Eyjafjarðarsveit og Skógræktarfélag Eyfirðinga endurnýja samning

Fréttir
Ingólfur Jóhannsson framkvæmdarstjóri skógræktarfélagsins og Hermann Ingi Gunnarsson oddviti sveitar…
Ingólfur Jóhannsson framkvæmdarstjóri skógræktarfélagsins og Hermann Ingi Gunnarsson oddviti sveitarstjórnar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á dögunum að endurnýja samning við Skógræktarfélag Eyfirðinga til næstu tveggja ára og gildir hann út árið 2027.

Með samningnum styrkir sveitarfélagið annarsvegar rekstur skógræktarfélagsins og hinsvegar umhirðu félagsins og uppbyggingu í skógræktarreitum þess innan sveitarfélagsins. Þá hefur skógræktarfélagið veitt sveitarfélaginu ráðgjöf og leiðsögn varðandi uppgræðslu í Hrafnagilshverfi og að sjálfsögðu séð um að troða skíðagönguleið meðfram hjóla- og göngustígnum að Hrafnagilshverfi þegar aðstæður leyfa.

Eyjafjarðarsveit fagnar áframhaldandi samstarfi.