6. bekkur gefur spil í félagsmiðstöðina

Fréttir

6. bekkur Hrafnagilsskóla gaf fjölda spila í félagsmiðstöðina Hyldýpi í gær. Ákváðu krakkarnir að nýta hluta afraksturs Bókmenntahátíðar barnanna, sem haldin var á síðasta skólaári, til að uppfæra spilin í félagsmiðstöðinni og ekki veitti af.

Á myndinni má sjá Sunnu umsjónarmann félagsmiðstöðvarinnar og Kalla íþrótta- og tómstundafulltrúa ásamt nemendum 6. bekkjar þegar þau tóku við gjöfunum.

Hyldýpi þakkar krökkunum kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem þau ásamt öðrum þátttakendum í félagsmiðstöðvastarfinu, fá að njóta í framtíðinni.