Dagskrá:
1. Ungmennaráð - Erindisbréf, endurskoðun - E2603031
Erindisbréf ungmennaráðs lagt framt.
Ungmennaráð kynnti sér erindisbréf ráðsins.
2. Handbók ungmennaráðs 2026-2027 - E2610021
Handbók ungmennaráðs lögð fram til kynningar.
Ungmennaráð kynnti sér efni handbókarinnar.
3. Ungmennaráð - Kosning formanns og ritara 2026 - E2610022
Gengið er til kosninga um formann og ritara ungmennaráðs.
Formaður ungmennaráðs er kjörin Heiðrún Jónsdóttir.
Ritari er kjörin Kristín Harpa Friðriksdóttir.
4. UMF Samherjar - ARENA fótboltavellir - E2608026
Minnisblað lagt fram um umsókn UMF Samherja með stuðningi sveitarfélagsins um ARENA-fótboltavöll.
Ungmennaráð fagnar umsókninni og vonast til að svona völlur komi í sveitarfélagið.
5. UMF Samherjar - Tillaga um viðburðarnefnd - E2606009
Erindi frá UMF Samherjum lagt fram til kynningar.
Ungmennaráði líst vel á hugmyndina og leggur áherslu að dagskrá slíks viðburðar henti öllum aldurshópum. Ungmennaráð lýsir yfir áhuga á að taka þátt í hugmyndavinnu að hátíð í sveitinni.
6. Félagsmiðstöðin Hyldýpi - Starfsáætlun 2026-2027 - E2608032
Starfsáætlun Hyldýpis lögð fram til kynningar.
Ungmennaráð lýsir yfir ánægju sinni með starfsáætlun Hyldýpis.
7. SSNE - Undirbúningur ungmennaþings 2027 - E2609067
Erindi lagt fram frá SSNE varðandi ungmennaþing.
Ungmennaráð frestar afgreiðslu erindisins og mun ræða það á næstu fundum sínum.
8. UNG Esveit - þróunaráætlun frístunda- og félagsmiðstöðvastarfs - E2610008
Íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnir hugmyndir að UNG Esveit.
Ungmennaráði lýst vel á hugmyndir um UNG Esveit og hvetur til þess að unnið verði áfram markvisst að því að koma hugmyndinni í framkvæmd.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:25