Velferðar- og menningarnefnd

20. fundur 02. febrúar 2026 kl. 19:00 - 21:40 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Halldór S. Guðmundsson var fjarverandi en fundinn sat Arnbjörg Jóhannsdóttir
  • Rósa Margrét Húnadóttir
  • Margrét Árnadóttir
  • Sunna Axelsdóttir
  • Óðinn Ásgeirsson
  • Halldór Örn Árnason
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Berglind Kristinsdóttir
 
Dagskrá:
 
1. Mötuneyti - útboð 2026 - E2601016
Samningstími vegna mötuneytis Eyjafjarðarsveitar er útrunnið og hefur sveitarstjórn því ákveðið að setja þjónustuna aftur í útboð. Fyrir nefndinni liggur til kynningar útboðslýsing frá því árið 2019 þar sem nefndinni gefst færi á að ræða og koma með ábendingar um fyrirkomulag.
Nefndin þakkar fyrir að fá drögin til umsagnar og leggur áherslu á að í þeim sé nægilegur sveigjanleiki til að bregðast við mismunandi sérþörfum samhliða fæðuóþoli svo sem nemendum sem eru á sérfæði óháð læknisfræðilegum ástæðum.
Þá leggur nefndin áherslu á að áfram sé haldið með innkaup sem næst heimabyggð og að eftirlit með því sé aukið til að mynda með því að verktaki skili skýrslu í lok hvorrar annar til sveitarstjórnar. Í skýrslunni komi fram uppruni matvæla og sundurliðað meðalnæringargildi matseðla. Þá telur nefndin mikilvægt að halda áherslum á íslenska matarmenningu og hefðir svo sem með framsetningu hefðbundins íslensks heimilismatar.
 
2. Samningur um velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu - E2512002
Sveitarstjórn hefur tekið fyrir drög af nýjum samningi við Akureyrarbæ og vísar drögunum til Velferðar- og menningarnefndar og Skólanefndar til umsagnar.
Velferðar- og menningarnefnd gerir ekki athugasemd við samngingsdrögin fyrir sitt leyti en leggur áherslu á líkt og sveitarstjórn að skýrt sé ákvæði varðandi upplýsingagjöf í 8.gr.
 
3. Beiðni G. Höddu um aðstoð við áframhaldandi samstarf við handverksfólk í Svíþjóð - E2601029
Karin Lundholm, sem er sögð vera "drottningu næfursins", hefur áhuga á að koma til Íslands og vera með sýningu og námskeið.
Guðrún Bjarnadóttir (Hadda) hefur verið í tengslum við Karin sem og annað handverksfólk sem sótt hefur Handverkshátíðina á Hrafnagili í gegnum árin og spyr hvort sveitarfélagið hafi áhuga á að bjóða Karin að vera með sýningu í sveitinni en það sé næsta skref fyrir hana til að sækja um styrki þess efnis.
Velferðar- og menningarnefnd samþykkir að bjóða Karin Lundholm aðstöðu til að halda sýningu og námskeið í sveitarfélaginu með fyrirara um að eftir eigi að útfæra verkefnið að fullu.
 
4. Bókasafn Eyjafjarðarsveitar - E2504005
Að ósk nefndarinnar mæta gestir til fundarins svo taka megi áframhaldandi samtal um stefnumótun varðandi starfsemi bókasafnsins og þess rýmis sem það mun flytja í eftir breytingar.
Velferðar- og menningarnefnd þakkar forsvarsfólki Amtbókasafnsins, Hrafnagilsskóla og Bókasafns Eyjafjarðarsveitar fyrir komuna og mikilvægt innlegg í umræðuna. Á fundinum komu fjölmargar góðar ábendingar sem nýst geta í áframhaldandi stefnumótun varðandi starfsemi bókasafnsins, val á húsgögnum, búnaði og nýtingu rýmisins.
 
5. Heilbrigðisstofnun Norðurlands - E2511013
Sveitarstjórn barst ósk frá Öldungaráði þess efnis að svetiarfélagið tæki við heilsueflandi heimsóknum til eldri borgara 80 en heimsókninar voru á vegum ríkisins og sinnt af HSN og hafa þær verið lagðar af.
Sveitarstjórn ákvað á 666. fundi sínum að gera ráð fyrir verkefninu í fjárhagsáætlun, fól hún sveitarstjóra að útfæra verkefnið og kynna niðurstöðuna á næsta fundi Öldungaráðs.
Málið lagt fyrir Velferðar- og menningarnefnd til kynningar.
Nefndin fagnar ákvörðun sveitarstjórnar og þakkar kynninguna.
 
6. Starfsemi Kristnesspítala - E2511018
Fyrir nefndinni liggur kynning á málefni Kristnesspítala.
Lagt fram til kynningar.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:40
Getum við bætt efni síðunnar?