Efri hæð Hrafnagilsskóla og íþróttamiðstöðvar tekin að rísa

Fréttir
Sindri Hreiðarsson og starfsmenn hjá B.Hreiðars
Sindri Hreiðarsson og starfsmenn hjá B.Hreiðars

Nú hefur B.Hreiðarsson tekið að reisa efri hæð viðbyggingar Hrafnagilsskóla sem að auki mun hýsa stækkun íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar með glæsilegri líkamsræktaraðstöðu.

Húsinu verður lokað í sumar og haust og verður unnið í því að innan í allan vetur en stefnt er á að framkvæmdum ljúki á árinu 2027. Samhliða framkvæmdum þar er unnið að umtalsverðum breytingum inni í skólahúsnæðinu og í anddyri íþróttamiðstöðvar, rým sem mun tengja skólann, nýtt bókasafnsrými og íþróttamiðstöð í glæsilegum kjarna.

Verkefnið er framhald af uppbyggingu leikskólans Krummakots og er ætlað að leiða til viðamikillar þjónustuaukningar fyrir íbúa sveitarfélagsins.