Afreks- og hvatningarstyrkur Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

Markmið afreks- og hvatninarstyrksins er að styðja ungt afreksfólk með lögheimili í Eyjafjarðarsveit til þátttöku í viðurkenndum alþjóðlegum verkefnum á sviði íþrótta og lista og mæta hluta af ferðakostnaði vegna slíkrar þátttöku. Styrkurinn er hvatningar- og viðurkenningarstyrkur en ekki almennur tómstundastyrkur. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 14 – 21 ára á því almanaksári sem verkefni fer fram sem og eiga lögheimili í Eyjafjarðarsveit við umsókn og þegar verkefni fer fram. Velferðar- og menningarnefnd fer yfir allar umsóknir en úthlutað er einu sinni á ári. 

Umsóknarfrestur er 1. nóvember ár hvert.
Opið er fyrir umsóknir allt árið í gegnum í gegnum þjónustugátt sveitarfélagsins. 
Með umsókn skal fylgja:

  • Staðfesting frá viðurkenndu sérsambandi, skóla eða skipuleggjanda.
  • Sundurliðuð kostnaðaráætlun.
  • Stutt greinargerð um ferðina.