Tillögur frá íbúum og áform landeiganda
Í vinnslu er endurskoðun aðalskipulags fyrir Eyjafjarðarsveit þar sem sett er fram stefna sveitarfélagsins um landnotkun og þróun byggðar til næstu 12 ára.
Íbúar eru hvattir til að senda inn hugmyndir og tillögur sem nýtast við mótun skipulagsins.
Mögulegt er að koma ábendingum og gögnum á skipulagsráðgjafa verkefnisins til 1. desember n.k. á netfangið atli@landslag.is eða skriflega á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar. Sé þörf á ráðgjöf vegna erinda tekur skrifstofustjóri á móti beiðnum í síma 463-0600
Skipulagsfulltrúi Eyjafjarðar