Dagskrá:
1. UMFÍ - Landsmót 50 ára og eldri í Eyjafjarðarsveit 2026 - E2505007
Ómar Bragi Stefánsson verkefnastjóri og framkvæmdastjóri Landsmóta hjá UMFÍ kynnir skipulag og undirbúning á Landsmóti 50 ára og eldri í Eyjafjarðarsveit 2026.
Velferðar- og menningarnefnd þakkar Ómari Bragi fyrir kynninguna.
2. Vinnuskólinn 2026 - E2603026
Lagt fram til kynningar breyting á vinnutímafjölda nemenda í vinnuskóla Eyjafjarðarsveitar.
Sveitarstjórn samþykkti á 674. fundi sínum eftirfarandi fyrir sumarið 2026. Fjöldi vinnustunda verður sem hér segir:
14 ára fá að vinna allt að 100 stundir.
15 ára fá að vinna allt að 120 stundir.
16 ára fá að vinna allt að 160 stundir.
Laun verða sem hér segir með orlofi:
14 ára 1583 kr/per tíma
15 ára 1727 kr/per tíma
16 ára 2195 kr/per tíma
Velferðar- og menningarnefnd hvetur Vinnuskóla Eyjafjarðarsveitar til að bjóða öðrum ungmennum á sama aldri og í öðrum störfum í sveitarfélaginu á þau námskeið og fræðslu sem haldin verða í tengslum við Vinnuskólann.
3. Minjasafnið á Akureyri - Rekstrarreikningur Smámunasafnsins 2025 - E2603010
Uppgjör á rekstri Smámunasafnsins fyrir árið 2025.
Lagt fram til kynningar. Velferðar- og menningarnefnd hvetur sveitarstjórn til að ljúka við langtíma samning við Minjasafnið um rekstur Smánumasafnsins og að þar verði jafnframt skilgreint hver fer með auglýsinga- og kynningarmál safnsins.
4. Umboðsmaður barna - Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna - E2604017
Bréf frá Umboðsmanni barna vegna sveitarstjórnakosninga 2026.
Lagt fram til kynningar.
5. Hælið setur um sögu berklanna - Umsókn um styrk til menningarmála vor 2026 - E2603021
Umsókn um styrk til menningarmála.
Velferðar- og menningarnefnd samþykkir samhljóða að styrka verkefnið um 200.000 kr. úr menningarsjóði Eyjafjarðarsveitar. Auk þess leggur Velferðar- og menningarnefnd til við sveitarstjórn að verkefninu verði fundinn varanlegur grundvöllur til lengri tíma.
6. Ágúst Þór Brynjarsson - Umsókn um styrk til menningarmála vor 2026 - E2603032
Umsókn um styrk til menningarmála.
Velferðar- og menningarnefnd samþykkir samhljóða að styrka verkefnið um 150.000 kr. úr menningarsjóði Eyjafjarðarsveitar. Auk þess að styrkja verkefnið um húsaleigu í Laugarborg að andvirði 160.000 kr.
7. María Pálsdóttir - Umsókn um styrk til menningarmála, Óskastund Kristínar Vigfúsdóttur skáldkonu - E2603041
Umsókn um styrk til menningarmála.
Velferðar- og menningarnefnd samþykkir samhljóða að styrka verkefnið um 100.000 kr. úr menningarsjóði Eyjafjarðarsveitar.
8. Karlakór Eyjafjarðar - Umsókn um styrk til menningarmála vor 2026 - E2603043
Umsókn um styrk til menningarmála.
Velferðar- og menningarnefnd samþykkir samhljóða að styrka verkefnið um 100.000 kr. úr menningarsjóði Eyjafjarðarsveitar.
9. SSNE - Ungmennaþing 2026 - E2603030
Ungmennaþing SSNE 2026 skorar á sveitarstjórnir og framboð til sveitarstjórna á Norðurlandi eystra að tryggja að ungmennaráð verði virkur og eðlilegur hluti af ákvarðanatöku sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
10. Félagsmiðstöðin Hyldýpi - Erasmus ferð til Danmerkur í apríl 2026 - E2604022
Lagt fram til kynningar bréf frá forstöðumanni Íþróttamiðstöðvar um Erasmus ferð starfsmanna lítilla félagsmiðstöðva við Eyjafjörð til Danmerkur í apríl 2026.
Velferðar- og menningarnefnd fagnar þessu framtaki og hvetur forstöðumann Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar til að halda áfram á sömu braut varðandi samstarf og nýsköpun í starfi félagsmiðstöðvarinnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00