Bakkaflöt athafnasvæði – auglýsing á niðurstöðu sveitarstjórnar

Fréttir

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 29.01.2026 breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 og nýtt deiliskipulag vegna athafnasvæðis á Bakkaflöt.

Athugasemdir bárust á auglýsingartímabili skipulagstillaganna og má sjá afgreiðslu sveitarstjórnar í fundargerð á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is

Aðal- og deiliskipulagið hefur hlotið málsmeðferð í samræmi við 30., 31., 32., 40., 41., og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar auðlinda- og umhverfismála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

 

F.h. Eyjafjarðarsveitar,

Skipulags- og byggingarfulltrúi