Sveitarstjórn

687. fundur 26. nóvember 2026 kl. 08:00 - 10:30 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Gestur Páll Júlíusson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Inga Vala Gísladóttir
  • Hákon Bjarki Harðarson
  • Guðmundur S. Óskarsson
  • Linda Lárusdóttir
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
 
Dagskrá:
 
Almenn erindi
1. E2210043 - Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022
Fyrir liggur tillaga að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037, að lokinni auglýsingu. Tillagan var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var auglýsingatímabilið frá 25. ágúst til 7. október 2026. Alls bárust 24 umsagnir og athugasemdir. Málið var síðast á dagskrá nefndarinnar 9. nóvember sl. þar sem skipulagshönnuði var falið að uppfæra tillöguna í samræmi við afgreiðslu nefndarinnar á innkomnum umsögnum.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037 ásamt afgreiðslu innkominna umsagna og athugasemda. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn rammahluta aðalskipulags, „Þróun byggðar í Vaðlaheiði“, sem fylgir tillögunni sem viðauki.
Skipulagshönnuði er falið að uppfæra skipulagsgögnin í samræmi við afgreiðslu innkominna athugasemda og fyrirliggjandi leiðréttingar.
Að lokinni uppfærslu er skipulagsfulltrúa falið að senda aðalskipulagstillöguna ásamt tilheyrandi gögnum til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) til staðfestingar samkvæmt 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og annast áframhaldandi málsmeðferð.
 
2. E2308016 - Ytri-Varðgjá deiliskipulag íbúðarsvæðis (0623/2023)
Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi þar sem mælst er til þess að sveitarstjórn afturkalli deiliskipulag íbúðarsvæðis í landi Ytri-Varðgjár, sem öðlaðist gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda 3. júlí 2025, og breyti skipulaginu þannig að það uppfylli ákvæði d-liðar 5.3.2.5 gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
 
Sveitarstjórn hefur tekið fyrirliggjandi erindi og fyrri athugasemdir Skipulagsstofnunar til efnislegrar umfjöllunar.
 
Sveitarstjórn telur að ágreiningur málsins lúti fyrst og fremst að efnislegri útfærslu deiliskipulagsins og túlkun og beitingu ákvæðis d-liðar 5.3.2.5 gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, en ekki að formi skipulagsgagnanna sem slíku. Sveitarstjórn fellst því ekki á að um sé að ræða formgalla sem leiði sjálfkrafa til þess að afturkalla beri deiliskipulagið.
Við afgreiðslu málsins lá fyrir að svæðið er skilgreint sem íbúðarsvæði í Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030. Þar er landnotkun sýnd frá um 20 m fjarlægð ofan Veigastaðavegar og hefur því um árabil legið fyrir sú stefnumörkun sveitarfélagsins að íbúðarbyggð á svæðinu geti verið nær veginum en 100 m. Þá eru fjölmörg dæmi á nærliggjandi svæðum um staðsetningu íbúðar- og frístundahúsa innan 100 m frá Veigastaðavegi, meðal annars á Kotru, Eyrarlandi, í Kotabyggð og í Vaðlaborgum A.
Byggingarreitir þeirra sjö lóða sem um ræðir eru staðsettir í 50 m fjarlægð frá Veigastaðavegi. Sú útfærsla tekur mið af ríkjandi byggðarmynstri og sambærilegum skipulagsákvörðunum á nærliggjandi svæðum. Í greinargerð deiliskipulagsins kemur fram að ekki verði byggt á umræddum lóðum nema undanþága frá fjarlægðarmörkum fáist. Sveitarstjórn telur mikilvægt að sambærileg tilvik fái sambærilega meðferð og að landeigendum sé ekki mismunað án þess að fyrir því liggi skýr og málefnaleg rök.
Sveitarstjórn horfir jafnframt til þess að umferð um Veigastaðaveg er takmörkuð og að hámarkshraði hefur verið lækkaður í 70 km/klst. Í gildandi rammahluta aðalskipulags um þróun byggðar í Vaðlaheiði er jafnframt gert ráð fyrir að hámarkshraði á Veigastaðavegi verði lækkaður í 50 km/klst. þar sem byggð er hvað þéttust, í samráði við Vegagerðina.
Við skipulag svæðisins hefur einnig verið horft til markmiða gildandi aðalskipulags um vernd ræktanlegs lands og hagkvæma landnýtingu. Með nýtingu lands innan beltisins 50-100 m frá Veigastaðavegi er unnt að draga úr þörf fyrir að taka annað og verðmætara ræktarland undir íbúðarbyggð.
Með vísan til framangreinds telur sveitarstjórn að málefnaleg og staðbundin skipulagsrök liggi að baki þeirri útfærslu sem samþykkt var. Sveitarstjórn telur ekki að fram séu komnar fullnægjandi forsendur til að afturkalla deiliskipulagið og horfir jafnframt til þeirra hagsmuna sem þegar hafa myndast á grundvelli gildandi skipulags.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að verða ekki við tilmælum um afturköllun deiliskipulags íbúðarsvæðis í landi Ytri-Varðgjár eða birtingu auglýsingar um afturköllun þess í B-deild Stjórnartíðinda. Sveitarstjórn stendur við fyrri samþykkt sína á deiliskipulaginu.
Sveitarstjórn áréttar þó að ákvörðun þessi felur ekki í sér undanþágu frá ákvæðum skipulagsreglugerðar um fjarlægðarmörk og að ekki verði gefin út byggingarleyfi fyrir umrædda byggingarreiti nema tilskilin undanþága liggi fyrir.
Sveitarstjórn áréttar jafnframt vilja sinn til áframhaldandi samtals við HMS og ráðuneytið um túlkun og framtíðarútfærslu reglna um fjarlægð íbúðar- og frístundahúsa frá stofn- og tengivegum, meðal annars með hliðsjón af staðbundnum aðstæðum, umferðarþunga, umferðarhraða, byggðarmynstri og stefnumörkun sveitarfélaga í aðalskipulagi.
 
3. E2609026 - Þórustaðir 2 L152852 - fyrirspurn um breytta landnotkun í endurskoðun aðalskipulags
Lagt fram erindi frá Jóni Helga Helgasyni þar sem hann óskar eftir frekari rökstuðningi við höfnun sveitarstjórnar á 1,0 ha byggingarlóð í landi Þórustaða 2. á fundi dags. 17.09.2026.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu erindisins og felur formanni skipulagsnefndar og skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda.
 
4. E2611005 - Áttan L152853 - beiðini um undanþágu frá fjarlægðarmörkum frá vegi
Fyrir fundinum liggur erindi frá Landslagi ehf, f.h. landeigenda Áttunnar (L152853). Óskað er eftir undanþágu frá 100 m fjarlægð íbúðarhúsa frá stofnvegum, skv. d-lið gr. 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013, þannig að þrjú íbúðarhús á íbúðarsvæði ÍB21 verði 80 m frá Eyjafjarðarbraut eystri.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að mæla með því við ráðherra að veitt verði undanþága frá ákvæði d-liðar gr. 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 þannig að þrjú íbúðarhús á íbúðarsvæði ÍB21 í landi Áttunnar (L152853) megi standa í allt að 80 m fjarlægð frá Eyjafjarðarbraut eystri.
 
5. E2611029 - Kotra 10 L230566 - fyrirspurn um aðkomuveg að gestahúsi
Lögð fram fyrirspurn frá eiganda Kotru 10 um gerð nýrrar innkeyrslu inn á lóðina sem á að liggja að fyrirhuguðu gestahúsi. Uppdráttur og greinargerð deiliskipulags Kotru fylgja fundargögnum.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að hafna erindinu þar sem fyrirhuguð vegtenging samræmist ekki gildandi deiliskipulagi Kotru.
Sveitarstjórn telur ekki tilefni til að breyta deiliskipulaginu þannig að heimilaðar verði tvær vegtengingar að sömu lóð.
 
6. E2609043 - Djúpasel L205695 - fyrirspurn um breytta skráningu sumarhúss og breytta aðkomu að húsi
Til umfjöllunar eru áform eiganda Djúpasels L205695 um að breyta notkun sumarhússins yfir í íbúðarhús. Húsið er á landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi og er landeignin skráð sumarbústaðaland. Landeigandi áformar jafnframt að breyta aðkomu að Djúpaseli yfir ánna.
 
Húsið er skráð sem sumarbústaður. Það stendur á landbúnaðarsvæði samkvæmt aðalskipulagi. Að húsinu er ekki akvegur sem er fær allt árið og óvissa um aðkomu að lóðinni, sbr. meðal annars umsögn Vegagerðarinnar. Breytt notkun sumarbústaðarins í íbúðarhúsnæði er ekki í samræmi við stefnumörkun aðalskipulags um íbúðabyggð. Eignin stendur nokkuð úr leið. Húsið er ekki í röklegu samhengi við aðra íbúðabyggð á svæðinu, en engin önnur hús eru sömu megin í Djúpadal og engin föst búseta austan Djúpadalsár. Engin áform eru í aðalskipulagi um íbúðabyggð í Djúpadal.
 
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn um að hafnað verði beiðni um að breyta notkun sumarbústaðarins Djúpasel í íbúðarhúsnæði.
 
Sveitarstjórn fór yfir afgreiðslu skipulagsnefndar ásamt þeim viðbótarupplýsingum og athugasemdum landeiganda sem bárust 24. og 25. nóvember 2026.
Sveitarstjórn telur að ein af forsendum þess að heimila breytta notkun sumarbústaðar í íbúðarhúsnæði sé að fullnægjandi og örugg aðkoma að eigninni sé tryggð allt árið um kring, meðal annars með tilliti til aðgengis viðbragðsaðila og þjónustu við íbúa.
Með vísan til framangreinds hafnar sveitarstjórn samhljóða beiðni um breytta notkun sumarbústaðarins Djúpasels (L205695) í íbúðarhúsnæði á þeim grundvelli að fullnægjandi aðkoma að eigninni er ekki tryggð.
Sveitarstjórn áréttar að framkvæmdir vegna bættrar aðkomu að eigninni eru sjálfstætt mál sem afgreiða þarf í samræmi við gildandi lög og reglur. Landeiganda er heimilt að leggja fram erindið að nýju þegar fullnægjandi aðkoma að eigninni hefur verið tryggð.
 
7. E2602025 - Opið bréf til sveitarstjórnar frá íbúum í landi Leifsstaða og Brúarlands.
Lagt fram erindi frá íbúum, land- og lóðareigendum í landi Leifsstaða og Brúarlands vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar og skipulagsmála á svæðinu.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra, í samstarfi við skipulagsfulltrúa, að svara framkomnum athugasemdum og spurningum í samræmi við umræður á fundinum.
 
8. E2608004 - Girðingamál í kringum Sigtún
Lögð fram afgreiðsla Fjallskilanefndar vegna erindis frá Steinari Hauki, Sigtúnum, um sauðfé á túnum og landi við Sigtún.
 
Fjallskilanefnd ræddi stöðu girðinga á svæðinu og mögulegar úrbætur og vísaði málinu til sveitarstjórnar. Jafnframt hvetur nefndin til þess að boðað verði til fundar með öllum sauðfjárbændum í Eyjafjarðarsveit þar sem farið verði yfir stöðu fjallskila og girðingamála.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að boða til funda með öllum sauðfjárbændum og landeigendum í Eyjafjarðarsveit á næsta ári þar sem farið verði yfir framkvæmd fjallskila, stöðu girðingamála, ábyrgð á viðhaldi girðinga og mögulegar úrbætur.
Sveitarstjóra er falið að undirbúa fundina í samstarfi við Atvinnu- og umhverfisnefnd og Fjallskilanefnd.
 
9. E2611031 - Íþrótta- og tómstundastyrkur 2027
Lögð fram afgreiðsla Velferðar- og menningarnefndar vegna íþrótta- og tómstundastyrks fyrir árið 2027.
 
Nefndin fór yfir forsendur styrksins og framkvæmd hans í gegnum Abler/Hvata kerfið á árinu 2026 og leggur til við sveitarstjórn að styrkfjárhæðin verði hækkuð í 65.000 kr. fyrir árið 2027.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að hækka íþrótta- og tómstundastyrk Eyjafjarðarsveitar um 5.000 kr. í 65.000 kr. fyrir árið 2027 og að gert verði ráð fyrir hækkuninni í fjárhagsáætlun ársins.
 
10. E2511012 - Lýðheilsustyrkur eldri borgara
Lögð fram afgreiðsla Velferðar- og menningarnefndar vegna lýðheilsustyrks Eyjafjarðarsveitar fyrir eldri borgara árið 2027.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að hækka lýðheilsustyrk Eyjafjarðarsveitar til eldri borgara í 18.500 kr. fyrir árið 2027 og að gert verði ráð fyrir hækkuninni í fjárhagsáætlun ársins.
 
11. E2606009 - UMF Samherjar - Tillaga um viðburðarnefnd
Lögð fram afgreiðsla Velferðar- og menningarnefndar vegna samantektar frá opnum fundi með félagasamtökum í Eyjafjarðarsveit um viðburðahald, sem haldinn var 18. nóvember 2026.
 
Á fundinum kom meðal annars fram áhugi á sameiginlegum viðburði eða hátíð að sumri til, aukinni samhæfingu viðburða og bættri upplýsingamiðlun.
Velferðar- og menningarnefnd lýsir yfir ánægju með fundinn og leggur til við sveitarstjórn að gert verði ráð fyrir fjárveitingu til viðburðahalds árið 2027 í samræmi við þær hugmyndir sem fram komu á fundinum.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gert verði ráð fyrir 2 m.kr. fjárveitingu til viðburðahalds í fjárhagsáætlun ársins 2027 með það að markmiði að efla samstarf félagasamtaka, bæta samhæfingu viðburða og styðja við þróun sameiginlegrar sveitarhátíðar.
Íþrótta- og tómstundafulltrúa er falið að vinna málið áfram í samstarfi við félagasamtök í sveitarfélaginu.
 
12. E2611001 - Starfsáætlun öldungaráðs 2026-2030
Lögð fram til kynningar drög að starfsáætlun Öldungaráðs Eyjafjarðarsveitar fyrir tímabilið 2026-2030.
 
Öldungaráð fór yfir drögin á síðasta fundi sínum. Áætlað er að kynna þau fyrir Félagi eldri borgara í Eyjafjarðarsveit og sveitarstjórn áður en starfsáætlunin verður lögð fyrir ráðið til endanlegrar afgreiðslu.
Jafnframt leggur Öldungaráð til við sveitarstjórn að gert verði ráð fyrir fjármunum til heilsueflandi heimsókna í fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027.
 
Sveitarstjórn tekur drög að starfsáætlun Öldungaráðs Eyjafjarðarsveitar fyrir tímabilið 2026-2030 til kynningar og fagnar þeirri vinnu sem fram hefur farið við mótun hennar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gert verði ráð fyrir áframhaldandi fjármunum til heilsueflandi heimsókna til eldri borgara í fjárhagsáætlun ársins 2027.
 
13. E2611021 - SSNE - Ósk um samstarf vegna verkefnisins Frá mótttöku til inngildingar
Lagt fram erindi frá Þekkingarnetinu vegna verkefnisins „Frá móttöku til inngildingar“, þar sem óskað er eftir samstarfi við Eyjafjarðarsveit um framkvæmd verkefnisins.
 
Markmið verkefnisins er að styðja sveitarfélög á starfssvæði SSNE við að efla móttöku og inngildingu íbúa af erlendum uppruna, meðal annars með skýrara verklagi, aðgengilegri upplýsingagjöf og markvissara upplýsingaflæði.
 
Sveitarstjórn fagnar verkefninu „Frá móttöku til inngildingar“ og telur mikilvægt að efla móttöku nýrra íbúa, bæta aðgengi þeirra að upplýsingum og þjónustu og stuðla að virkri þátttöku þeirra í samfélaginu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða þátttöku Eyjafjarðarsveitar í verkefninu og felur sveitarstjóra að vinna áfram að því í samstarfi við Þekkingarnetið.
 
14. E2512003 - Reglur um afslátt af fasteignaskatti
Lagðar fram til umræðu reglur Eyjafjarðarsveitar um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega.
 
Farið yfir fyrirkomulag afsláttarins og viðmiðunarfjárhæðir vegna álagningar fasteignaskatts árið 2027.
 
Frestað til næsta fundar.
 
15. E2611006 - Dýraleifagámur - staða og fyrirkomulag
Lögð fram afgreiðsla Atvinnu- og umhverfisnefndar vegna fyrirkomulags og reksturs dýraleifagáms í Eyjafjarðarsveit ásamt minnisblaði skrifstofu- og fjármálastjóra.
 
Atvinnu- og umhverfisnefnd leggur til að gjaldskrá vegna dýraleifagáms verði áfram miðuð við að tekjur af þjónustunni standi undir raunkostnaði við rekstur hennar.
 
Frestað til næsta fundar.
 
16. E2604040 - Gjaldskrár Eyjafjarðarsveitar 2027
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að almennar gjaldskrár Eyjafjarðarsveitar hækki að jafnaði um 2,5% árið 2027.
Með þeirri ákvörðun vill sveitarstjórn leggja sitt af mörkum til að styðja við verðstöðugleika, draga úr verðbólguþrýstingi og sýna aðhald við ákvörðun opinberra gjalda, í samræmi við þær áherslur sem sveitarfélög, ríki og aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt á um hóflegar verð- og gjaldskrárhækkanir.
Frá þessu eru þó gerðar undantekningar þar sem kostnaðarþróun og eðli þjónustunnar kalla á annað. Sorphirðugjöld og rotþróargjald hækka um 4% til að mæta hækkandi kostnaði við úrgangsmál og með það að markmiði að gjaldtaka standi sem næst undir raunkostnaði við þjónustuna.
 
17. E2605022 - Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030
Umræður um fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027.
 
Fjárhagsáætlun 2027, 2028-2030 verður lögð fram til síðari umræðu á næsta fundi sveitarstjórnar.
 
18. E2610020 - Endurskoðun stjórnskipulags og erindisbréfa nefnda Eyjafjarðarsveitar
Lögð fram til umræðu uppfærð drög að samþykkt um stjórn Eyjafjarðarsveitar í framhaldi af endurskoðun á stjórnskipulagi sveitarfélagsins, nefndaskipan og erindisbréfum nefnda.
 
Farið yfir uppfærð drög að samþykkt um stjórn Eyjafjarðarsveitar, síðari umræða fer fram á næsta fundi sveitarstjórnar.
 
Fundargerðir til kynningar
19. E2611017 - Norðurorka - Fundargerð 328. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 328. fundar stjórnar Norðurorku.
 
Lögð fram til kynningar.
 
20. E2611018 - Norðurorka - Fundargerð 329. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 329. fundar stjórnar Norðurorku.
 
Lögð fram til kynningar.
 
21. E2611019 - Norðurorka - Fundargerð 330. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 330. fundar stjórnar Norðurorku.
 
Lögð fram til kynningar.
 
22. E2611020 - Norðurorka - Fundargerð 331. fundar
Lögð fram til kynningar fundargerð 331. fundar stjórnar Norðurorku.
 
Lögð fram til kynningar.
 
23. E2611023 - Norðurorka - Fundargerð 332
Lögð fram til kynningar fundargerð 332. fundar stjórnar Norðurorku.
 
Lögð fram til kynningar.
 
24. E2611022 - Norðurorka - Breyting á gjaldskrá vatnsveitu 2027
Lögð fram tilkynning frá Norðurorku hf. um breytingu á gjaldskrá vatnsveitu fyrir árið 2027.
 
Fram kemur að stjórn Norðurorku hafi samþykkt að gjaldskrá vatnsveitu hækki um 2,5% frá og með 1. janúar 2027, í samræmi við niðurstöðu eigenda félagsins um að gjaldskrárhækkun verði ekki umfram 2,5%.
 
Lögð fram til kynningar.
 
25. E2611030 - Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar - fundargerð 20.
Lögð fram til kynningar fundargerð 20. fundar svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar 2026-2030.
 
Lögð fram til kynningar.
 
26. 2611008F - Fjallskilanefnd Eyjafjarðarsveitar - 53
Lögð fram til kynningar fundargerð 53. fundar fjallskilanefndar.
 
Lögð fram til kynningar.
 
27. 2611016F - Öldungaráð - 7
Lögð fram til kynningar fundargerð 7. fundar öldungaráðs.
 
Lögð fram til kynningar.
 
28. 2610016F - Atvinnu- og umhverfisnefnd - 23
Lögð fram til kynningar fundargerð 23. fundar atvinnu- og umhverfisnefndar.
 
Lögð fram til kynningar.
 
29. 2611015F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 460
Lögð fram til kynningar fundargerð 460. fundar skipulagsnefndar.
 
Lögð fram til kynningar.
 
30. 2611022F - Velferðar- og menningarnefnd - 27
Lögð fram til kynningar fundargerð 27. fundar velferðar- og menningarnefndar.
 
Lögð fram til kynningar.
 
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar sendir innilegar samúðarkveðjur vegna þess hörmulega sjóslyss sem varð þegar fiskiskipið Jökull ÞH 299 fórst út af Austfjörðum þann 25. nóvember 2026 með þeim afleiðingum að þrír skipverjar létust.
 

Sveitarstjórn vottar aðstandendum hinna látnu sína dýpstu samúð og sendir þeim skipverjum sem komust lífs af, fjölskyldum þeirra og öllum þeim sem eiga um sárt að binda hlýjar kveðjur.

Jafnframt færir sveitarstjórn Landhelgisgæslunni, björgunarsveitum, sjómönnum og öðrum viðbragðsaðilum innilegar þakkir fyrir óeigingjarnt starf við afar erfiðar aðstæður. Atburður sem þessi minnir á hversu mikilvægt er að Íslandi hafi öflugt viðbragð til að bregðast við slysum og náttúruhamförum um land allt. Því hvetur sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar stjórnvöld að hafa slíkt í huga við gerð fjárlaga fyrir árið 2027.
 
Hugur sveitarstjórnar er hjá öllum þeim sem eiga um sárt að binda á þessum erfiðu tímum.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30
Getum við bætt efni síðunnar?