Álagningu fasteignagjalda er lokið hjá Eyjafjarðarsveit og eru álagningarseðlar nú aðgengilegir fasteignaeigendum á island.is
Álagningarseðlar verða ekki sendir út á pappír. Með þessari ráðstöfun næst fram bæði kostnaðar- og vinnusparnaður, jafnframt því sem dregið er úr umhverfisáhrifum. Álagning skiptist, líkt og áður, á tíu gjalddaga frá 1. febrúar til 1. nóvember. Eindagi er rúmum mánuði eftir hvern gjalddaga.
Álagningarprósenta fasteignaskatts fyrir íbúðarhúsnæði hefur lækkað frá fyrra ári og er 0,35% af fasteignamati. Álagningarprósenta af öðru húsnæði er óbreytt 1,4%. Óbreytt álagningarprósenta, 1,32%, er af fasteignamati skóla, sjúkrahúsa, bókasafna og íþróttahúsa.
Heildarálagning fasteignagjalda ársins 2026 er 245,9 milljónir króna, þar af er fasteignaskattur 170,5 milljónir, lóðarleiga er 8,8 milljónir, vatnsskattur 16,9 milljónir króna, fráveitu- og holræsargjöld 13,6 milljónir og sorphirðugjöld 35,9 milljónir króna.
Vatnsskattur er rukkaður skv. gjaldskrá Norðurorku annars vegar og Vatnsveitu Staðarbyggðar hins vegar.
Sorphirðugjöld
Sorphirðu- og dýraleifagjöld eru, líkt og áður, innheimt samhliða fasteignagjöldum. Innheimta fer fram samkvæmt gildandi gjaldskrá sveitarfélagsins og tekur mið af fyrirkomulagi sorpflokkunar við hvert heimili.
Innheimt er sérstakt fast sorphirðugjald vegna reksturs grenndar- og söfnunarstaðar á 447 heimili og 79 frístundahús. Greiðendur fasteignagjalda af íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu fá afhent eitt gjaldfrjálst rafrænt klippikort fyrir gámasvæðið með 16 klippum, hvert þeirra gildir fyrir 0.25 rúmmetrum samkv. gjaldskrá. Rafræna klippikortið má nálgast á esveitarkort.is
Á álagningarseðlum koma fram sorphirðugjöld viðkomandi eignar, bæði fastagjaldið og ílátagjöld. Þar sem skylt er að sækja aðgreinda flokka sorps að íbúðarhúsnæði eru að minnsta kosti þrjár aðgreindar sorptunnur (blandað, pappi og plast) við hvert heimili. Hinsvegar er heimilt að tvö eða fleiri sérbýli á sömu eða aðliggjandi lóð sameinist um sorpílát, enda henti það aðstæðum. Óskir um breytingar á fjölda eða samsetningu íláta má senda með tölvupósti á netfangið esveit@esveit.is
Afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega
Afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti er reiknaður sjálfkrafa í gegnum kerfi HMS og Ríkisskattstjóra og stuðst er við skattframtal 2024. Afslátturinn er færður til lækkunar á fasteignagjöldum á álagningarseðli. Upplýsingar um gjaldskrá og afsláttarreglur er hægt að nálgast hér. Alls voru 19 elli- og örorkulífeyrisþegum veittur afsláttur af fasteignaskatti að upphæð 1,4 milljónum króna og meðal afsláttur hvers var 72 þúsund krónur.