Dagskrá Íþróttaviku Evrópu

Fréttir

Nú hefur dagskrá Íþróttaviku Evrópu litið dagsins ljós. Þar sameinast félagasamtök og einkaaðilar sveitarfélaginu í að búa til sem fjölbreyttasta dagskrá sem allir geta nýtt sér án endurgjalds.

Þannig stendur Ungmennafélagið Samherjar fyrir opnum æfingum í mörgum íþróttagreinum auk þess sem félagið mun halda utan um fjölskyldufjör í íþróttahúsinu laugardaginn 26. September.

Einkaaðilar úr Jógageiranum hafa alltaf verið duglegir við að bjóða upp á viðburði í íþróttavikunni og nú verður engin breyting þar á.

Fyrir aldurshópinn 60+ verður boðið upp á opnar æfingar í Ringo, vatnsleikfimi, styrktaræfingum og boccia.

Frítt er í sund alla þá daga sem íþróttavikan stendur yfir.

Nóg um að vera fyrir alla og eru íbúar hvattir til að taka þátt í dagskránni.