Velferðar- og menningarnefnd

27. fundur 24. nóvember 2026 kl. 17:45 - 19:45 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Susanne Lintermann
  • Halldór Sigurður Guðmundsson
  • Óðinn Ásgeirsson
  • Rósa Margrét Húnadóttir
  • Linda Lárusdóttir
  • Margrét Árnadóttir
Starfsmenn
  • Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Berglind Kristinsdóttir formaður
 
Berglind Kristinsdóttir formaður velferðar- og menningarnefndar hóf fundinn á því að óska eftir afbrigðum á boðaðri dagskrá og óskaði eftir því að taka inn nýtt mál á dagskrá: "Bókasafn Eyjafjarðarsveitar" og var það samþykkt samhljóða og verður það mál það 9. á fundinum.
 
Dagskrá
 
1. Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030 - E2605022
Lögð fram til kynningar fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2027 og 2028-2030.
 
Við vinnslu fjárhagsáætlunar Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027 liggur fyrir að tekjur sveitarfélagsins aukast, meðal annars vegna hækkunar útsvarstekna og framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
 
Þrátt fyrir auknar tekjur er fjárhagslegt svigrúm sveitarfélagsins takmarkað næstu ár. Meginástæða þess er umfangsmikil fjárfesting vegna stækkunar Hrafnagilsskóla, auk annarra þegar fyrirhugaðra framkvæmda og skuldbindinga sveitarfélagsins.
 
Stækkun Hrafnagilsskóla hefur áhrif bæði á fjárfestingarþörf og fjármögnun sveitarfélagsins og þar með á möguleika þess til að taka á sig ný varanleg rekstrarútgjöld. Við mat á nýjum verkefnum og þjónustu þarf því að horfa til þess að auknar reglubundnar tekjur eru að hluta nauðsynlegar til að standa undir aukinni greiðslubyrði, rekstri nýrrar aðstöðu og öðrum skuldbindingum sem fylgja uppbyggingunni.
 
Við gerð fjárhagsáætlunar 2027 er því lögð áhersla á að verja grunnþjónustu, standa undir þegar samþykktum verkefnum og gæta varfærni við stofnun nýrra varanlegra útgjalda. Ný verkefni þurfa eftir atvikum að rúmast innan núverandi fjárheimilda, fela í sér endurskiptingu fjármagns eða hafa tryggða fjármögnun.
Sveitarstjóri kynnti vinnu við fjárhagsáætlun.
 
2. Íþrótta- og tómstundastyrkur 2027 - E2611031
Umræður um íþrótta- og tómstundastyrk fyrir árið 2027. Íþrótta- og tómstundafulltrúi og skrifstofu- og fjármálastjóri fara yfir hvernig gengið hefur með Abler/Hvata kerfið á árinu sem er að líða.
Velferðar- og menningarnefnd fór yfir forsendur frístundastyrks. Nefndin samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að styrkurinn verði hækkaður í kr. 65.000 á árinu 2027.
 
3. Lýðheilsustyrkur eldri borgara 2027 - E2511012
Lagt fram til umræðu upphæð lýðheilsustyrks Eyjafjarðarsveitar fyrir eldri borgara fyrir árið 2027.
Velferðar- og menningarnefnd fór yfir forsendur lýðheilsustyrks eldri borgara. Nefndin samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að lýðheilsustyrkur sveitarfélagsins hækki í kr. 18.500 árið 2027.
 
4. Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis - Jólaaðstoð 2026 - E2611012
Fyrir fundinum liggur ósk um fjárframlag vegna jólaaðstoðar ársins 2026 frá Velferðarsjóð Eyjafjarðarsvæðis. Fram kemur að árið 2025 hafi um 500 fjölskyldur og einstaklingar óskað eftir jólaaðstoð og að mánaðarlegar úthlutanir frá janúar til október 2026 hafi verið um 600 talsins.
Velferðar- og menningarnefnd samþykkir samhljóða að styrkja Velferðarsjóð Eyjafjarðarsvæðis um 200.000 kr. vegna jólaaðstoðar ársins 2026.
 
5. Velferðar- og menningarnefnd - Málefni Laugarborgar - E2611025
Fyrir fundinum liggur samantekt frá íþrótta- og tómstundafulltrúa og Sigrúnu Freysdóttur húsverði um málefni Laugarborgar.
Velferðar- og menningarnefnd leggur áherslu á að efla starfsemi í Laugarborg til framtíðar, ekki síst menningarstarfsemi. Nefndin beinir því til skrifstofu sveitarfélagsins að vinna að útfærslum á bókunarkerfi fyrir húsið í samræmi við aðra sali hjá sveitarfélaginu ásamt yfirferð á gjaldskrá. Þá leggur nefndin áherslu á að farið verði í markaðssetningu á Laugarborg fyrir menningarviðburði og aðrar uppákomur.
Nefndin mun svo taka fyrir málefni Laugarborgar á næstu fundum sínum.
 
6. UMF Samherjar - Tillaga um viðburðarnefnd - E2606009
Lögð fram samantekt frá opnum fundi með félagasamtökum í Eyjafjarðarsveit um viðburðahald, sem haldinn var 18. nóvember 2026.
 
Á fundinum kom meðal annars fram mikill áhugi á að halda stóran viðburð að sumri til ásamt aukinni samhæfingu viðburða, bættri upplýsingamiðlun og samstarfi félaga um sameiginlegan viðburð eða hátíð. Jafnframt var rætt um að hlutverk sveitarfélagsins ætti að vera stuðnings- og samhæfingaraðili fremur en meginviðburðahaldari.
Velferðar- og menningarnefnd lýsir yfir ánægju með fund sem haldinn var með félagasamtökum í Eyjafjarðarsveit og leggur til við sveitarstjórn að sett verði fjárveiting í viðburðahald á árinu 2027 í samræmi við hugmyndir sem komu fram á fundinum.
 
7. Minjasafnið á Akureyri - 1. fundargerð stjórnar 9.09.26 - E2610049
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Minjasafnsins á Akureyri frá 9. september 2026.
Lagt fram til kynningar.
 
8. Minjasafnið á Akureyri - 2. fundargerð stjórnar 21.10.26 - E2610050
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Minjasafnsins á Akureyri frá 21. október 2026.
Lagt fram til kynningar.
 
9. Bókasafn Eyjafjarðarsveitar - E2504005
Sveitarstjóri fór yfir samskipti við Amtsbókasafnið á Akureyri um samstarf vegna grisjunar á bókakosti Bókasafns Eyjafjarðarsveitar ásamt aðstoð við hönnun rýmis verðandi bókasafns á 1. hæð Hrafnagilsskóla.
Velferðar- og menningarnefnd samþykkir að fá fulltrúa frá Amtsbókasafninu til að aðstoða starfsmenn bókasafnins vegna grisjunar, jafnframt mun nefndin fá fulltrúa Amtsbókasafnins á sinn fund eftir áramót.
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:45
 
Getum við bætt efni síðunnar?