Lagt fram erindi frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu vegna fjárhagslegs stuðnings til sveitarfélaga vegna áskriftarkostnaðar sem fellur til við samræmda grunnskráningu í þjónustukerfum fyrir stuðnings- og stoðþjónustu.
 
Sveitarstjórn samþykkir erindið fyrir sitt leyti og vísar því til samráðsvettvangs viðeigandi málaflokka.
 
7. E2609011 - Endurnýjun samnings við Minjasafnið um rekstur Smámunasafns Sverris Hermannssonar
Lögð fram afgreiðsla Velferðar- og menningarnefndar vegna endurnýjunar samnings við Minjasafnið á Akureyri um rekstur sýningar Smámunasafns Sverris Hermannssonar. Nefndin áréttar fyrri afstöðu sína um mikilvægi langtímasamnings og hvetur sveitarstjórn til að ljúka samningsgerðinni sem fyrst.
 
Sveitarstjórn tekur undir afgreiðslu Velferðar- og menningarnefndar og felur sveitarstjóra að gera drög að samningi við Minjasafnið á Akureyri og leggja fyrir nefndina.
 
8. E2610008 - UNG Esveit - þróunaráætlun frístunda- og félagsmiðstöðvastarfs
Lögð fram afgreiðsla Velferðar- og menningarnefndar frá 26. fundi nefndarinnar vegna hugmynda að þróun frístunda- og félagsmiðstöðvastarfs í Eyjafjarðarsveit.
 
Nefndin tók jákvætt í fyrirliggjandi hugmyndir og leggur til við sveitarstjórn að þær verði samþykktar.
 
Sveitarstjórn tekur jákvætt í framlagðar hugmyndir og samþykkir að unnið verði áfram að þróun UNG Esveit á grundvelli fyrirliggjandi kynningar. Íþrótta- og tómstundafulltrúa er falið að vinna áfram að útfærslu verkefnisins, þar á meðal stjórnun og skipulagi starfsins, og leggja nánari tillögur fyrir sveitarstjórn eftir því sem við á.
Ákvarðanir sem fela í sér auknar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins verði lagðar sérstaklega fyrir sveitarstjórn.
 
9. E2610020 - Endurskoðun stjórnskipulags og erindisbréfa nefnda Eyjafjarðarsveitar
Í framhaldi af ákvörðun sveitarstjórnar um heildstæða endurskoðun á stjórnskipulagi Eyjafjarðarsveitar, nefndaskipan og erindisbréfum eru lögð fram drög að samþykkt um stjórn Eyjafjarðarsveitar til fyrri umræðu.
 
Við endurskoðunina hefur verið lögð áhersla á að skýra stjórnskipulag sveitarfélagsins, verksvið og ábyrgð nefnda og samræma ákvæði samþykktarinnar við fyrirhugaða nefndaskipan og núverandi starfsemi sveitarfélagsins.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að taka uppfærð drög að samþykkt um stjórn Eyjafjarðarsveitar til fyrri umræðu og vísar þeim til áframhaldandi vinnu í samræmi við umræður á fundinum.
 
10. E2610031 - Framkvæmdir ársins 2027
Lögð fram afgreiðsla Framkvæmdaráðs vegna fyrirhugaðra framkvæmda Eyjafjarðarsveitar árið 2027 og fjárfestingaráætlunar 2027 og 2028-2030.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi fjárfestingaráætlun fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030.
 
11. E2605022 - Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030
Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027 ásamt þriggja ára áætlun 2028-2030 er lögð fram til fyrri umræðu.
 
Við vinnslu áætlunarinnar hefur verið tekið mið af áætlaðri útkomu ársins 2026 og uppfærðum forsendum Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir fjárhagsáætlanagerð sveitarfélaga 2027-2031. Forsendurnar byggja meðal annars á þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands og mati fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
 
Í uppfærðum forsendum er gert ráð fyrir að verðbólga verði 3,6% árið 2027, launavísitala hækki um 5,0%, hagvöxtur verði 1,9% og atvinnuleysi 5,2%. Þá er gert ráð fyrir að útsvarsstofn sveitarfélaga hækki um 5,6% frá fyrra ári.
 
Samkvæmt fyrirliggjandi drögum er gert ráð fyrir að rekstrartekjur A- og B-hluta verði um 2.392 m.kr. árið 2027, rekstrargjöld fyrir afskriftir um 1.938 m.kr. og rekstrarniðurstaða ársins jákvæð um 238 m.kr. Veltufé frá rekstri er áætlað um 358 m.kr. og handbært fé frá rekstri um 359 m.kr.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027 ásamt þriggja ára áætlun 2028-2030 og vísar áætluninni til síðari umræðu.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra og skrifstofu- og fjármálastjóra að vinna áfram að fjárhagsáætluninni fram að síðari umræðu á grundvelli framlagðra gagna, umræðu á fundinum og þeirra breytinga sem kunna að verða gerðar á einstökum málaflokkum, fjárfestingaráætlun og fjármögnun.
Áfram verði unnið að yfirferð einstakra málaflokka, launaáætlunar, fjárfestinga og fjármögnunar fram að síðari umræðu með það að markmiði að tryggja sjálfbæran rekstur og hæfilegt svigrúm til fjárfestinga til lengri tíma.
 
Fundargerðir til kynningar
12. E2611004 - HNE - Fundargerð 252
Lögð fram til kynningar fundargerð 252. fundar stjórnar Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra ásamt fjárhagsáætlun HNE fyrir árið 2027.
 
Lögð fram til kynningar.
 
13. E2611007 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 1005
Lögð fram til kynningar fundargerð 1005. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
 
Lögð fram til kynningar.
 
14. 2611001F - Öldungaráð - 6
Lögð fram til kynningar fundargerð 6. fundar öldungaráðs.
 
Lögð fram til kynningar.
 
15. 2610021F - Velferðar- og menningarnefnd - 26
Lögð fram til kynningar fundargerð 26. fundar velferðar- og menningarnefndar.
 
Lögð fram til kynningar.
 
16. 2610019F - Framkvæmdaráð - 174
Lögð fram til kynningar fundargerð 174. fundar framkvæmdaráðs.
 
Lögð fram til kynningar.
 
17. 2611006F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 459
Lögð fram til kynningar fundargerð 459. fundar skipulagsnefndar.
 
Lögð fram til kynningar.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:45
 
Getum við bætt efni síðunnar?