Auglýst eftir metnaðarfullum frístundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina

Fréttir

Laus er staða frístundaleiðbeinanda við Félagsmiðstöðina Hyldýpi í Eyjafjarðarsveit. Hyldýpi heldur úti frístundastarfi fyrir börn og unglinga á mið- og unglingastigi Hrafnagilsskóla. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september 2026.

Opið er þrisvar sinnum í viku fyrir nemendur miðstigs, milli kl. 14 og 16 og 1-2 kvöld í viku fyrir nemendur unglingastigs. Tímafjöldi í eðlilegum mánuði er um 34-36 tímar. Auk viðveru á viðburðum tekur frístundaleiðbeinandi þátt í ferðum félagsmiðstöðvarinnar utan svæðis.

Starfið hefur verið í mikilli þróun og mörg spennandi verkefni framundan. Hyldýpi tekur þátt í samstarfi lítilla félagsmiðstöðva í Eyjafirði og Þingeyjarsveit og er með þeim þátttakandi í alþjóðlegu starfi með samstarfsaðilum frá Danmörku, Þýskalandi og Litháen. Á næstu misserum mun Hyldýpi flytja í nýtt og rúmbetra húsnæði sem mun bjóð upp á skemmtilega þróun starfsins. Hyldýpi starfar í takti við nýsköpunarstefnu Eyjafjarðarsveitar þar sem áherslan mun verða lögð á að aðlaga starfið að áhugasviði þátttakenda og fara nýjar leiðir í þeirri nálgun m.a. í klúbbastarfi.

Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga og þekkingu á starfi með börnum og unglingum, býr yfir færni í mannlegum samskiptum, skipulagsfærni, hugmyndaauðgi og getur sýnt frumkvæði í störfum. Gerð er krafa um heiðarleika og stundvísi og að viðkomandi sé jákvæð fyrirmynd fyrir börn og unglinga. Hreint sakavottorð er skilyrði sem og íslenskukunnátta.

Laun eru skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.

Umsókn, ásamt kynningarbréfi og ferilsskrá, skal senda á umsjónarmann Hyldýpis, Sunnu Björgu Valsdóttur, sem gefur allar nánari upplýsingar, á netfanginu hyldypi@esveit.is. Umsóknarfrestur er til 31. júlí 2026.