Dagskrá:
1. Bókasafn Eyjafjarðarsveitar - E2504005
Umræður um bókasafn Eyjafjarðarsveitar.
Velferðar- og menningarnefd ræddi starfssemi og framtíð Bókasafns Eyjafjarðarsveitar. Farið var yfir núverandi fyrirkomulag, nýtingu safnsins og mögulegar leiðir varðandi framtíð almenningsbókasafnsþjónustu í Eyjafjarðarsveit.
Komandi starfsár verður síðasta starfsár bókasafnsins í núverandi húsnæði. Fram undan eru því tækifæri til að endurskoða starfssemi og fyrirkomulag safnsins með það að markmiði að koma á fót nútímalegu og aðgengilegur bókasafni í nýju húsnæði sem taki mið af þörfum samfélagsins í heild.
Nefndin leggur til við sveitastjórn að stefnt verði að reglubundinni starfsemi almenningsbókasafns.
Nefndin leggur að skoðað verði möguleiki á stækkun bókasafninu til norðurs.
Nefndin ákveður að funda sérstaklega a.m.k. tvisvar á árinu um bókasafnið. Í tengslum við þá fundi leggur nefndin til að sveitastjórn útvegi sér sérfræðing til þess að stýra grisjunáætlun. Eins óskar nefndin eftir því að sveitarfélagið fái faglega ráðgjöf varðandi hönnun og innra skipulag á öllu rýminu sem tæki mið af helstu áherslum nútíma bókasafna og samstarf milli skóla og almenningssafna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:45