Við leitum að jákvæðum og áreiðanlegum einstaklingi til að sinna afleysingum á deild hjá okkur vegna fæðingarorlofs. Mikill möguleiki fyrir áframhaldandi ráðningu. Hlutverk afleysingamanneskju er mjög mikilvægt til að halda uppi samfellu og öryggi í dagskipulagi leikskólans. Við leitum að einstaklingi með áhuga á að vinna með börnum og starfa í lifandi og skemmtilegu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Taka virkan og skapandi þátt í leik og samskiptum við börnin.
- Aðstoða við grunnþarfir og daglegar rútínur, svo sem í matartímum, við fataskipti og í útiveru, með velferð barnanna að leiðarljósi.
- Vinna náið og vel með öðru starfsfólki deildarinnar. Viðkomandi þarf að geta fylgt fyrirmælum en jafnframt tekið frumkvæði og unnið sjálfstætt þegar aðstæður krefjast þess.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærileg framhaldsskólamenntun.
- Reynsla og áhugi á að vinnu með börnum.
- Hreint sakavottorð.