Félags- og húsnæðismálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála.
Við val verkefna sem hljóta styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála árið 2025 verður áhersla lögð á verkefni sem ná til:
- Virkrar notkunar íslensku í gegnum félagslega viðburði til stuðnings við hefðbundið tungumálanám. Áhersla er lögð á verkefni fyrir ungmenni á framhaldsskólaaldri og fyrir fullorðið fólk.
- Þátttöku innflytjenda og innlendra á jafningjagrunni, m.a. með því að stuðla að lýðheilsu innflytjenda og virkri þátttöku þeirra í félagasamtökum og félagsstarfi.
- Verkefna sem ætlað er að auka skilning og samkennd milli innlendra og innflytjenda á vinnustöðum eða í framhalds- og háskólum, svo sem með félagsvinaverkefnum og menningar- og tungumálabrúarsmíði.
Félags- og hagsmunasamtök innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um.
Styrkir verða veittir einstaklingum, félögum, samtökum og opinberum aðilum. Styrkir geta að hámarki numið 75% af áætluðum heildarkostnaði verkefnis. Unnt er að sækja um jafnt á íslensku sem og ensku.
Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2025.
Umsókn sem berst eftir að umsóknarfrestur er liðinn verður ekki tekin til umfjöllunar.
- Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins.
- Hægt er að nálgast ítarlegar leiðbeiningar um notkun vefsins og hvernig finna skuli formið.
Frekari upplýsingar fást í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu í síma 545 8100 og með tölvupósti á netfangið frn@frn.is.
Hlutverk þróunarsjóðs innflytjendamála er að styðja þróunarverkefni og efla rannsóknir á sviði málefna innflytjenda með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma inngildingu innflytjenda og íslensks samfélags.
Fréttin er í heild sinni tekin af þessari síðu:
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025/09/22/Auglyst-eftir-umsoknum-um-styrki-ur-throunarsjodi-innflytjendamala/