Dagskrá:
4. Fundargerðir 2026 farsældarráðs Norðurlands eystra - E2604024
Fundargerð 5. fundar farsældarráðs Norðurlands eystra lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
1. Umboðsmaður barna - Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna - E2604017
Ungmennaráð hefur tekið þá ákvörðun að halda krakkakosningar fyrir elsta stig í grunnskóla. Ungmennaráð telur sömuleiðis mikilvægt að þetta verði gert til frambúðar.
2. SSNE - Ungmennaþing 2026 - E2603030
Ungmennaþing SSNE 2026 skorar á sveitarstjórnir og framboð til sveitarstjórna á Norðurlandi eystra að tryggja að ungmennaráð verði virkur og eðlilegur hluti af ákvarðanatöku sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
3. Félagsmiðstöðin Hyldýpi - Erasmus ferð til Danmerkur í apríl 2026 - E2604022
Litlar félagsmiðstöðvar í Eyjafirði og Þingeyjarsveit hafa verið að þróa með sér samstarf undanfarin misseri með það að markmiði að efla tengsl milli stjórnenda þeirra og þátttakenda í starfinu t.d. með sameiginlegu viðburðahaldi. Um er að ræða félagsmiðstöðvarnar í Hörgársveit, Grýtubakkahreppi, Þingeyjarsveit auk Eyjafjarðarsveitar.
Lagt fram til kynningar. Ungmennaráð telur frábært að við séum að taka þátt í svona verkefni.
5. Ungmennaráð - Almenningssamgöngur til Akureyrar - E2605004
Ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar beinir því til sveitarstjórnar að skoðað verði hvort hægt sé að koma á almenningssamgöngum milli Hrafnagilshverfis og Akureyrar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:00