Sveitastjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 13.11.2025 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 vegna Brúarlands og breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar Brúnagerðis, áfanga A og B skv. 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Aðalskipulagsbreytingin felst í því að meginhluti tveggja af þremur íbúðarsvæðum að Brúarlandi (ÍB15) yrðu skilgreind sem verslunar- og þjónustusvæði en áformað er að á svæðinu verði rekin gistiþjónusta. Deiliskipulagsbreytingin felst í að skipulagssvæðið, sem nú er skilgreint sem íbúðarbyggð, yrði skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði þar sem 13 lóðir af 15 yrðu nýttar til reksturs gistiþjónustu. Skipulagssvæðið yrði þannig allt skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði að undanskildum lóðum nr. 1 og 15 sem yrðu áfram íbúðarhúsalóðir.
Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerum 333/2025 (aðalskipulagsbreyting) og 1107/2025 (deiliskipulagsbreyting). Hægt er að skila inn athugasemdum við skipulagstillögurnar til 20. júní nk. og skulu þær berast inn á Skipulagsgátt. Frekari upplýsingar má nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is
Skipulags- og byggingarfulltrúi.
Brúarland Aðalskipulagsbreyting - uppdráttur
Brúarland - Brúnagerði áfangi A og B - deiliskipulagsbreytning - greinargerð