Velferðar- og menningarnefnd

21. fundur 24. mars 2026 kl. 17:00 - 18:35 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Halldór Sigurður Guðmundsson
  • Rósa Margrét Húnadóttir
  • Halldór Örn Árnason
  • Margrét Árnadóttir var fjarverandi en fundinn sat Sigríður Bjarnadóttir
  • Sunna Axelsdóttir
  • Óðinn Ásgeirsson
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Berglind Kristinsdóttir formaður
 
Dagskrá:
 
1. Beiðni um styrk til reksturs Bjarmahlíðar þolendamiðstöðvar á Akureyri 2026 - E2511006
Sveitarstjóri uppfærði nefndarmenn um framgang málsins.
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
2. Heilsutengd hlunnindi starfsmanna Eyjafjarðarsveitar - E2511021
Lagt fram minnisblað forstöðumanns íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar og skrifstofu- og fjármálastjóra vegna heilstutengdra hlunninda starfsmanna Eyjafjarðarsveitar en sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar bókaði á 666. fundi sínum:
Sveitarstjórn tekur undir sjónarmið (velferðar- og menningarnefndar) þess efnis að endurskoða þurfi stefnu um fríðindi starfsfólks út frá áherslum Heilsueflandi samfélags. Sveitarstjórn óskar þess að stofnað sé sérstakt mál utan um erindið og að nefndin taki saman minnisblað um hugmyndir sínar.
Er þessu minnisblaði ætlað að koma af stað umræðum um málum í velferðar- og menningarnefnd að beiðni formanns nefndarinnar.
Velferðar- og menningarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi minnisblað með drögum af heilsutengdum hlunnindum starfsmanna Eyjafjarðarsveitar með smávægilegum athugasemdum og felur skrifstofu- og fjármálastjóra að breyta minnisblaðinu í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir sveitarstjórn.
 
3. SSNE - Fjölskylduþjónusta Norðurlands eystra - E2511023
Lagt fram til kynningar.
Velferðar- og menningarnefnd óskar eftir að Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnisstjóri farsældaráðs Norðurlands Eystra komi á fund nefndar á haustmánuðum og kynni verkefnið og önnur velferðartengd verkefni innan SSNE og samspil þeirra við aðra þætti velferðarþjónustu á svæðinu.
Frestað
 
4. Heildræn heilsuhátíð - Sigríður Ásný Ketilsd., María Sigurðard. og Sigrún Björg Arad. - E2601033
Bréf til velferðar- og menningarnefndar um stuðning vegna húsaleigu fyrir Heildræna Heilsuhátíð.
Velferðar- og menningarnefnd fagnar framtakinu og samþykkir að styðja við verkefnið í formi húsaleigu.
 
5. Akureyrarbær - Hinsegin hátíðin 2026 - E2602002
Tillaga frá Akureyrarbæ að samstarfi vegna Hinsegin hátíðar 2026 sem haldin verður dagana 18.-21. júní.
Lagt fram til kynningar.
 
6. Karlakór Eyjafjarðar - Styrkbeiðni í tilefni 30 ára afmæli kórsins - E2602019
Beiðni frá Karlakór Eyjafjarðar um fjárstyrk til að halda stórtónleika í Hofi vegna 30 ára afmælis kórsins.
Velferðar- og menningarnefnd frestar afgreiðslu og tekur málið fyrir með öðrum umsóknum um menningarstyrki á næsta fundi.
 
7. Eyvindur 2025 - E2602044
Lagt fram uppgjör vegna útgáfu Eyvinds árið 2025.
Lagt fram til kynningar.
 
8. Afreks- og hvatningarstyrkur Eyjafjarðarsveitar - E2602040
Sveitarstjórn bókaði á 666. fundi sínum: "Jafnframt beinir sveitarstjórn til Velferðar- og menningarnefndar að endurskoða ferðastyrkinn með það að leiðarljósi að fella hann niður en stofna nýjan sértækan úthlutunarpott með fjárheimild upp á 500.000kr sem ætlaður er sérstaklega til að efla ungmenni í sveitarfélaginu. Óskar sveitarstjórn eftir að nefndin taki þetta til umræðu og komi með tillögur að útfærslum. Frá og með 1. janúar 2026 verður ferðastyrkurinn lagður af í núverandi mynd."
 
Lögð fram drög af reglum um afreks- og hvatningarstyrk Eyjafjarðarsveitar.
Velferðar- og menningarnefnd tekur til umræðu drög að reglum um afreks- og hvatningarstyrk Eyjafjarðarsveitar. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að drögin verði samþykkt og gefin út sem reglur sveitarfélagsins varðandi styrkveitinguna.
Umsóknarfrestur verður til 1. nóvember ár hvert.
Reglur verði endurmetnar að lokinni fyrstu úthlutun.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:35
 
Getum við bætt efni síðunnar?