Eyjafjarðarsveit leggur áherslu á hóflegar gjaldskrárhækkanir

Fréttir
Grundarkirkja
Grundarkirkja

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar tók á 683. fundi sínum haldinn 1. október fyrir tvö erindi þar sem fjallað var um gjaldskrár sveitarfélaga, verðstöðugleika og kaupmátt heimila.

Annars vegar var lögð fram fyrirspurn frá VR, Landssambandi íslenskra verzlunarmanna (LÍV) og Rafiðnaðarsambandsins f.h. Fagfélaganna til sveitarstjórnar og hins vegar erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands (SGS). Í erindunum var meðal annars hvatt til þess að sveitarfélög legðu sitt af mörkum til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og stuðla þannig að verðstöðugleika og bættum kaupmætti.

Sveitarstjórn tekur undir mikilvægi þess að sveitarfélög, ríkisvaldið og fyrirtæki vinni saman að þessum markmiðum og bendir á að Eyjafjarðarsveit hafi þegar gripið til aðgerða í þessa veru.

Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026 var ákveðið að takmarka almennar gjaldskrárhækkanir sveitarfélagsins við 2,5% að jafnaði, með þeim undantekningum sem lög kveða á um. Jafnframt var fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækkaður úr 0,39% í 0,35%.

Í apríl 2026 samþykkti sveitarstjórn einnig að takmarka hækkanir leikskóla- og frístundagjalda fyrir skólaárið 2026–2027 við 2,5% í stað þeirrar 5% vísitöluhækkunar sem áður hafði verið gert ráð fyrir.

Sveitarstjórn telur mikilvægt að halda áfram á þessari braut. Við vinnu fjárhagsáætlunar Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2027 verður áfram lögð áhersla á að halda gjaldskrárhækkunum í lágmarki, samhliða því að tryggja sjálfbæran og ábyrgan rekstur sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn samþykkti samhljóða að fela sveitarstjóra að svara erindunum með vísan til þeirra aðgerða sem Eyjafjarðarsveit hefur þegar gripið til.