Velferðar- og menningarnefnd

26. fundur 03. nóvember 2026 kl. 17:00 - 19:00 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Susanne Lintermann
  • Halldór Sigurður Guðmundsson var fjarverandi en fundinn sat Sara Dögg Sindradóttir
  • Óðinn Ásgeirsson
  • Rósa Margrét Húnadóttir
  • Linda Lárusdóttir
  • Margrét Árnadóttir
Starfsmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Berglind Kristinsdóttir formaður
 
Dagskrá:
 
1. UNG Esveit - þróunaráætlun frístunda- og félagsmiðstöðvastarfs - E2610008
Karl Jónsson íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnir hugmyndir sínar um þróun frístunda- og félagsmiðstöðvastarfs í Eyjafjarðarsveit.
 
Velferðar- og menningarnefnd tekur jákvætt í þær hugmyndir sem fram komu og telur þær til þess fallnar að efla og þróa frístunda- og félagsmiðstöðvastarf í sveitarfélaginu.
 
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi hugmyndir að þróun starfsins verði samþykktar.
 
2. Framkvæmd Íþróttaviku Evrópu - E2610047
Lagt fram minnisblað um þátttöku Eyjafjarðarsveitar í íþróttaviku Evrópu sem haldin var 23. - 30. september.
Velferðar- og menningarnefnd fagnar góðri þátttöku í íþróttavikunni og sérstaklega góðum viðtökum við Fjölskyldufjöri sem haldið var í fyrsta sinn í íþróttahúsinu. Nefndin þakkar þeim félögum og einstaklingum sem tóku þátt í dagskrá vikunnar fyrir þeirra framlag og telur ástæðu til að byggja áfram á verkefninu á næsta ári.
 
3. Fræðsluferð starfsfólks ÍME til Coventry - E2610046
Lagt fram minnisblað um fyrirhugaða fræðsluferð starfsfólks Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar til Coventry dagana 1.- 5. febrúar 2027. Tilgangur ferðarinnar er að sækja fagsýningu fyrir sundlaugarstarfsfólk, fyrirlestra og vinnustofur sem nýtast við starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar.
Velferðar- og menningarnefnd tekur jákvætt í fyrirhugaða fræðsluferð og telur hana falla vel að sí- og endurmenntun starfsfólks Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar.
 
4. Endurnýjun samnings við Minjasafnið um rekstur Smámunasafns Sverris Hermannssonar - E2609011
Umræður um stöðu endurnýjunar samnings við Minjasafnið um rekstur Smámunasafns Sverris Hermannssonar.
Velferðar- og menningarnefnd áréttar fyrri afstöðu sína um mikilvægi þess að gerður verði langtímasamningur við Minjasafnið um rekstur sýningarinnar og hvetur sveitarstjórn til að ljúka samningsgerðinni sem fyrst. Jafnframt verði í samningnum skýrt kveðið á um ábyrgð á kynningar- og auglýsingamálum safnsins.
 
5. Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta árið 2027 - E2610016
Lögð fram beiðni um fjárframlag til starfsemi Stígamóta fyrir árið 2027.
Velferðar- og menningarnefnd hafnar styrkumsókninni þar sem sveitarfélagið styrkir systursamtök Stígamóta, Aflið á Akureyri.
 
6. Samtök um karlaathvarf - Ósk um stuðning - E2610026
Lögð fram beiðni um fjárframlag til starfsemi Karlaathvarfsins.
Velferðar- og menningarnefnd hafnar styrkumsókninni.
 
7. Búsaga - Umsókn um styrk til menningarmála haust 2026 - E2610034
Umsókn um styrk til menningarmála haust 2026 - Búsaga.
Velferðar- og menningarnefnd samþykkir að styrkja Búsögu um kr. 300.000.- Nefndin lýsir yfir ánægju sinni með verkefni Búsögu og vinnu félagsmanna.
 
8. Guðrún H Bjarnadóttir - Umsókn um styrk til menningarmála haust 2026 - E2610039
Umsókn um styrk til menningarmála haust 2026 - Guðrún H Bjarnadóttir.
Velferðar- og menningarnefnd samþykkir að styrkja námskeiðið um kr. 400.000.
 
9. Umsóknir um afreks- og hvatningarstyrk - E2609046
Farið yfir umsóknir um afreks- og hvatningarstyrk Eyjafjarðarsveitar.
Farið yfir umsóknir um afreks- og hvatningarstyrk Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2026. Velferðar- og menningarnefnd samþykkir samhljóða úthlutun styrkja samkvæmt umræðum á fundinum og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að tilkynna umsækjendum um niðurstöðuna.
 
Að lokinni fyrstu úthlutun verði reynsla af framkvæmd styrksins og gildandi reglum tekin til endurskoðunar, í samræmi við fyrri ákvörðun sveitarstjórnar.
 
10. Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030 - E2605022
Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri fór yfir lykiltölur í rekstri velferðar-, menningar, íþrótta- og tómstundamála í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027.
Lagt fram til kynningar.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00
Getum við bætt efni síðunnar?