Eyjafjarðarsveit styður við starf Hjálparsveitarinnar Dalbjargar með kaupum á stóra Neyðarkallinum. Með kaupunum vill sveitarfélagið leggja sitt af mörkum til mikilvægs björgunar- og slysavarnastarfs í heimabyggð.
Sala Neyðarkallsins er mikilvæg fjáröflun björgunarsveita landsins. Ágóðinn nýtist meðal annars til kaupa á búnaði, þjálfunar sjálfboðaliða og eflingar starfsins.
Eyjafjarðarsveit þakkar félögum Dalbjargar fyrir ómetanlegt starf í þágu samfélagsins og hvetur íbúa og fyrirtæki í Eyjafjarðarsveit til að taka vel á móti hjálparsveitarfólki og styðja við sína sveit.