Eyjafjarðarsveit auglýsir eftir öflugum leiðtoga í starf sveitarstjóra

Fréttir
Auglýst eftir sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit
Auglýst eftir sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit

Leitað er að lausnamiðuðum og framsýnum leiðtoga í starf sem býður upp á spennandi tækifæri til að leiða sveitarfélagið í nánu samstarfi við kjörna fulltrúa, íbúa og starfsfólk.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á daglegum rekstri sveitarfélagsins og framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
  • Stýrir og þróar stjórnsýslu sveitarfélagsins og hefur yfirumsjón með mannauðsmálum
  • Vinnur náið með sveitarstjórn og nefndum að undirbúningi mála og stefnumótun
  • Tryggir fagleg vinnubrögð, góða þjónustu og skilvirka framkvæmd
  • Annast samskipti við íbúa, stofnanir, fyrirtæki og önnur sveitarfélög og gætir hagsmuna sveitarfélagsins út á við
  • Leiðir samstarf og samráð innan samfélagsins

Hæfniskröfur

  • Framúrskarandi hæfileikar í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogahæfni, öguð og lausnarmiðuð vinnubrögð
  • Þekking og farsæl reynsla af stjórnun, mannauðsmálum, stefnumótun og rekstri
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Mjög góð færni í ræðu og riti
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, sérstaklega sveitarfélögum, er kostur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur

 

Umsóknarfrestur er til klukkan 13:00 þann 3.júní

Umsókn skal send á esveit@esveit.is með yfirskriftinni „Sveitarstjóri – starfsumsókn“.

Umsókn skulu fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.

 

Nánari upplýsingar veita:

Hermann Ingi Gunnarsson, oddviti sveitarstjórnar hermann@esveit.is

Finnur Yngvi Kristinsson, fráfarandi sveitarstjóri sveitarstjori@esveit.is

 

Eyjafjarðarsveit áskilur sér rétt til að birta lista yfir umsækjendur opinberlega að umsóknarfresti liðnum.