Ársreikningur 2025 lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn

Fréttir
Mynd: Gunnlaugur Stefán Guðleifsson
Mynd: Gunnlaugur Stefán Guðleifsson

Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 274,1 m.kr. og rekstrarniðurstaða A hluta um 283,0 m.kr. Rekstrartekjur námu tæpum 2,0 milljörðum kr. og hafa aukist frá fyrra ári.

Sjóðstreymi frá rekstri var öflugt, en handbært fé frá rekstri nam 415,8 m.kr. fyrir A og B hluta. Sú niðurstaða sýnir að rekstur sveitarfélagsins stendur vel undir daglegum útgjöldum og skapar svigrúm til fjárfestinga. Á árinu var ráðist í umfangsmiklar fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum, einkum í fasteignum og innviðum, sem námu um 1.012 m.kr. hjá A og B hluta. Þær framkvæmdir skýra að stórum hluta lækkun handbærs fjár á árinu.

Efnahagsstaða sveitarfélagsins er sterk. Eigið fé A og B hluta nam 2.272,7 m.kr. í árslok og hefur aukist verulega milli ára. Þrátt fyrir viðamiklar fjárfestingar er skuldaviðmið samstæðunnar einungis 24,8%, en áætlanir gerðu ráð fyrir 25,2% við lok árs, sem er vel innan þeirra marka sem lög og viðmið gera ráð fyrir.

Lágt skuldaviðmið skýrist fyrst og fremst af góðu sjóðstreymi frá rekstri og jákvæðri rekstrarniðurstöðu, sem gerir sveitarfélaginu kleift að fjármagna stóran hluta framkvæmda með eigin fé. Þá hefur uppbygging eigna, einkum í fasteignum og innviðum, styrkt efnahagsreikninginn án þess að skuldsetning hafi aukist í sama mæli.

Stærstu útgjaldaliðir rekstursins eru málaflokkar fræðslu- og uppeldismála, félagsþjónusta og æskulýðs- og íþróttamála, sem endurspeglar lögbundið hlutverk sveitarfélagsins og þjónustu við íbúa.

Sveitarstjórn lýsir yfir mikilli ánægju með niðurstöðu ársreikningsins, sem staðfestir sterka fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins, öflugan rekstur og þá jákvæðu þróun sem hefur átt sér stað á undanförnum árum, þar sem uppbygging, þjónusta og vöxtur fara skynsamlega saman.

Sveitarstjórn vísar samhljóða ársreikningnum til síðari umræðu í sveitarstjórn.