Dagskrá:
1. Eyjafjarðarsveit - Skólalóð Hrafnagilsskóla - E2601012
Að beiðni ungmennaráðs hefur sveitarstjóri látið framkvæma formlega könnun meðal nemenda í 1.-7. bekk grunnskólans. Könnunin var framkvæmd þann 5.febrúar síðastliðinn og liggja niðurstöður hennar nú fyrir ráðinu sem rýnir í þær.
Ungmennaráð leggur áherslu á að við áframhaldandi vinnu við hönnun og skipulag skólalóðarinnar sé horft til niðurstöðu könnunarinnar. Ungmennaráð telur að aparóla og köngulóaróla henti betur fyrir alla aldurshópa meðan stór kastali henti yngsta og miðstigi betur.
2. Mötuneyti - útboð 2026 - E2601016
Sveitarstjórn vinnur nú að útboði fyrir mötuneyti Eyjafjarðarsveitar
Sveitarstjórn hefur lagt áherslu á heilnæmt mataræði og íslenskt hráefni þar sem því verður komið við.
Velferðar- og menningarnefnd hefur einnig rætt málið og leggur áherslu á innkaup hráefnis sem næst heimabyggð, íslenska matarmenningu og eftirfylgni með uppruna matvæla og næringargildi matseðla.
Ungmennaráð ræðir áherslur sínar.
Ungmennaráð leggur áherslu á að:
Matseðill sé fjölbreyttur og næringargildi gott.
Þegar soðinn fiskur er í boði þá sé gott úrval af annarri næringu í salatbar.
Ganga úr skugga um að þó það sé kolvetnisríkur aðalréttur þá sé alltaf gott aðgengi að annarri næringu, próteinu og fitu.
Aukið gegnsæji sé á uppruna matvæla til dæmis með því að birta það samhliða matseðli á heimasíðu skólans.
Gætt verði að því að í vali bekkja sé ekki mögulegt að velja sama réttinn mörgum sinnum í röð.
3. Bókasafn Eyjafjarðarsveitar - E2504005
Bókasafn Eyjafjarðarsveitar mun flytja á jarðhæð Hrafnagilsskóla og tengjast anddyri íþróttamiðstöðvar við flutning þess.
Ungmennaráð skoðar teikningar og ræðir málið.
Ungemnnaráð leggur til að skoðað verði hvort mögulegt sé að gera samkomulag við Amtbókasafnið um aukið aðgengi íbúa að því.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:55