Fjölmennur fundur um viðburðahald

Fréttir
Fjölmenni var á fundinum í Félagsborg.
Fjölmenni var á fundinum í Félagsborg.

Ungmennafélagið Samherjar sendu Eyjafjarðarsveit erindi í haust þar sem félagið reifaði sínar hugmyndir að framkvæmd viðburðahalds í sveitarfélaginu og eftir samtal við félagið var ákveðið að boða til stærri fundar og kalla eftir hugmyndum á þessu sviði.

Starfsmenn frá SSNE stýrðu umræðum á fundinum og þar kom skýrt fram mikill áhugi á auknu viðburðahaldi í Eyjafjarðarsveit og meiri samræmingu og kynningu. Fulltrúar félaganna fóru með umræðupunkta heim af fundinum auk þess sem velferðar- og menningarnefnd fjallaði um mál sem snéru að sveitarfélaginu á fundi sínum í vikunni.

Að mati fundargesta vantar eina stærri sveitahátíð en jafnframt mætti efla og styðja við þá viðburði sem þegar eru í gangi auk þess sem ákall var um að einhver héldi utan um vinnu við skipulagningu viðburða og kynningar þeirra.

Í janúar verður boðaður annar fundur þar sem unnið verður úr frekari upplýsingum og vörður lagðar að viðburðahaldi næsta sumar.