Dagskrá:
1. Varðveislumenn minjanna - E2610001
Brynjar Karl Óttarsson og Níels Ómar Kristinsson mættu á fund velferðar- og menningarnefndar og kynntu starf Varðveislumanna minjanna. Farið verður yfir helstu verkefni hópsins, meðal annars rannsóknir, skráningu og varðveislu minja sem tengjast veru breska og bandaríska hersins í Eyjafirði á árum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Að kynningu lokinni verða almennar umræður um starfsemi Varðveislumanna minjanna.
Velferðar- og menningarnefnd þakkar þeim Brynjari og Níels fyrir greinargóða og áhugaverða kynningu á starfi Varðveislumanna minjanna.
Nefndin telur starf hópsins mikilvægt framlag til varðveislu minja í Hrafnagilshverfi sem tengjast veru breska og bandaríska hersins á svæðinu á árum síðari heimsstyrjaldarinnar og möguleg tengsl þess við menningar- og minjavernd í Eyjafjarðarsveit.
Nefndin tekur jákvætt í áframhaldandi vinnu við verkefnið og hvetur sveitastjórn að greiða götu þess.
2. Skólaráð Hrafnagilsskóla - Ályktun vegna skólabókasafns - E2610004
Lögð fram ályktun skólaráðs Hrafnagilsskóla frá 22. september 2026 vegna skólabókasafns skólans. Í ályktuninni kemur fram ánægja fulltrúa nemenda, kennara og starfsfólks með ráðningu bókasafnskennara og þau jákvæðu áhrif sem sú ráðning hefur haft á þjónustu við nemendur, skipulag safnsins og nýtingu þess. Skólaráð leggur áherslu á mikilvægi þess að áfram verði stutt við starfsemi skólasafnsins.
Velferðar- og menningarnefnd þakkar skólaráði Hrafnagilsskóla fyrir ályktunina og fagnar þeim jákvæðu áhrifum sem ráðning bókasafnskennara hefur haft á starfsemi skólabókasafnsins og þjónustu við nemendur. Nefndin tekur undir mikilvægi öflugs skólabókasafns sem hluta af skólastarfi og leggur áherslu á að áfram verði hlúð að starfsemi þess.
3. Umsókn um rekstrarstyrk fyrir Kvennaathvarf á Akureyri 2027 - E2609060
Lagt fram erindi frá Samtökum um kvennaathvarf þar sem óskað er eftir stuðningi sveitarfélaga á Norðurlandi eystra við rekstur Kvennaathvarfsins á Akureyri árið 2027.
Kvennaathvarfið á Akureyri hefur verið starfrækt frá árinu 2020 og veitir konum og börnum sem flýja þurfa heimili sín vegna ofbeldis tímabundið húsaskjól, ráðgjöf og stuðning. Jafnframt er boðið upp á viðtalsþjónustu og fræðslu á svæðinu.
Í erindinu er óskað eftir þátttöku sveitarfélaga á Norðurlandi eystra í húsnæðiskostnaði athvarfsins fyrir árið 2027, sem áætlaður er samtals 4,3 m.kr. Hlutur Eyjafjarðarsveitar samkvæmt fyrirliggjandi skiptingu nemur 160.571 kr.
Velferðar- og menningarnefnd tekur jákvætt í erindið og telur mikilvægt að sveitarfélög á Norðurlandi eystra standi sameiginlega að stuðningi við starfsemi Kvennaathvarfsins á Akureyri.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að Eyjafjarðarsveit taki þátt í húsnæðiskostnaði athvarfsins árið 2027 samkvæmt fyrirliggjandi skiptingu, að fjárhæð 160.571 kr.
4. Stefnumótun UMF Samherja 2026-2027 - Ósk um samstarf og fjárstuðning - E2609062
Sveitarstjórn hefur vísað erindi Ungmennafélagsins Samherja, dags. 26. september 2026, til velferðar- og menningarnefndar til umfjöllunar. Í erindinu er óskað eftir samstarfi við Eyjafjarðarsveit og fjárstuðningi vegna stefnumótunar félagsins fyrir árin 2026-2027.
Velferðar- og menningarnefnd þakkar Ungmennafélaginu Samherjum fyrir erindið og fagnar þeirri stefnumótunarvinnu sem félagið hefur ráðist í. Nefndin leggur áherslu á mikilvægt hlutverk félagsins í samfélaginu og gott samstarf þess við Eyjafjarðarsveit.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að taka þetta fyrir í umræðum um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
5. Skipan í ritnefnd Eyvindar - E2609012
Velferðar- og menningarnefnd tekur til umfjöllunar skipan í ritnefnd Eyvindar. Nefndin ræðir fyrirkomulag ritnefndarinnar og tilnefningar fulltrúa.
Velferðar- og menningarnefnd samþykkir að skipa eftirtalda í ritnefnd Eyvindar:
- Arnór Bliki Hallmundsson
- Benjamín Baldursson
- Berglind Kristinsdóttir
- Logi Óttarsson
Formanni nefndar er falið að kanna hvort fleiri einstaklingar hafi áhuga á að sitja í ritnefnd Eyvindar og reyna jafna kynjahlutföllin.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00