Opnun Bókasafns Eyjafjarðarsveitar eftir sumarfrí dregst til miðvikudagsins 9. september. Beðist er velvirðingar á töfinni.
Til að byrja með verður bókasafnið opið fyrir almenning þrisvar í viku:
- Mánudaga kl. 14:00–17:00
- Miðvikudaga kl. 14:00–17:00
- Föstudaga kl. 14:00–16:00
Merk tímamót verða við bókasafnið nú í haust þar sem Margrét Baldvina Aradóttir hefur látið af störfum eftir 25 ára starf við safnið. Eyjafjarðarsveit færir Margréti innilegar þakkir fyrir farsælt og ómetanlegt starf í þágu bókasafnsins og samfélagsins í Eyjafjarðarsveit í gegnum árin.
Fram undan eru jafnframt breytingar á húsnæði bókasafnsins. Að öllum líkindum verður þetta síðasta starfsár safnsins í núverandi húsnæði í kjallara íþróttahússins, en stefnt er að því að færa starfsemina í álmu Hrafnagilsskóla við hlið anddyris íþróttahússins næsta haust.
Sunna Björg Valsdóttir tekur nú við umsjón almenningsbókasafnsins en Jóhanna Dögg Stefánsdóttir hefur tekið við umsjón skólabókasafns Hrafnagilsskóla.
Við hlökkum til að taka á móti gestum safnsins að nýju miðvikudaginn 9. september.
Senda má tölvupóst á netfangið bokasafn@esveit.is