Um er að ræða spennandi tækifæri til uppbyggingar á athafnalóðum nærri vaxandi íbúðarbyggð í Hrafnagilshverfi. Nú stendur yfir gatnagerð á svæðinu og er áætlað að henni ljúki sumarið 2027, sem mun styrkja aðgengi og skapa góðar forsendur fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi.
Lóðirnar verða afhentar í núverandi ástandi og annast lóðarhafar sjálfir þá jarðvegsvinnu sem á lóðum kann að vera þörf á. Verður þeim heimilt að hefjast strax við úthlutun handar við jarðvegsvinnu.
Í þessum áfanga verður lóðunum B1, B2 og B4 úthlutað.
Lágmarks verð lóða er eftirfarandi:
- Bakkaflöt B1: 37.500.000 kr.
- Bakkaflöt B2: 31.250.000 kr.
- Bakkaflöt B4: 28.125.000 kr.
Leyfilegt byggingarmagn á lóðunum er eftirfarandi (sjá einnig skipulagsuppdrátt):
- Bakkaflöt B1: 1.200–2.400 m²
- Bakkaflöt B2: 1.000–2.000 m²
- Bakkaflöt B4: 900–1.800 m²
Lóðirnar bjóða upp á góða möguleika til uppbyggingar í öflugu atvinnuumhverfi þar sem áframhaldandi þróun svæðisins er fyrirhuguð á næstu árum. Lágmarksverð endurspeglar umfang uppbyggingar og undirbúnings svæðisins.
Tilboðum skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins á tölvupóstinn esveit@esveit.is eigi síðar en 31.maí næstkomandi.