Dagskrá:
1. Félagsmiðstöðin Hyldýpi - Starfsáætlun 2026-2027 - E2608032
Karl Jónsson íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnir starfsáætlun Hyldýpisins fyrir veturinn 2026-2027.
Velferðar- og menningarnefnd þakkar Karli fyrir kynninguna og lýsir ánægju með metnaðarfulla og fjölbreytta starfsáætlun. Nefndin fagnar þeim áherslum sem lagðar eru á öflugt félagsstarf, samstarf og virka þátttöku ungmenna og hvetur til áframhaldandi þróunar starfsins í samráði við ungmennin.
Lagt fram til kynningar.
2. UMF Samherjar - Tillaga um viðburðarnefnd - E2606009
Lagt fram erindi frá Ungmennafélaginu Samherjum þar sem lagt er til að Eyjafjarðarsveit hefji undirbúning að nýrri bæjarhátíð og stofnuð verði sérstök viðburðarnefnd til að leiða hugmyndavinnu, stefnumótun og skipulag hátíðarinnar.
Velferðar- og menningarnefnd tekur jákvætt í erindi Ungmennafélagsins Samherja og telur mikilvægt að unnið verði áfram að því að skapa sameiginlegan samfélagsviðburð í Eyjafjarðarsveit til framtíðar. Nefndin telur mikilvægt að sveitarfélagið, félagasamtök, atvinnulíf og aðrir áhugasamir aðilar komi að mótun og framkvæmd slíks viðburðar.
Formanni Velferðar- og menningarnefndar og íþrótta- og tómstundafulltrúa er falið að eiga samtal við Ungmennafélagið Samherja og leggja tillögu að næstu skrefum fyrir nefndina.
3. Skipan í ritnefnd Eyvindar - E2609012
Velferðar- og menningarnefnd tekur fyrir skipan í ritnefnd Eyvindar.
Velferðar- og menningarnefnd samþykkir að fela formanni að finna einstaklinga í ritnefnd Eyvindar og kynna fyrir nefndinni á næsta fundi.
4. Ungmennaráð - Almenningssamgöngur til Akureyrar - E2605004
Velferðar- og menningarnefnd tekur til umfjöllunar erindi Ungmennaráðs Eyjafjarðarsveitar um almenningssamgöngur fyrir ungmenni úr Hrafnagilshverfi sem sækja nám í Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri.
Nefndin tekur jákvætt í erindið og telur mikilvægt að skoðaðar verði leiðir til að bæta samgöngur fyrir ungmenni. Nefndin fór yfir fyrirliggjandi tilboð frá SBA um akstur á leiðinni og ræddi mögulegt fyrirkomulag þjónustunnar.
Velferðar- og menningarnefnd vísar erindinu til sveitarstjórnar til nánari útfærslu með tilliti til fjármögnunar.
5. Bókasafn Eyjafjarðarsveitar - E2504005
Velferðar- og menningarnefnd fór yfir stöðu og starfsemi Bókasafns Eyjafjarðarsveitar í tilefni af opnun safnsins að nýju eftir sumarfrí.
Velferðar- og menningarnefnd færir Margréti Baldvinu Aradóttur innilegar þakkir fyrir farsælt og ómetanlegt starf í þágu bókasafnsins og samfélagsins í Eyjafjarðarsveit á síðastliðnum 25 árum.
Nefndin býður Jóhönnu Dögg Stefánsdóttir og Sunnu Björgu Valsdóttur velkomna til starfa við umsjón bókasafnsins og óskar þeim velfarnaðar í starfi.
Velferðar- og menningarnefnd frestar frekari umræðum um bókasafnið til næsta fundar.
6. Starfsemi Kristnesspítala - E2511018
Sveitarstjóri fór yfir stöðu Kristnesspítala en engin starfsemi er nú í húsnæðinu.
Velferðar- og menningarnefnd lýsir áhyggjum af stöðunni og telur mikilvægt að unnið verði að framtíðarnýtingu húsnæðisins. Kristnesspítali hefur um langt skeið haft mikilvægt hlutverk í samfélaginu og nefndin leggur áherslu á að húsnæðið fái sem fyrst hlutverk sem skapar áfram samfélagslegt virði fyrir svæðið.
Nefndin hvetur sveitarstjórn til að beita sér með markvissum hætti gagnvart hlutaðeigandi aðilum og þrýsta á að niðurstaða fáist um framtíð Kristnesspítala og nýtingu húsnæðisins.
7. Samningur við Bergið Headspace - E2606033
Lagður fram til kynningar samstarfssamningur sveitarfélaga á Norðurlandi eystra við Bergið headspace um stuðnings- og ráðgjafarþjónustu fyrir ungt fólk á aldrinum 12-25 ára. Samningurinn var undirritaður af fulltrúum aðildarsveitarfélaga SSNE á Haustþingi samtakanna þann 9. september 2026 á Dalvík.
Velferðar- og menningarnefnd fagnar samstarfinu og telur mikilvægt að ungmenni í Eyjafjarðarsveit hafi greiðan aðgang að lágþröskulda, gjaldfrjálsri ráðgjöf og stuðningi.
Lagt fram til kynningar.
8. Sundmenningarhátíðin í Eyjafjarðarsveit - E2606002
Lögð fram kynning á viðburðinum Sundlaugin okkar sem haldinn var í sundlauginni í Hrafnagilshverfi fimmtudaginn 27. ágúst 2026. Viðburðurinn var hluti af dagskrá Sundlaugasumars 2026 sem haldin var í tilefni af skráningu íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.
Karlakór Eyjafjarðar kom fram á viðburðinum og söng fyrir gesti. Eyjafjarðarsveit hlaut 100.000 kr. styrk frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu til verkefnisins.
Velferðar- og menningarnefnd fagnar framtakinu.
9. Fundaáætlun Velferðar- og menningarnefndar - E2609036
Lögð fram tillaga að fundaáætlun Velferðar- og menningarnefndar fyrir komandi starfsár.
Lagt er til að nefndin fundi:
21. september
6. október
3. nóvember
Nefndin samþykkir fundaáætlun fram að áramótum eins og hún liggur fyrir, með fyrirvara um breytingar eftir þörfum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00